Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Heyvötn

    21. apríl 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Smelltu til að skoða
    Smelltu til að skoða

    Ekki eru öll vötn jafn fengsæl á Skagaheiði, mögulega vegna lélegrar ástundunar. Nú í sumar er mögulega lag að hækka aflatölur Heyvatna á Skaga, leggja fengsælustu staðina á minnið og senda mér upplýsingar þannig að ég geti merkt þá á kortið. Sjálfur hef ég lengi haft það á tilfinningunni að vötnin ættu að gefa þokkalega á stöng, en ekki prófað ennþá.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Fossvatn

    16. apríl 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Smelltu til að skoða
    Smelltu til að skoða

    Næsti nágranni Ölvesvatns á Skaga er komin á síðuna, Fossvatn. Svo stutt er á milli þessara vatna að við liggur að fiskurinn stökkvi á milli þeirra. Grínlaust er mikill samgangur fisks á milli vatnanna um Eiðsá og þar má setja í stóra urriða, hitti maður á þá.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Vorblót Ármanna

    15. apríl 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Ármenn efna til Vorblóts n.k. laugardag kl.14  Þá verður vori og nýrri vertíð fagnað í faðmi fjölskyldu og vina í Árósum, félagsheimili Ármanna, Dugguvogi 13 (sjá kort)  Á blótinu verður boðið upp rjóma- og brauðtertur að hætti hússins ásamt veglegu happdrætti þar sem kennir ýmissa og ekki síður girnilegra vinninga ef að líkum lætur.

    Flugur og skröksögur hafa það fyrir satt að meðal vinninga í happdrættinu verði gjafabréf frá Forlaginu og Kristjáni Friðrikssyni (#861) upp á rétt óútkomna veiðibók, Vatnaveiði -árið um kring.

    Til að gera dagskránna ekki of þunglamalega verður einnig boðið upp á stöku ræður og eflaust nokkrar veiði- og skemmtisögur að hætti Ármanna. Vorblót Ármanna er hin prýðilegasta skemmtun og um að gera að láta það ekki framhjá sér fara.

    Að endingu vilja Ármenn minna á Flóamarkaðinn sem verður í Árósum í kvöld, miðvikudag kl.20

    vorblot

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Selvatn

    14. apríl 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Smelltu til að skoða
    Smelltu til að skoða

    Enn eitt vatnið af vatnsvæði Selár er komið á síðuna. Í þetta skiptið er það vatnið sem svæðið dregur nafni sitt óbeint af, Selvatn.

    Vatnið er gjöfult á urriða og margir hafa gert góða veiði í vatninu, snemma vors, á miðju sumri og langt fram á haustið.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Flóamarkaður Ármanna

    11. apríl 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Miðvikudagskvöldið 15. apríl ætla Ármenn að efna til Flóamarkaðar þar sem kostur gefst á að koma ónotuðu veiðidóti í verð eða góðra manna hendur. Þarna gefst frábært tækifæri til að koma gömlum stöngum, hjólum, vöðlum og hnýtingarverkfærum á framfæri og gera mögulega úr þessu smá aur sem nýta má til að kaupa það sem vantar af öðrum veiðimönnum á staðnum.

    Þegar hafa margir félagsmenn og söluaðilar boðað komu sína og kennir ýmissa grasa í því sem boðið verður uppá. Þetta er frábært tækifæri til að losa aðeins um pláss í geymslunni eða fylla í auðar skúffur.

    Ármenn sjálfir hyggjast selja nokkrar lausar stangir í Hlíðarvatni í Selvogi áður en þær fara í almenna sölu á leyfi.is  Það getur því borgað sig að taka með sér smá aur á miðvikudagskvöldið og kíkja á Flóamarkaðinn.

    Flóamarkaðurinn verður haldinn í Árósum, félagsheimili Ármanna að Dugguvogi 13 (sjá kort) og hefst stundvíslega kl.20:00. Allir velkomnir með gamalt og nýtt

    armenn

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Stífluvatn

    9. apríl 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Smelltu til að skoða
    Smelltu til að skoða

    Næsta vatn af vötnunum á Skagaheiði er Stífluvatn. Heldur minna en Ölvesvatn, en með samgangi við vatnið um lítinn læk sem rennur úr Stífluvatni.

    Heldur færri sögum fer af veiði í þessu vatni heldur en Ölvesvatni, en fiskur er þar. E.t.v. hafa fáir lagt leið sína í vatnið undanfarin ár því ekki er akfært að vatninu og ganga þarf suður fyrir Ölvesvatn til að komast að því.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 50 51 52 53 54 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar