Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Backcountry North Island

    20. mars 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nú er dagskrá fimmtudagsins 26. mars að taka á sig endanlega mynd:

    • 17:00 – 18:30 Veiði og verndun í sátt við íslenska náttúru: Málþing íslandsdeildar Continental trout. Staður: Háskólabíó – Stóri salurinn. Ókeypis aðgangur
    • 18:00 – 22:00 Veiðisýningin 2015. Staður: Háskólabíó – Anddyri. Ókeypis aðgangur
    • 20:00 – 22:00 RISE Fluguveiði Kvikmyndahátíð. Staður: Háskólabíó – Stóri salurinn. Miðalasala á midi.is

    Trompið á Kvikmyndahátíðinni verður er Backcountry North Island

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • YOW – Icelandic for Yes!

    18. mars 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Það verður ýmislegt sem mun gleðja augu gesta og gangandi fimmtudaginn 26. mars í Háskólabíó. Á undan RISE kvikmyndahátíðinni sem hefst kl.20:00 verður hægt að ráfa um andyri bíósins og kynnast nýjungum og nokkrum óvæntum innskotum í veiðimenningu okkar Íslendinga. Öllum ætti að gefast nægur tími til að velta fyrir sér veiðimöguleikum, nýjungum og heilmiklu öðru sem tengist stangveiðinni því Veiðisýningin 2015 opnar kl.18:00 og stendur til kl.22:00

    Ein þeirra mynda sem sýndar verða á RISE er Yow: Icelandic for Yes! sem er hreint út sagt glæsileg veiði- og náttúrulífsmynd. Kíktu á klippuna og þú getur ekki orðið annað en sammála.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Við skiptum um útlit

    14. mars 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Eftir nokkur ár í sömu fötunum höfum við nú skipt um útlit og virkni á vefnum. Þótt sniðið sé annað er allt efnið til staðar og vonandi aðgengilegra en áður.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • RISE og veiðisýning

    14. febrúar 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_riseÞað hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að RISE Fluguveiðikvikmyndahátíð verður haldin í Háskólabíó fimmtudagskvöldið 26. mars n.k. Þetta er í fimmta sinn sem hátíðin er haldin og í ár verður vegleg veiðisýning í anddyri Háskólabíó á undan. Húsið opnar kl. 18:00 og sýning stendur til 22:00.

    Aðalmynd hátíðarinnar verðu að þessu sinni Backcountry–North Island.  Aðrar myndir eru YOW – Icelandic for yes, Those moments, Carpland og Out of Touch (sjá má sýnishorn þessara mynda með því að smella á heiti þeirra).

    Miðaverð á RISE Fluguveiðikvikmyndahátíð 2015 er 2.490,- og miða má kaupa hér.

    rise_3

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Febrúarflugur

    25. janúar 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Flugur og skröksögur hafa stofnað til viðburðar á Facebook sem ber heitið Febrúarflugur. Markmið þessa viðburðar er að fá sem flesta veiðimenn og hnýtara til að birta upplýsingar um þær flugur sem þeir ætla sér að nýta í veiðinni næsta sumar.

    Ef vel tekst til þá ættu að birtast myndir og/eða frásagnir af þeim flugum sem veiðimenn eru að hnýta í febrúar, að lágmarki ein á viku frá hverjum þátttakanda. Mögulega sjá menn þá nýjar og spennandi flugur sem bráðvantar í boxið fyrir sumarið.

    Veiðimenn eru hvattir til að deila þessum viðburði sem víðast, það kemur örugglega til með að kenna ýmissa grasa í boxum veiðimanna þegar upp verður staðið í lok febrúar.

    fos_febflugur

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • 2015

    1. janúar 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    2015

    Eins og venjulega er fyrsta færsla ársins kveðja til þeirra sem fylgt hafa þessari síðu á Facebook, Google+ eða Twitter á liðnum árum. Nýtt ár færir okkur ný tækifæri og þá er eins gott að hafa dagatal við hendina. Þetta árið stækkar dagatalið okkar og við birtum nú tímasetningar og flóðhæð ár- og síðdegisflóða fyrir hvern einasta dag ársins. Dagatalið er hægt að nálgast með því að smella hérna.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 52 53 54 55 56 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar