Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Veiðiblogg

    1. mars 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    img_20140301_113224Það gleður alltaf þegar veiðimenn kjósa að tjá sig um flugur og veiðimennsku á netinu. Nú hefur enn einn landsþekktur veiðimaðurinn, Halldór Gunnarsson slegist í hóp bloggara og sett upp síðu undir nafninu Veiðiflugan.

    Á síðunni má nú þegar lesa ýmislegt fróðlegt frá þessum flotta veiðimanni, glæsilegt og til hamingju með flotta síðu Halldór.

    Fleiri veiðiblogg má síðan finna undir Tenglar hér á síðunni.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Þakkir

    13. febrúar 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_afsakidhleEins og dyggir lesendur hafa orðið varir við hefur orðið smá hlé á færslum hérna á síðunni frá því í byrjun febrúar. Þetta hlé orsakast ekki af neinni bilun, eingöngu af því að það er aðeins of mikið að gera á öðrum vetvangi. Hvað úr þeirri vinnu verður, ræðst vonandi á næstu dögum. Til þeirra fjölmörgu sem brugðust við beiðni minni um ljósmyndir af bleikjunum okkar um daginn; hjartans þakkir fyrir viðbrögðin. Ég verð í sambandi um leið og framvinda verkefnisins ræðs.

    Hvað varðar nýjar færslur, þá er nóg til af efni og nú þarf ég aðeins að krýja út aðeins meiri tíma í sólarhringinum til að setjast niður og koma því niður á vefinn. Sjáum til hvað komandi helgi ber í skauti sér.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Aðstoð óskast

    1. febrúar 2014
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Ágætu veiðimenn og konur. Vegna smá verkefnis sem ég er að dunda við vantar mig nokkrar ljósmyndir og biðla því til ykkar um aðstoð. Helst vantar mig myndir af bleikjuafbrigðunum okkar fjórum; dvergbleikju, murtu, kuðunga- og sílableikju.

    Myndirnar þurfa að vera í fullri upplausn, þ.e. óskornar af forritum eða vefjum og almennt í góðum gæðum. Ég get ekki lofað umbun fyrir aðstoðina, annarri en þeirri að nafn höfundar og aðrar upplýsingar sem hann kýs að verði látnar fylgja með verður getið, þ.e. komi til birtingar á vef eða prenti.

    Þeim sem sjá sér fært að aðstoða mig eru beðnir um að senda mér skilaboð eða tölvupóst á kristjfr (hjá) simnet.is

    Með fyrifram þökk,

    Kristján Friðriksson

    Lítill fengur
    Lítill fengur

    Ummæli

    02.02.2014 – Nafnlaus: Þú veist að bleikjuafbrigði á Íslandi eru svolítið fleiri en fjögur. Í Þingvallavatni einu eru fjögur afbrigði og eru þau kölluð þetta sem þú nefnir. Hinsvegar eru fjölmörg önnur vötn (flestöll bleikjuvötn landsins) með 1-3 afbrigði. Afbrigði sem líkist til dæmis Þingvallavatnsmurtu en lifir í Svínavatni er ekkert skyldara murtu en einhverju öðru afbrigði.

    Svar: Takk fyrir þarf ábendingu. Sé nú að ég hefði mátt vera nákvæmari og jafnvel mátt sleppa því að telja upp ‘Þingvalla-afbrigðin’ sem væntanlega hafa þvælst fyrir einhverjum. Að sjálfsögðu eru allar myndir einhverra þeirra tuga afbrigða sem finnast á Íslandi, vel þegnar og mér hafa nú þegar borist nokkrar frábærar myndir. Hvort sem menn luma á mynd af Gjáarlontu eða Krús úr Mývatni eða bara einhverju afbrigði öðru, þá eru allar myndir vel þegnar.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Gleðilegt nýtt ár

    31. desember 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_nyarid

    Ég óska veiðmönnum öllum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða. Árið færði síðunni rúmlega 76.000 heimsóknir á þær 195 greinar sem ég setti hér fram. Kærar þakkir fyrir öll innlitin og ummælin sem þið létuð mér og öðrum lesendum í té á árinu.

    Aflatölur ársins eru aðgengilegar hér ásamt svipmyndum frá liðnu sumri á YouTube. Fyrir þá sem hafa nýtt sér Dagatalið á síðunni, þá er 2014 klárt með hefðbundnum upplýsingum.

    Hvað nýtt ár færir síðunni margar heimsóknir get ég lítið sagt til um, en sem fyrr stefni ég á reglulegar uppfærslur og nýjar greinar með svipuðu sniði og verið hefur. Því til viðbótar eru nokkrar hugmyndir að efni og efnistökum að gerjast í kollinum á mér sem vonandi skýrast þegar nýtt ár hefur gengið í garð. Hver veit nema ég gerist svo djarfur að biðla til lesenda um smá þátttöku í efnisöflun á nýju ári.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Gleðilega hátíð

    24. desember 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_jol2013

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Með þeim söluhæstu

    19. desember 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    veidikortidÉg veit það fyrir víst að metsölulisti bókaútgefenda er ekki alveg réttur. Ein söluhæsta bókin undanfarin ár er handbók Veiðikortsins, samt er hennar aldrei getið á metsölulistunum. Pottþétt lesning yfir jólin og ekki skemmir að hún fylgir ókeypis með Veiðikortinu sem þú getur keypt hér.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 57 58 59 60 61 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar