Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Stangveiðar á Íslandi

    2. nóvember 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_stangveidaraislandiAð öllu jöfnu telst það ekki í frásögur færandi að maður kíki í bókabúð, en í þetta skiptið var það gert í mjög svo ákveðnum erindagjörðum. Ég ætlaði nefnilega að skyggnast í bækur Sölva Björns, Stangveiðar á Íslandi og Íslensk vatnabók.

    Fyrirfram vissi ég að samtals næðu þessar tvær bækur ríflega 1000 blaðsíðum og hlytu því að vera nokkurt verk, en hvorki óraði mig fyrir umfanginu eða innihaldinu. Þetta er glæsilegt verk með mörgum frábærum lýsingum og frásögnum veiðimanna, framsett á skemmtilegan og auðlesin máta sem ber höfundi gott vitni um áhuga og elju við skrif.

    Auðvitað greip egóið aðeins um sig og ég fletti í gegnum langar nafnaskrár beggja bókanna og fannst bara nokkuð til þess koma að eiga þar nokkur innlegg ásamt fjölda annarra veiðimanna og kvenna.

    Þetta eru einstaklega eigulegar bækur sem vonandi eiga eftir að rata á náttborðið hjá mér innan tíðar.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • This is Fly á Íslandi

    11. október 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    ThisIsFly042013Steve Cullen, leiðsögu- og blaðamaður drepur niður fæti á Íslandi í nýjasta tölublaði This is Fly. Alveg prýðileg grein þar sem hann segir af ferð sinni og Lyn Davis á urriðaslóðir landsins, m.a. Þingvallavatn. Það segir svolítið um greinina að yfirskrift hennar er ‘Better Luck Next Time’ en því verður væntanlega ekki að skipta á morgun, laugardag hjá þeim sem leggja leið sína á urriðadans Jóhannesar Sturlaugssonar.

    Greinina getur þú lesið með því að smella hérna.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Urriðadans um helgina

    7. október 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Urriði
    Urriði

    Næst komandi laugardag, 12. október mun Jóhannes Sturlaugsson stýra urriðadansi á Þingvöllum eins og undanfarin ár. Fregnir herma að fjöldi glæsilegra urriða séu farnir að hópa sig í Öxará nú þegar, þannig að sýningin um helgina verður örugglega glæsileg. Viðburðurinn hefst kl.13:30 á laugardaginn við bílastæðið þar sem Hótel Valhöll stóð. Fiskiteljarinn við brúnna verður skoðaður og síðan gengið upp með ánni að Drekkingarhyl. Að lokum er boðið til Fræðslumiðstöðvarinnar við Hakið þar sem Jóhannes flytur erindi um Þingvallaurriðann.

    Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast þessari einstöku skeppnu frá þeim sem best til hennar þekkirog hvet ég alla sem tök hafa á að mæta. Fjöldi gesta á síðustu árum hefur verið rétt um 300 og því eins gott að mæta tímanlega.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Næstu vikur

    22. september 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_no_adsÞær hafa e.t.v. bara verið pirrað mig, þessar auglýsingar sem hafa verið að birtast hér á síðunni, en nú er ég búinn að plæsa í þjónustu sem lokar á þær. Með þessu vonast ég til að síðan verði læsilegri og síður pirrandi fyrir þá 200-300 daglegu gesti sem líta við.

    Næstu vikur verða stútfullar af pælingum um andstreymi, bæði veiðar og bara almennt andstreymi auk þess að ég velti fyrir mér skynfærum fisksins og hvaða augum hann lítur okkur mennina. Svo er aldrei að vita hvað fellur til innan um þá rúmlega 20 pistla sem ég hef þegar soðið saman.

    Þú getur fengið tilkynningar um nýjar færslur með ýmsu móti, t.d. RSS áskrift, með Twitter eða á Facebook.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Líður að lokum?

    30. ágúst 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Eitthvað finnst mér eins og veiðiárið hjá mörgum sé orðið svolítið sölnað þessa dagana. Það er ekki laust við að maður sakni veiðifrétta á bloggsíðunum.

    Þótt veðrið hafi e.t.v. ekki leikið alveg við okkur veiðimennina síðustu vikur, þá eru í það minnsta 20 dagar eftir af tímabilinu, 30 í mörgum vötnum og haustið er oft góður tími í vatnaveiði. Svo má ekki gleyma birtinginum, hann er að koma sterkur inn núna.

    fos_graseyja
    Þótt grasið sölni er nóg eftir

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • 25. er sunnudagur

    21. ágúst 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Og þá gefst öllum kostur á að reyna fyrir sér í Hlíðarvatni í Selvogi. Hvernig væri nú að koma sér snemma heim  á menningarnótt, vakna hress og renna austur í Selvog og taka þátt í Hlíðarvatnsdeginum?

    Eins og undanfarin ár bjóða veiðirétthafar gestum og gangandi að reyna fyrir sér í vatninu frá morgni til kvölds. Það skemmir væntanlega ekki að undanfarið hafa nokkrar vænar bleikjur veiðst í Selvoginum en í ljósi þeirra fiska er ef til vill ekki út vegi að geta þess að það er einfalt mál að sleppa fiski veiddum á flugu og það er einstaklega viðeigandi þegar hryggningarfiskur hleypur á snærið.

    Viltu lesa þér til um Hlíðarvatn í Selvogi? Smelltu þá hér og lestu prýðilega umfjöllum Ármanna um vatnið eða náðu þér í Hlíðarvatnsbækling veiðirétthafanna hérna.

    Bleikjuvottar við Hlíðarvatn - ljósm.Stefán Hjaltested
    Bleikjuvottar við Hlíðarvatn – ljósm.Stefán Hjaltested

     

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 59 60 61 62 63 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar