Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Að lokum

    31. desember 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_nyarid

    Flugur og skröksögur líta um öxl á þessum tímamótum. Það sem við sjáum er eitt besta vatnaveiðiár sem menn muna eftir. En það er langt því frá að það sé eitthvert viðmið, því minni manna er oft minna heldur en menn þykjast muna.

    Endalausar verðhækkanir á stangveiðileyfum hafa orðið mörgum manninum að umfjöllunarefni síðustu mánuðina. Leynt og ljóst er óánægja manna með verðlagningu í öfugu hlutfalli við afla undangenginnar vertíðar, þ.e. færri fiskar í frystinum kalla á meiri óánægju með verð veiðileyfa. Það sannast enn og aftur að náttúran tekur ekkert mark á aukinni arðsemiskröfu eða gróðavon í veiðibransanum og veiði dróst mikið saman frá árinu 2013. Kallað hefur verið eftir auknum samtakamætti veiðimanna þannig að unnt sé að spyrna fótum við enn frekari hækkun veiðileyfa.

    Svona hljómar umfjöllun fjölmiðla í meginatriðum fyrir árið 2014. Það er töluvert þynnra hljóðið í þessum sömu fjölmiðlum um afkomu vatnaveiðinnar og verðlagningu veiðileyfa. Langsamlega vinsælasti kostur vatnaveiðimanna, Veiðikortið hækkar ekkert á milli ára og veiði hefur almennt farið upp á við. Að vísu kemur sumarið 2013 eins og skrattinn úr sauðaleggnum inn í sögu síðustu ára en þannig er nú einu sinni stangveiðinn. Sé kalt á bakkanum er vatnið einnig kalt og þá heldur fiskurinn sig til hlés, jafnt í vötnum sem ám. Þrátt fyrir að sumarið 2014 hafi ekki verið sérstaklega sólríkt, þá var hlýtt og nóg af fersku vatni í vötnunum okkar, fiskum og veiðimönnum til ánægjuauka þannig að aflatölur voru með því besta sem sést hefur í langan tíma.

    Það er ef til vill merki um aukið sambandsleysi veiðimanna við náttúruna að sveiflur í aflabrögðum virðst sífellt kom fleirum og fleirum á óvart. Það getur með sama hætti þótt vísbending um ákveðið sambandsleysi þegar menn þakka skammtíma aðgerðum mannanna aukinn afla. Langtímaáhrif inngripa okkar eru aftur á móti til þess eins fallin að spilla afrakstri þróunar sem hefur tekið náttúruna hundruði ára að byggja upp. Látum náttúruna í friði og lærum að njóta hennar af skynsemi og aðgát, þá þarf aldrei að koma til okkar afskipta, sem er væntanlega affærasælast fyrir allt og alla.

    Af veiðiferðum mínum er það helst að frétta að fyrsti fiskur ársins var bjartur og fallegur 60 sm. birtingur úr Meðalfellsvatni á fyrsta í Veiðikorti, þ.e. 1. apríl. Ellefu dögum síðar skrapp ég í Eldvatnið og braut blað í sögu minni sem veiðimaður; braut toppinn á uppáhalds stönginni minni. Lítið var síðan að frétta af veiði framan af sumri sem ég skýri með lélegu tíðafari og ýmsum öðrum afsökunum. Reyndar slysaðist ég til að taka urriða á Þingvöllum þegar allur urriði átti að vera horfinn af bleikjuslóð og þykir mér enn miður að ég skyldi hafa truflað þann góða fisk. Ég er nefnilega haldinn þeirri firru að sleppa því að sleppa á Þingvöllum. Ef einhver stofn er í slíkri hættu að mælt sé með því að veiða og sleppa, þá kýs ég að sleppa því að veiða og einbeiti mér að öðrum fiskum eða vötnum, nóg er af urriða á öðrum slóðum sem má taka með sér heim í soðið.

    Eftir þjóðlega heimsókn á Þingvelli þann 17.júní tók heldur að lifna yfir veiðinni og við tók ein skemmtilegasta ferð ársins, Veiðivötn í fyrsta skiptið. Síðar í júlí færðum við hjónin okkur suður fyrir Tungnaá og lögðum eiginlega Framvötnin í einelti það sem eftir lifði sumars. Aldrei spurning um að veiða og sleppa á þeim slóðum, bara veiða og taka, slík er ofgnótt bleikju á svæðinu.

    Heildaryfirlit fyrir veiðiárið okkar hjóna má finna hér.

    Árið á vefnum var eiginlega við það sama og verið hefur á umliðnum árum. Tæpar 81.000 heimsóknir á árinu og yfir 100 nýjar greinar og færslur. Af þessum heimsóknum skruppu yfir 2.500 yfir á önnur veiðiblogg og 25.000 á aðrar veiðitengdar síður. Samtals hafa tæplega 267.000 heimsóknir heiðrað síðuna frá því hún fór í loftið og stígandinn á milli ára er jafn og öruggur.

    Ég framkvæmdi þá breytingu á árinu að færa Facebook færslur og tilkynningar yfir á sérstaka síðu fyrir Flugur og skröksögur en fram að þessu hef ég nýtt mína persónulegu síðu fyrir FOS. Fylgjendur nýju síðunnar eru nú þegar orðnir 175 en maður getur alltaf á sig blómum bætt og á nýju ári ætla ég að laumast til að efna til smá ‘like’ leiks til að afla nýrra fylgjenda. Meira um það síðar.

    Til allra sem fylgst hafa með þessu pári mínu; kærar þakkir fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða, nýja árið verður bara ennþá öflugra og alltaf jafn ókeypis á fos.is

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hátíðarkveðja

    24. desember 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_jol2013

    Flugur og skröksögur halda ró sinni yfir hátíðarnar og njóta þess að eyða tímanum með sínum nánustu. Við sendum ykkur öllum, okkar bestu óskir um gleðilega hátíð.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Sauðleysuvatn

    11. desember 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Sauðleysuvatn
    Sauðleysuvatn

    Þá er síðasta vatnið af Framvötnunum komið á síðuna, Sauðleysuvatn. Um daginn biðlaði ég til lesenda um álit þeirra og innlegg pottinn yfir möguleg ný vötn eða vatnasvæði á síðuna, en heldur var fátt um svör. Aðeins ein uppástunga barst, Veiðivötn. Þar sem ég hef aðeins lagt leið mína einu sinni í þau ágætu vötn í veiði og þekking mín á þeim nokkuð takmörkuð, þarf ég aðeins að leggjast undir feld áður en ég afræð að leggja í þá yfirferð.

    Hafi lesendur einhverjar ábendingar um vötn eða vatnasvæði sem þeir kynnu að hafa áhuga á að sjá hér á síðunni, ekki hika við að senda mér ábendingu með því að smella hérna.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Veiðikortið 2015

    7. desember 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    vk2015Það er komið, það er komið. Veiðikortið 2015 er komið og með því fylgir eins og venjulega jólabók ársins, Bæklingur Veiðikortsins.

    Eins og venjulega er hægt að panta veiðikortið á netinu og fá það sent heim. Biðina eftir póstinum má síðan stytta með því að skoða bæklinginn á netinu hérna.

    Vötnin eru 38 þetta árið. Geitabergsvatn, Þórisstaðavatn og Eyrarvatn eru komin aftur en Hópið tekur sér pásu þetta árið.

    Að vanda er ýmislegt áhugavert lesefni í bæklinginum; ítarlegar lýsingar á vötnunum, ýmsir fróðleiksmolar um veiði og svo grein um dulda veiðifélaga sem spretta fram þegar minnst varir. Sjá bls. 28.

    Það skemmir svo ekki fyrir að verð Veiðikortsins er það sama og í fyrra 6.900,- kr. Kostakjör að endalausri ánægju og afþreyingu.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Jólamarkaður JOAKIM’S

    5. desember 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    joakimsmarkNú er aldeilis lag fyrir veiðimenn að gera góð kaup. JOAKIM’S opnar jólamarkað að Skútuvogi 10F þann 6.des. kl.11

    Fjöldi frábærra tilboða á flugustöngum, hjólum, töskum, vöðlum og hnýtingarvörum. Markaðurinn verður opinn sem hér segir:

    Laugardaga frá 11:00 – 16:00

    Mánudaga frá 13:00 – 20:00

    Þriðjudaga til föstudaga frá 13:00 – 18:00

    Allar nánari upplýsingar má finna hér og tilboðsverðin hér.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Löðmundarvatn

    4. desember 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Löðmundarvatn
    Löðmundarvatn

    Rétt sunnan Löðmundar, eins mikilfenglegasta fjallsins að Fjallabaki, hvílir eitt af nafntogaðri vötnum Framvatna, Löðmundarvatn. Á ýmsu hefur gengið í sögu þessa vatns síðustu áratugina, hæðir og lægðir. Löðmundarvatn er næst-síðasta vatnið í röð Framvatna sem kemur hér fram á síðunni.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 53 54 55 56 57 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar