Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Toppurinn

    21. júlí 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Að halda úti bloggi er góð skemmtun og sérstaklega þegar það virðist vekja einhverja eftirtekt og einhverjum ánægju. Í gær, föstudaginn 20.júlí kom nokkuð óvæntur toppur í heimsóknirnar á bloggið.

    783 heimsóknir á einum degi, fyrra metið var 533 frá því um svipað leiti í fyrra og nú hafa innlitin á bloggið skriðið yfir 85.000 frá því ég byrjaði á þessari dellu í maí 2010. Ég hef sagt það áður og segi það enn, mín laun fyrir þetta spjall eru heimsóknirnar og mér finnst eins og ég hafi fengið einhvers konar jólabónus í gær.

    Ég hafði hugsað mér að launa lesendunum mínum innlitin þegar nýjum toppi væri náð og nú fer ég á fullt að skoða málið í samvinnu við góða aðila. Meira um það þegar málin skýrast. Bestu þakkir fyrir mig, nú er ekkert annað að gera en að setjast niður og sjóða saman greinar fyrir næstu vikur…. gott að nýta rokið og rigninguna til þess svona inn á milli veiðiferða.

    Ummæli

    21.07.2012 – Gústaf Ingvi: Þetta er líka stór skemmtileg síða hjá þér og áttu hrós skilið fyrir. keep up the good work :)

    23.07.2012 – Sigurjón: Þetta er frábær síða sem ég er farinn að lesa reglulega svo það er ekkert skrýtið að hún sé farin að vekja athygli. Takk fyrir mig.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Fluguköstin

    16. júlí 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Ég hafði orð á því um daginn að nokkuð skemmtilegt stæði til hjá Berki Smára, FFF flugukastkennara, og það kom í ljós á mbl.is í dag. Fyrsta myndbandið af sjö þar sem Börkur fer í gegnum m.a. The Essentials of Fly Casting eða því sem næst. Fyrsta myndbandið er komið í loftið, endilega skoðið það hér og fylgist með þeim næstu. Frábært að fá svona atriði beint í æð á svona flottann hátt, það líða vonandi ekki margir dagar þar til við sjáum #2.

    Ummæli

    16.07.2012 – Eiður Kristjánsson: Við, næstum því, hjónin vorum hjá Berki í dag. Algörlega frábært! Strákurinn er góður kennari og það er hrein unun að horfa á hann kasta. 

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Lof

    10. júlí 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Allt of oft ber það við að við einblínum á það neikvæða í umhverfi okkar og samskiptum við náungann sbr. nýlega umræðu um slælega umgengni við Þingvallavatn og fleiri staði. Auðvitað er rétt að benda á það sem betur má fara og þá líka….. það sem vel er gert.

    Í nýjasta tölublaði Veiðislóðar, sem laumaðist í pósthólfið mitt í dag er einmitt ágæt grein um það hvenær vöðlurnar okkar eru ónýtar. Skemmtileg tilviljun ef ekki væri nema fyrir það að ég upplifði ótímabært andlát neophrene vöðlanna minna um síðustu helgi. Stígvélin einfaldlega fóru að leka víðsvegar án nokkurra sýnilegra áverka. Auðvitað fannst mér þetta frekar dapurt af ‚nýjum‘ vöðlum að vera svo ég ákvað að renna með þær, þó ekki væri nema til að sýna strákunum í Vesturröst hvernig þær hefðu farið án þess endilega að gera ráð fyrir einhverjum greiða í staðinn. En, það var nú öðru nær. Menn tóku málið föstum tökum af mikilli fagmennsku og voru fljótir að greina meinið og buðu mér nýjar vöðlur með lítilli milligjöf. Þar sem ég er með eindæmum kulvís, urðu nýjar Airflo neophrene vöðlur fyrir valinu og nú bíðum við, ég og vöðlurnar bara eftir næsta veiðitúr með óþreyju. Flott og góð þjónusta, lofið hljóta þeir sem eiga það.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Fréttaskot

    5. júlí 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Allt varð fullt á fyrsta námskeiðinu hjá Berki Smára á þriðjudaginn, en örvæntið ekki því auka byrjendanámskeið verður n.k. miðvikudag 11. júlí! Nú er bara að rífa sig upp úr sófanum og smella sér á námskeið.

    Byrjendanámskeið eins og það sem var haldið síðastliðinn þriðjudag verður haldið miðvikudaginn 11. júlí. Nánari lýsingu er hægt að nálgast á heimasíðu Barkar undir Kastnámskeið í júlí. Skráning er á borkur.smari@gmail.com eða í síma 666-1990.

    Svo hef ég öruggar heimildir fyrir því að strákurinn er með nokkuð skemmtilegt í bígerð næstu daga og vikur, fylgist með.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Aldrei verður góð….

    26. júní 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Börkur Smári

    Aldrei verður góð vísa of oft kveðin. Að heimsækja góðan kastkennara er gulls í gildi. Nú ætlar Börkur Smári Kristinsson, FFF flugukastkennari að halda námskeið fyrir byrjendur og lengra komna á Miklatúni í júlí. Tímasetningin á þessum námskeiðum er alveg hreint frábær, öll byrja þau kl.19 og standa í 2 klst. þannig að enginn hefur afsökun fyrir því að komast ekki sökum vinnu.

    Nú er bara að drífa sig, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn, það hafa allir gott af því að fá smá tilsögn þó ekki væri nema til að leiðrétta einhverjar villur sem hafa grafið um sig í kastinu. Allar nánari upplýsingar á blogginu hans Barkar sem má nálgast hérna.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Veiðidagur fjölskyldunnar 2012

    19. júní 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 24. júní. Þessi árvissi viðburður er tilvalinn fyrir þá sem vilja kynna sér stangveiði eina dagstund án endurgjalds. Fjöldi vatna, 28 að tölu verða opin almenningi; Elliðavatn, Vífilstaðavatn, Meðalfellsvatn, Þingvallavatn fyrir landi Þjóðgarðsins , Úlfljótsvatn, Geitabergsvatn, Þórisstaðavatn, Eyrarvatn, Langavatn á Mýrum, Hítarvatn, Vatnasvæði Lýsu, Hraunsfjarðarvatn, Baulárvallavatn, Haukadalsvatn, Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði, Syðridalsvatni í Bolungarvík, Hópið, Höfðavatn, Vestmannsvatn, Botnsvatn, Ljósavatn, Hraunhafnarvatn, Æðarvatn, Arnarvatn, Kringluvatn, Urriðavatn, Langavatn í Breiðdal, Víkurflóð og Þveit. Nánar um veiðidaginn á heimasíðu LS og í bæklingi sem nálgast má hér.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 66 67 68 69 70 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar