Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Það sem gefur þessu gildi

    23. júní 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Það getur verið tvíeggjað að gefa ráð um stangveiði, staði eða aðferðir. Stundum er eins víst að engin ráð dugi þegar veiðigyðjan er ekki í stuði, veðurguðirnir leika einleik á rok og rigningu eða veiðimaðurinn fer ótroðnar slóðir og lendir utan veiðisvæðis. Þá getur ráðgjafinn lent á milli og verið kennt um ófarirnar.

    Almennt eru veiðimenn hinir ljúfustu og tilbúnir að gefa góð ráð, jafnvel í tíma og ótíma, umbeðnir eða ekki. Fyrir utan þær óumbeðnu reynslusögur sem ég hef sett niður á þennan vef, þá kemur það annað slagið fyrir að mér berast sérstakar fyrirspurnir um góða veiðistaði. Þó ég sé ekkert sérstaklega hörundsár, þá svarar maður yfirleitt nægjanlega loðið og með nokkrum fyrirvörum þannig að ef illa fer verði manni ekki kennt um gæftaleysið.

    Um daginn fékk ég beiðni um upplýsingar að barnvænu svæði, helst með fiski, fyrir tvo fisklausa unga veiðimenn með brennandi áhuga. Ég setti nokkra staði og aðferðir niður á blað og svaraði pabbanum og lagðist síðan á bæn, vonandi kæmi þetta að einhverju gagni. Og viti menn, nokkrum dögum síðar barst mér kveðja frá veiðimönnunum ungu; Meðalfellsvatnið klikkaði ekki.

    Bræðurnir Daníel Hilmar (4 ára) og Ísak Heiðar (verður 6 ára á morgun)
    Bræðurnir Daníel Hilmar (4 ára) og Ísak Heiðar (verður 6 ára á morgun)

    Þessir bræður eiga örugglega eftir að koma fyrir á fleiri veiðimyndum í framtíðinni, flottir og þokkalega hamingjusamir með aflann úr Meðalfellsvatni. Það er ljóst hvað pabbi þeirra, Hilmar Hilmarsson kemur til með hafa fyrir stafni í sumar, hér hefur veiðibakterían komið sér hressilega fyrir. Ef eitthvað gefur ráðgjöf gildi, þá eru það þessi augnablik. Til hamingju strákar, vel gert.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Bókakynning

    22. júní 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Í tilefni að útkomu bókarinnar Vatnaveiði – árið um kring verður efnt til vísis að útgáfuhófi í Félagsheimili Ármanna, Árósum, Dugguvogi 13, miðvikudaginn 24.júní kl.17:30  Sjá staðetningu á korti hér.

    Boðið verður upp kaffi og með því auk þess sem höfundur áritar bókina sem verður einmitt á kynningartilboði af þessu tilefni.

    Gott væri að sem flestir sæju sér fært að boða þátttöku sína með skráningu á viðburðinn á Facebook sem opna má hér.

    Allir velkomnir!

    fos_vauk960x270

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Haukadalsvatn

    26. maí 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Smelltu til að skoða
    Smelltu til að skoða

    Nú hefur verið bætt töluvert við vötnin og upplýsingar um þau hér á síðunni. Allar uppfærðar upplýsingar um vötnin innihalda nú dýptarkort og flest af nýju vötnunum innihalda einnig stærri kort sem eru okkar eigin.

    Það liggur alltaf töluverð vinna í að sannreyna upplýsingar sem koma fram á kortum, vefkort eru ekki alltaf áræðanleg varðandi örnefni og því hef ég reynt að sannreyna staðarheiti, veiðistaði o.s.frv. eins og unnt er skv. áræðanlegum heimildum.

    Síðasta vatnið í þessari atrennu er Haukadalsvatn í Dölum. Frábært veiðivatn sem er vel þess vert að gefa aukin gaum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hraunsfjarðarvatn

    21. maí 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Smelltu til að skoða
    Smelltu til að skoða

    Hraunsfjarðarvatn, vestan Baulárvallavatns á Snæfellsnesi er mörgum kunnugt þótt ég hafi aldrei veitt í því. Að vísu hef ég komið að vatninu og það sló mig strax sem djúpt, djúpt og kalt. E.t.v. hefur veðrið sem þá var haft eitthvað að segja um fyrsta álit mig á því, en djúpt er það svo sannanlega og lítið um grynningar.

    Hver veit nema sumarið sem nú er að spretta fram undan köldu vorinu færi mér eins og eina ferð vestur á nesið til að spreyta mig við vatnið.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Baulárvallavatn

    19. maí 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Smelltu til að skoða
    Smelltu til að skoða

    Vötnin tvö við Vatnaleiðina vestur á Snæfellsnesi hafa oft gefið veiðimönnum vel. Fyrra vatnið, Baulárvallavatn, kemur nú loks inn á síðuna með hefðbundnum upplýsingum, kortum og veðurupplýsingum.

    Síðara vatnið, Hraunsfjarðarvatn, fylgir svo fast á hæla Baulárvallavatns á fimmtudaginn.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hafravatn

    14. maí 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Smelltu til að skoða
    Smelltu til að skoða

    Þau eru nokkru vötnin sem eru alveg við bæjardyr höfuðborgarinnar, nánast í göngufæri. Flestir þekkja Elliðavatn og Vífilsstaðavatn, en færri leggja leið sína að Hafravatni. Sjálfur hef ég nýtt vatnið nokkrum sinnum til kastæfinga, en sjaldan farið þangað beinlínis til veiða. Fiskurinn í vatninu er þó að koma til og því ætti að vera í lagi að setja upplýsingar um það hér á síðuna.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 48 49 50 51 52 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar