Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Skálduð veiðisaga

    9. ágúst 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Það kemur ekki oft fyrir að hér birtast greinar eða frásagnir frá öðrum en sjálfum mér, hvað þá að ég skrifi eitthvað í nafni annarra. En nú ber svo undir að ég skrifa í nafni hins óþekkta veiðimanns. Um er að ræða skáldaða frásögn af veiðiferð í Löðmundarvatn sunnan Tungnaár.

    Mikið var veðrið glimrandi gott 30.júlí þegar við fjölskyldan skelltum okkur í Löðmundarvatn. Við stoppuðum góða stund við vatnið og gerðum gríðarlega góða veiði. Bleikjan var einstaklega viljug að taka, en frekar var hún smá. Þar sem ég hafði heyrt eitthvað af því að maður ætti ekki að eira bleikjunni þarna þótt smá væri, þá tókum við allan fisk á land og hentum í flæðarmálið. Helv… refurinn og minkurinn hefðu þá eitthvað að éta. Svo var himbrimi á vatninu og hann gæti örugglega gert sér smælkið að góðu.

    Fyrstu fiskarnir
    Refafóður

    Fljótlega misstu krakkarnir áhugann á veiðinni og fóru að leika sér en við hjónin veiddum langt fram í myrkur. Svo mikill varð aflinn að fjaran dugði ekki lengur þannig að ég tróð smælkinu í plastpoka þannig að auðveldara væri fyrir mömmu að henda því í ruslið sem vargurinn vildi ekki. Nú er bara að bíða eftir því að mamma mæti á svæðið og taki til eftir mig. Það verður ekki af því skafið hve dásamlegt það er að njóta náttúrunnar góða kvöldstund.

    Hrimbrimamatur
    Hrimbrimamatur

    Svo mörg voru þau orð. Kannski var sagan á bak við þessa dauðu fiska sem við hjónin gengum fram á við bakka Löðmundarvatns að kvöldi 30.júlí bara einhver allt önnur. Hver veit?

    Eftir stendur að aflapokinn hafði sprungið,  lág tómur í flæðarmálinu og fjaran eins og eftir dínamítveiðar, fiskur út um allt. Því miður hefur viðkomandi veiðimaður ekki gert sér grein fyrir því að hringrás orms í fiski verður aldrei rofinn með því að skilja fisk eftir fyrir fugl. Að gauka einum og einum fiski að ref eða mink er nokkuð saklaust, en fuglinn er hýsill sýkingar og hann skilar henni örugglega aftur í vatnið og viðheldur þannig ormi í fiskinum okkar.

    Það er alveg rétt að alla bleikju skal taka á land í Framvötnum, þar veitir ekki af allri þeirri grisjun bleikju sem við verður komið. Að sjálfsögðu verður maður þá að taka viðkomandi fisk með sér og koma honum þannig fyrir að vargurinn komist ekki í hann.

    Ég hef svo sem ekkert fleira að segja þessum veiðimanni en smá skilaboð til mömmu hans: Þú þarft ekki að mæta og taka til eftir strákinn, ég tíndi þessa fiska saman og kom í ruslið hjá stelpunum við Landmannahelli.

    Það sem fór í ruslið
    Það sem fór í ruslið

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Félagsvera

    11. júní 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    861Það er sem sagt opinbert að ég er orðin félagsvera. Þetta skemmtilega skírteini beið í póstkassanum mínum þegar ég kom heim í dag.

    Fyrir nördana er þetta náttúrulega alveg stór skemmtilegt númer; 861 er jú ASCII kóði íslenska stafasettsins í tölvum, eitthvað sem kerfisstjórinn gleymir víst aldrei.

    Ármaður virðir: Íþrótt, Bráð, Land og Annan mann

    Ummæli

    11.06.2014 – Friðrik Helgi Árnason: Frábært vertu velkominn í hópinn. Kv Friðrik Helgi, ármaður #832

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Úr Selvoginum

    18. maí 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Ég átti leið framhjá Hlíðarvatni í Selvogi í gær og það gladdi mitt litla hjarta að sjá að veiðimenn voru í öllum veiðihúsum við vatnið. Að vísu stóð ekki sérlega vel á þegar ég renndi framhjá, því nokkuð hressilegir skúraleiðingar gengu yfir eða eins og ferðafélagi minn sagði; Það er eiginlega alveg mígandi blíða hérna. En veiðimenn létu nokkra rigningardropa ekkert á sig fá. Einn var á veiðum undan húsi Selfyssinga, einn að gera sig kláran hjá Hafnfirðingum, einn í Botnavíkinni, væntanlega úr húsi Árbliks, einn að gera sig kláran úr húsi Ármanna og töluverður fjöldi við hús Stakkavíkur.

    Það er ánægjulegt að veiðimenn blási lífi í gamlar glæður og endurveki ástfóstur við þetta glæsilega veiðivatn, aukin ástundun er jú öruggasta leiðin til að hífa veiðitölurnar upp.

    Hlíðarvatn í Selvogi
    Hlíðarvatn í Selvogi

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Nóg um að vera

    14. maí 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    svfr_logoÞað verður nóg um að vera næstu helgi. SVFR heldur upp á 75 ára stórafmæli sitt í Elliðaárdalnum á laugardaginn frá kl.13 – 16. Þar verður boðið upp á kastkeppni, gönguferð með ánni, hnýtingaráð, ratleik og sitthvað fleira. Og eins og góðu afmælisbarni sæmir er öllum boðið, félagsmönnum og ófélagsbundnum. Eflaust verður fjör í dalnum á laugardaginn.

    joakims_logoÁ sunnudag boðar svo JOAKIM’S til árlegrar samkomu á Klambratúni kl.13 þar sem gestum og gangandi er boðið að prófa stangir, línur og sitthvað fleira sem JOAKIM’S hefur að bjóða. Kastsnillingarnir Stefán Hjaltested og Júlíus Guðmundsson munu svo leiðbeina með köst og val á stöngum. Skemmtileg helgi framundan.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Joakim’s á Klambratúni

    12. maí 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nú er rétt að taka frá tíma sunnudaginn 18.maí frá kl.13 því þá verður blíða á Klambratúni eins og alltaf þegar Joakim’s heldur upp á daginn.

    Joakim's 2013 á Klambratúni
    Joakim’s 2013 á Klambratúni

    Á staðnum verður allt það nýjasta í flugustöngum, fluguhjólum og línum í JOAKIM´S merkinu. Öllum verður boðið að prófa að kasta. Joakim’s hefur góða reynslu af því að menn prófi stangir áður en þeir kaupa. Allar prufustangirnar verða á mjög góðu tilboðsverði á JOAKIM´S daginn. Stefán Hjaltested og Júlíus Guðmundsson munu leiðbeina við kastið og val á stöng og línu.

    Svo verður auðvitað boðið upp á kaffi og kleinur eins og venjulega.

    Og þeir veiða þokkalega á Joakim’s í Elliðavatninu eins og þessi mynd frá ánægðum Joakim’s eiganda ber með sér.

    Ef Engjum Elliðavatns 2014
    Ef Engjum Elliðavatns 2014

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Lesefni

    6. maí 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Þau detta alltaf reglulega inn, veftímaritin sem veiðimenn gætu haft gagn og gaman af að kíkja í. Nýjustu tölublöðin sem eru komin út eru:

    MontanaFM_spring2014 This Is FLy Issue 46 tff_mai2014 scof_spring2014 aTL_Spring2014 Kype0501 fos_stf012014

    Smelltu á mynd til að lesa blaðið

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 55 56 57 58 59 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar