Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Upprifinn

    13. mars 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Það má með sanni segja að maður varð upprifinn eftir kynningu Geirs Thorsteinssonar á Elliðavatni í kvöld í húsakynnum SVFR, kærar þakkir fyrir mig. Stangaveiðifélagið og Veiðikortið eiga hrós skilið fyrir framtakið, vonandi verður framhald á að vatnaveiði verði gerð jafn góð skil og gert var í kvöld.

    Tenglar á bæði Elliðavatnsbækling Geirs og Þingvallavatnsbækling SVFR eru nú komnir hér inn á síðuna og munu eiga sér fastan sess hér til hliðar ásamt bæklingi Veiðikortsins og öðrum vefbæklingum. Þeir sem ekki hafa enn kynnt sér þessa bæklinga eru hvattir til þess að hlaða þeim niður hið fyrsta.

    Veidikortid2013thingvallavatnsvfrellidavatngt

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Elliðavatnsfræðsla

    12. mars 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Elliðavatn á Veiðikortinu
    Elliðavatn á Veiðikortinu

    Að gefnu tilefni og vegna nokkurra fyrirspurna sem mér hafa borist hef ég fengið staðfest hjá SVFR að fræðslukvöldið á morgun (13.03.2013) um Elliðavatn er opið öllum, ekki aðeins félögum SVFR. Nú er um að gera að drífa sig og heyra hvað Háskólarektor Elliðavatns, Geir Thorsteinsson hefur fram að færa í húsakynnum SVFR í Elliðarárdalnum kl.19:30.

    Af vef Veiðikortsins: Fræðslukvöld hjá SVFR um Elliðavatn.

    Það verður mikið um að vera á fræðslukvöldi Stangaveiðifélags Reykjavíkur á miðvikudagskvöldið 13. mars kl. 19.30.   Þá mun Geir Thorsteinsson, sem þekkir Elliðavatnið sjálfsagt manna best, kynna fyrir veiðimönnum veiði í Elliðavatni.  Vatnasvæðið hefur oft verið nefnt háskóli veiðimannsins þannig að þessi „kurs“ hlýtur að vera veiðimönnum kærkominn.

    Þeir sem vilja undirbúa sig fyrir kynninguna geta skoðað bæklinginn sem Geir hefur gefið út á rafrænu formi með því að smella hér. 

    Einnig verður hægt að kaupa Veiðikortið 2013 með afsláttarkjörum á staðnum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Utan dagskrár

    2. mars 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Ég fékk smá áskorun frá vini mínum á Fésbókinni þannig að í staðinn fyrir að lesa blaðið í morgun settist ég niður og skellti í eina flugu, algjörlega utan dagskrár. Það getur líka verið gaman að hnýta eitthvað sem ekkert vit er í.

    Randaflugan
    Randaflugan

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Krókar

    18. febrúar 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Önglahrúga
    Önglahrúga

    Eins og glöggir lesendur síðunnar tóku eftir fyrir skömmu, fékk ég smá hjálp við hnýtingarnar sem urðu til þess að gamlir krókar dúkkuðu upp úr krókaboxinu mínu. Þegar ég réðst á hrúguna valdi ég þá leið að flokka krókana með einföldum samanburði, án þess að leiða nokkuð hugann að merktum stærðum þeirra. Það kemur e.t.v. engum vönum hnýtara á óvart að hrúgurnar mínar urðu nokkuð fleiri heldur en merkingarnar í boxinu sögðu til um. Sem dæmi get ég nefnt að af #12 sem ég taldi mig eiga í lengdum Standard, 1XL og 2XL komu fimm hrúgur. Áferð krókanna sagði mér auðvitað að hér væru í það minnsta 3 mismunandi framleiðendur á ferðinni og lengdirnar töluvert mismunandi hjá þeim öllum. Þannig endaði ég með einhverjar millistærðir þegar ég var búinn að taka frá þá styðstu, miðlungs og lengstu.

    Krókur
    Krókur

    Auðvitað vaknaði forvitnin hjá mér og ég lagðist í netið í skýringaleit. Sem sagt; smátt og smátt hafa framleiðendur reynt að sammælast um hver stærð önguls #10 sé, þ.e. bilið á milli odds og leggjar ( 8 á myndinni hér til hliðar ) og útbúa einhvern staðal þannig að þegar við kaupum #10 frá Mustad er bilið jafn stórt og á #10 frá Kamasan. Svo virðist sem frændur okkar í Noregi hafi vinninginn því flestir framleiðendur hafa sæst á að nota stærðarflokkun Mustad sem viðmið.

    Þessar aðlaganir framleiðenda hafa orðið þess valdandi að nokkuð reglulega hafa krókar framleiðenda skipt um vörunúmer og stærðarflokkun síðustu árin með tilheyrandi óþægindum fyrir veiðimenn en á sama tíma hafa stærðirnar staðlast. Aftur á móti virðist vera aðeins lengra í það að framleiðendur komi sér saman um samræmda merkingu fyrir lengd króka, þar kennir ennþá ýmissa grasa sem ég fékk sko heldur betur að kenna á þegar ég sorteraði hrúguna mína. Ég sem sagt sat uppi með mun fleiri lengdir í hverri stærð heldur en ég hafði nokkurn tímann keypt.

    Á öllu þessu rápi mínu um netheima hrasaði ég auðvitað um alls konar samanburðartöflur á krókum ýmissa framleiðenda, sumar flóknari heldur en aðrar, aðrar einfaldari. Til gamans tók ég nokkrar þessara taflna, sneið af þeim króka sem mér þóttu utan áhugasviðs og framleiðendur sem ég hef aldrei heyrt nefnda. Úr varð mini-útgáfa sem hef sett hér á síðuna undir Töflur / Krókar. Til að einfalda samanburð smellti ég síðan myndum af umræddum krókum inn í töfluna til glöggvunar.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • RISE 2013

    7. febrúar 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    rise2013Nú er komið að því, RISE 2013 verður haldin í Bíó Paradís, fimmtudagskvöldið 7. mars. Eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá Stjána Ben. opnar húsið kl.19 en sýningar hefjast kl.20.

    Myndirnar sem sýndar verða í ár eru; The Arctic, Predator, Only the rivers knows og Jungle fish. Sýnishorn úr myndunum má sjá með því að smella á heiti þeirra. Endilega fylgist með á heimasíðu RISE eða á Facebook.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Aðvörun: Kettir

    22. janúar 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Önglahrúga
    Önglahrúga

    Svona litu nú önglarnir mínir út þegar ég var búinn að sópa þeim saman af gólfinu í hnýtingarhorninu mínu í morgun. Ég á nefnilega ketti sem greinilega ætluðu að hjálpa mér eitthvað við hnýtingarnar og steyptu önglaboxinu mínu í gólfið í nótt sem leið. Eins gott að ég er búinn að hnýta vel á annað hundrað flugna, nú eru bara u.þ.b. 300 stk. til að sortera niður í stærðir í kvöld.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 62 63 64 65 66 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar