
Í vetur sem leið tók ég nokkrar ljósmyndir sem leyndust í fórum mínum og setti hér á síðuna með þessum formála:
Það er ekki óalgengt að veiðibloggarar séu einnig áhugamenn um ljósmyndun. Því miður er það nú svo að oftar en ekki gleymir maður ekki bara stund og stað þegar maður er við veiðar, heldur einnig því að myndavélin er með í för og því verður oft minna um myndatökur heldur en efni standa til. Samt sem áður hefur manni tekist að smella af nokkrum myndum og sjálfsagt að leyfa öðrum að njóta nokkurra þeirra. Þetta eru engin listaverk, en gefa þó mögulega einhverja hugmynd um stemminguna í tengslum við vatnaveiðina.
Eitthvað hefur nú orðið minna af birtingum heldur en til stóð í upphafi, en ég hyggst bæta þar aðeins um betur á næstu dögum og vikum. Eftir ábendingu frá lesendum hef ég ákveðið að skipta fyrri myndum upp og skrifa smá texta með hverri mynd og þá helst um tökustaðinn og/eða tilefni frekar en tæknilegar útfærslur myndatökunnar. Eftir sem áður verða myndirnar aðgengilegar hér á síðunni undir Ljósmyndir.



Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 30. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið.
Miðað við höfðatölu þá eigum við Íslendingar trúlega flesta vottaða FFF kennara í heiminum og nú hafa þeir allir tekið höndum saman og boða til kastkeppni á morgun, laugardaginn 1.júní kl.11 á bak við Skautahöllina í Laugardal. Væri nú ekki tilvalið fyrir þá sem eru á ferðinni í bænum að taka þátt.