Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Veiðikortið 2019

    5. janúar 2019
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Eins og glöggir veiðimenn hafa tekið eftir, þá brást Veiðikortið ekki væntingum og kom út fyrir síðustu jól. Ef að líkum lætur þá eru flestir búnir að blaða í gegnum veglegan bækling kortsins og kynna sér þær breytingar sem hafa orðið frá fyrra ári.

    Veiðikortið 2019

    Nýtt vatn á kortinu er Hreðavatn í Norðurárdal ásamt Hólmavatni og Laxárvatni í Dölum sem koma nú aftur inn á kortið eftir smá fjarveru. Meðalfellsvatn í Kjós sem kom aftur inn á kortið s.l. sumar eftir örstutta fjarveru er nú formlega komið aftur inn, eflaust mörgum til ánægju. Verði kortsins er að venju stillt í hóf og kostar það aðeins 7.900,- kr. sem gera 232,35 kr. á vatn sé farið í öll 34 vötnin sem bjóðast, þó ekki nema einu sinni hvert þeirra.

    Þau vötn sem hverfa (enn og aftur) af kortinu eru vötnin í Svínadal en þar að auki hverfur Hítarvatn nú af kortinu eftir að hafa verið með frá upphafi.

    Upplýsingar um mörg þeirra vatna sem eru á kortinu má einnig finna hér á síðunni:

    • BERUFJARÐARVATN Í BERUFIRÐI
    • GÍSLHOLTSVATN Í HOLTUM
    • HAUKADALSVATN Í DÖLUM
    • HRAUNSFJÖRÐUR Á SNÆFELLSNESI
    • LANGAVATN Á MÝRUM
    • ÚLFLJÓTSVATN Í GRAFNINGI
    • ÞINGVALLAVATN – ÞJÓÐGARÐURINN
    • BAULÁRVALLAVATN Á SNÆFELLSNESI
    • ELLIÐAVATN Í HEIÐMÖRK
    • HRAUNSFJARÐARVATN Á SNÆFELLSNESI
    • SAUÐLAUKSDALSVATN VIÐ PATREKSFJÖRÐ
    • SLÉTTUHLÍÐARVATN
    • VATNSDALSVATN Á BARÐASTRÖND
    • VÍFILSSTAÐAVATN Í GARÐABÆ
    • ANDAVATN Á SKAGAHEIÐI
    • FOSSVATN Á SKAGAHEIÐI
    • GRUNNATJÖRN Á SKAGAHEIÐI
    • HEYVÖTN Á SKAGAHEIÐI
    • SELVATN Á SKAGAHEIÐI
    • STÍFLUVATN Á SKAGAHEIÐI
    • ÖLVESVATN Á SKAGAHEIÐI

     

    Upplýsingar um öll vötnin á Veiðikortinu má finna á heimasíðu kortsins og í bæklingi þess sem aðgengilegur er á netinu og auðvitað einnig hér á síðunni með öðrum merkum vefritum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Vatn vikunnar – Nýjavatn

    4. janúar 2019
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Fyrsta veiðivatn ársins er Nýjavatn í Veiðivötnum. Allar upplýsingar um vatnið má finna með því að smella á myndina hér að neðan.

    Nýjavatn í Veiðivötnum

    Við munum halda uppteknum hætti hér á síðunni á nýju ári og bæta nýju vatni við í hverri viku fram til vors.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Gleðilegt nýtt ár

    1. janúar 2019
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    FOS.IS óskar öllum lesendum gleðilegs nýs árs með ósk um margar skemmtilegar stundir á nýju ári. Á undanförnum árum hefur dagatalið hér á síðunni verið opnað að jafnaði um 3.000 sinnum á ári og því hefur verður haldið í þann sið að setja saman dagatal ársins og birta hér á síðunni þegar nýtt ár gengur í garð. Í dagatalinu má finna tímasetningu árdegis- og síðdegisflóða, ásamt sólaruppkomu og sólalagi hvers dags ársins. Jafnframt má finna stöðu tungls, þ.e. nýtt tungl, fyrsta kvartils, fulls tungls og síðara kvartil. Dagatalið má nálgast með því að smella hérna.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Veiði 2017 – samantekt

    29. desember 2018
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Þótt stutt sé frá árinu 2017, þá var ég eiginlega búinn að gleyma því hvernig sumarið æxlaðist og þurfti því aðeins að grafast fyrir um ástæður þessara talna.

    Haustið var undirrituðum sérstaklega happasælt uppi á hálendi og því ná bláu súlurnar að skjóta þeim rauðu ref fyrir rass. Það vekur þó athygli að fyrstu tveir mánuður sumarsins voru eiginlega rauðliðar á meðan lítið gekk hjá þeim bláa.

     

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Vatn vikunnar – Nyrsta Hraunvatnið

    28. desember 2018
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Veiðivatn vikunnar er Nyrsta Hraunvatnið, systurvatn þess Stóra. Allar upplýsingar um vatnið má nálgast með því að smella á myndina hér að neðan.

    Nyrsta Hraunvatnið í Veiðivötnum

    Í næstu viku munum við færa okkur sunnar og vestar, því þá kemur eitthvað alveg nýtt vatn inn á síðuna í tilefni nýs árs.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Jólakveðja frá FOS.IS

    24. desember 2018
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Óskum lesendum okkar ánægjulegrar hátíðar og fullt af veiðigjöfum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 24 25 26 27 28 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar