Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Nei, nú er nóg komið

    24. nóvember 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Örvæntingarfull þurrfluga

    Ég hef verið að baksa við þurrflugurnar í morgun, en nú er mér öllum lokið. Þær hafa allar drukknað og sú síðasta sem ég prófaði í vatnsskálinni var svo örugg um að hún færi sömu leið og systur sínar að hún tók með sér björgunarhring.

    Ég verð víst að endurskoða eitthvað fjaðrirnar mínar og aðferðir ef ég ætla að veiða eitthvað á þurrflugu næsta sumar.

    .

    Ummæli

    24.11.2012 – Hilmar: Nei nei nei, þú ert rétt að byrja. Lenti í svipuðu dæmi þegar ég var að byrja! En þetta reddar málinu: Árvík  Aðeins nánar ( sjá HOW TO USE): Loonoutdoors Þetta svínvirkar.

    mbk, Hilmar

    24.11.2012 – Hilmar: En ATH ekki nota Hydrostop á CDC fjaðrir, það eyðileggur þær.

    mbk, Hilmar

    Svar: Já, frúin kom með undradolluna sína og smurði einhverju á eitt kvikindið og sú lifði í það minnsta 2 klst. í baðinu án þess að sökkva. Kannski á ég mér einhverja von, verð að prófa þetta. Takk fyrir ábendingarnar.

    E.S. það sem frúin lumaði á er: FlyTop 

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Myndarlegar flugur

    18. nóvember 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nú er ég búinn að uppfæra flugulistann hér á síðunni með myndum af öllum flugunum. Eftir sem áður er listinn í stafrófsröð og tenglar úr honum yfir á uppskriftir og upplýsingar um allar flugurnar. Flugulistann má nálgast í valmyndinni hér að ofan eða einfaldlega með því að smella hér.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Elliðavatn komið á Veiðikortið

    2. nóvember 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Samningur í höfn

    Úr fréttatilkynningu Veiðikortsins: Veiðikortið ehf. og Veiðifélag Elliðavatns hafa skrifað undir samning til þriggja ára um aðild Elliðavatns að Veiðikortinu og tekur samningurinn gildi strax á komandi veiðitímabili. Veiði hefst í vatninu Sumardaginn fyrsta 2013. Svæðið sem um ræðir er Elliðavatn, Helluvatn, Hólmsá auk Nátthagavatns.

    Meira um þessi stórskemmtilegu tíðindi á veidikortid.is

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Póstleikur veida.is

    30. október 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nú er að hefjast póstleikur veida.is þar sem heppnir þátttakendur geta unnið sér inn glæsilegt flugubox úr smiðju Júlla í Flugukofanum. Til að komast í pottinn þarf, eins og kemur fram á vef veida.is, aðeins að gera eitthvað eitt af eftirfarandi:

    • Skrá þig á póstlistann
    • Deila þessari frétt meðal vina þinna
    • Senda fréttabréf veida.is áfram til einhvers sem þú telur að vilji skrá sig á póstlistann

    Meðal kosta póstlistans: Frítt fréttabréf – upplýsingar um ný veiðileyfi og veiðisvæði – aðgangur að tilboðum veiða.is.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Nýr jakki, sama röddin

    19. október 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nú hafa Flugur og skröksögur eignast sitt eigið lén: fos.is Gamla slóðin (https://kristjfr.wordpress.com) en enn í fullu gildi en auðvitað mun auðveldara að muna þá nýju. Eins og Bo sagði  um árið; Nýr jakki, sama röddin.

    Ummæli

    22.10.2012 – Guðmundur: Það er allt annað að sjá þig…..
    kv Guðmundur

    Svar: Já, segðu.

     

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Haust

    17. október 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Kannski eru flestir veiðimenn skriðnir í vetrarhýðið, en fyrir okkur sem erum ennþá vakandi er ýmislegt áhugavert að gerast þrátt fyrir að veiðitímabilinu sé að mestu lokið. Sem dæmi um frábæra haust skemmtun má nefna að urriðinn á Þingvöllum, og eflaust víðar, sýnir sínar flottustu hliðar þessa dagana þegar hann leitar upp í Öxará til hrygningar. Stórkostlegt að sjá þá í bunkum í ánni, þó þeir hafi nú verið með rólegasta móti í kuldanum í gær þegar við hjónin renndum upp eftir. Í örstuttu spjalli við Jóhannes Sturlaugsson sem var við merkingar vildi hann þó meina að krafturinn mundi færast í hann aftur um næstu helgi þegar hlýnaði.

    Fyrir þá sem ekki vilja eða hafa tök á að skoða urriðann á Þingvöllum má svo alltaf ylja sér innandyra við að fletta haustútgáfum veftímaritanna sem eru einmitt að hellast yfir okkur þessa dagana. Margt fróðlegt á ferðinni þar.

    Haustið við Elliðavatn

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 64 65 66 67 68 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar