Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Villigötur

    25. nóvember 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Það er ekki oft sem við veiðifélagarnir bregðum okkur í veiði og gistum í öðru en ferðavagninum okkar, en það kemur fyrir. Kvöld eitt í sumar, rétt í þann mund sem við vorum að taka okkur til í kvöldveiði, kom til mín nágranni á gististað, nokkuð einkennilegur á svip. Þarna var á ferðinni erlendur ferðalangur, veiðimaður í göngutúr um hálendi Íslands án stangar, nánast guðlast en förum ekki út í þá sálma.

    Maðurinn virti útbúnaðinn fyrir sér og spurði kurteislega hvort við værum á leið í veiði. Ég játti því og spurði að bragði hvort hann væri veiðimaður. Jú, eitthvað fór fyrir því, hann hefði rétt ný lokið viku veiðiferð til Alaska og gert skemmtilega veiði. ‚En hvar veiðir maður hér?‘, spurði hann og skimaði í kringum sig. Ég átti örlítið erfitt með að finna viðeigandi svar, hefði helst viljað leiðrétta spurninguna og snúa henni við ‚Hvar veiðir maður ekki hér?‘ en ég lét það vera. Þess í stað svaraði ég því til að við hefðum hugsað okkur að skjótast þarna rétt yfir ásinn og renna fyrir urriða í gíg-vatninu sem væri þar undir fjallinu.

    Það var víst í ævintýri H.C. Andersen, Eldfærunum, að hundurinn var með augu á stærð við undirskálar og það var u.þ.b. stærðin á augum ferðalangsins þegar ég lét þetta út úr mér. ‚Er fiskur í þessum vötnum sem ég er búinn að labba framhjá?‘, spurði hann loks, fullur vantrúar. Það var beinlínis sárt að horfa á mann greyið þegar ég svaraði honum því til að hér væri fiskur í nánast öllum vötnum og víða allt of mikið af honum, ‘Ertu ekki með veiðistöng með þér?‘ ‚Nei, ég athugaði með veiðileyfi áður en ég kom, en hætti alveg við þegar ég sá verðlagið‘, svaraði hann og leit heldur niðurlútur á gönguskóna sína. Mér datt helst í hug að hann væri að verðleggja þá og væri til í að láta þá upp í veiðistöng á staðnum.

    Vatn við enda regnbogans?
    Við enda regnbogans

    Þessi stuttu kynni mín af þessum veiðimanni á villigötum og spjalli okkar næsta morgun færðu mér heim óþægilega staðreynd sem mig hafði samt grunað í nokkurn tíma. Orðspor íslenskrar veiðimenningar erlendis snýst um hátt verðlag, ekki náttúrufegurð eða almennt aðgengi að veiði á skynsamlegu verði. Það er víst eitthvað til í því að útlendingum finnist eins og við séum að selja fjársjóðinn við enda regnbogans, ekki veiðileyfi. Hér eru einhverjir svo sannanlega á villigötum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Lifrarfjallavatn

    20. nóvember 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    6 Lifrarfjallavatn
    6 Lifrarfjallavatn

    Af Framvötnunum er það helst að frétta að Lifrarfjallavatn er komið inn á síðuna undir Framvötn og Vötnin. Raunar hef ég aðeins farið einu sinni í þetta vatn til veiða en um þá ferð má lesa hér.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Laufdalsvatn

    13. nóvember 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Þótt vötnunum sunnan Tungnaár fjölgi ekkert í eiginlegri merkingu, þá fjölgar þeim hér á síðunni. Í dag datt Laufdalsvatn inn undir Framvötn og auðvitað á listann yfir öll vötnin.

    Framvötn - smelltu á myndina til að skoða þau sem eru komin á vefinn
    Framvötn – smelltu á myndina til að skoða þau sem eru komin á vefinn

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Það bætist í vötnin

    6. nóvember 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Það bætist alltaf í vötnin á síðunni. Nú eru aðeins fimm af Framvötnunum eftir, því inn á síðuna eru nú komnar samantektir og smá upplýsingar fyrir eftirtalin vötn:

    Blautaver
    Blautaver
    Dómadalsvatn
    Dómadalsvatn
    Eskihlíðarvatn
    Eskihlíðarvatn
    Frostastaðavatn
    Frostastaðavatn
    Herbjarnarfellsvatn
    Herbjarnarfellsvatn
    Hnausapollur
    Hnausapollur
    Hrafnabjargavatn
    Hrafnabjargavatn
    Kýlingavötn
    Kýlingavötn

    Þau fimm sem eftir eru munu koma á næstu vikum, eitt í viku hverri. Þá geta menn farið að skipuleggja veiðina á þessum slóðum næsta sumar. Vötnin og kort af svæðinu má sjá hér.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • FOS eignast sína eigin FB síðu

    26. október 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    new_facebookFlugur og skröksögur hafa eignast sína eigin Facebook síðu þar sem nýjar færslur verða birtar um leið og þær eru komnar á vefinn. Jafnframt verður völdum, eldri færslum skotið þar inn til upprifjunar. Þeim sem vilja fylgjast með síðunni í gegnum Facebook er bent á að smella hér og líka við síðuna.

    Eftir sem áður geta menn gerst áskrifendur að Flugum og skröksögum hér á forsíðunni með því að smella á ‚Áskrift‘ og við sendum öllum áskrifendur okkar tölvupóst um leið og ný grein birtist á síðunni.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Önnur árstíð

    2. október 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Þar sem mestar líkur eru á að formlegri stangveiði sé lokið í vötnunum þetta árið og lítið við að vera í þeim fáu en þó nokkuð góðu frístundum mínum sem eru framundan,  þá er komið að því að blása lífi í nýjar færslur á síðunni. Í sumar hafa þær nær einskorðast við frásagnir af veiðiferðum sem samtals urðu 25 á móti 37 í fyrra. Þetta árið taldi ég 148 fiska sem er nærri þreföldun frá árinu 2013. Það verður víst seint sagt að eitthvert hrun sé í þessari veiðimennsku.

    Færslurnar á síðunni verða vonandi aldrei færri en tvær í viku hverri í vetur, vonandi fleiri þegar nær dregur vori. Eins og endranær kem ég til með að nýta mér viðburði sumarsins, reynslu og eigin mistök til að sjóða saman einhverjar hugrenningar og frásagnir sem verða vonandi einhverjum til gagns, já eða bara til gamans og aðhláturs.

    Úr heimsóknartölum á síðuna má lesa að fylgjendur sækja ekkert síður inn á Flugur og skröksögur yfir sumarmánuðina heldur en á vetrum. Vissulega dregur örlítið niður í þeim þegar hæst stendur í veiðinni, en í raun mun minna heldur en ég hef alltaf átt von á. Mánaðarlega heimsóknir haldast í ríflega 9.500 yfir sumarmánuðina en aukast verulega þegar menn skila sér inn úr sumrinu og líður á veturinn. Þegar þetta er skrifað hafa yfir 255.000 heimsóknir dottið inn á síðuna frá því í maí 2010. Takk fyrir að fylgjast með og sýna þessu pári mínu áhuga.

    Úr Veiðivötnum - Langavatn
    Úr Veiðivötnum – Langavatn

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 54 55 56 57 58 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar