Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • 38% uppsveifla

    13. október 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Uppsveifla

    Það er einhver bölvaður púki í mér í dag. Á sama tíma og laxveiði hefur hrunið um 39% á milli ára og laxveiðileyfi hafa hækkað um (örugglega) annað eins, gefa nýjustu tölur silungsveiðinnar á mínu heimili til kynna að útlagður kostnaður vegna leyfa hafi staðið í stað á milli ára en uppsveifla í afla sé rétt um 38%.

    Ef svo fer sem horfir, að maður sé búinn að leggja stönginni þetta árið, þá standa aflatölur okkar hjóna í 108 bleikjum í ár á móti 73 í fyrra. Uppsveifla um 48%. Urriðar í ár eru 65 á móti 52 í fyrra, uppsveifla um 25%. Samtals gerir þetta 173 fiska í ár á móti 125 í fyrra og það gerir 38% uppsveiflu þrátt fyrir einstaklega kalt og langdregið vor.

    Ummæli

    15.10.2012 – Urriði: Gaman að heyra! Átti sjálfur svipað sumar, eyðslan stóð í stað ef litið er til veiðileyfakaupa en bensínkostnaður var þó töluvert meiri!

    Svar: Já, ætli maður verði ekki að viðurkenna að ‘ferðakostnaður’ hafi eitthvað aukist á milli ára. Ætli maður skoði ekki dísel útgáfu við næstu endurnýjun jepplingsins, verst hvað stofnkostnaðurinn er töluvert hærri.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Síðasti sjéns

    30. september 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Jamm, það er 30.september í dag og síðasti sjéns að bregða sér í megnið af vötnunum á Veiðikortinu. Þrátt fyrir að mjög hefur dregið úr veiði síðustu vikur, þá er alltaf von. Vötnin sem loka eftir daginn í dag eru; Kleifarvatn á Reykjanesi, Úlfljótsvatn, Ljósavatn, Arnarvatn, Hraunhafnarvatn, Æðvarvatn, Baulárvallarvatns, Haukadalsvatn, Hraunsfjarðarvatn, Hraunsfjörður, Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði, Laxárvatn og Hólmavatn í Dölum, Kleifarvatn og Mjóavatn í Breiðdal og Þveit við Hornafjörð.

    Ekki má gleyma því að sum þessara vatna eru fiskgeng frá sjó og því ekki loku fyrir það skotið að hægt sé að krækja sér í einn slíkan, svona að hausti. Svo eru haustlistaferðir alltaf ágæt afsökun.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Flensa, er góð

    15. september 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Flensa

    Ef maður er nú á bjartsýnu nótunum þá er ekki alsæmt að liggja í rúminu með flensu, þ.e. svo lengi sem maður hefur eitthvað fyrir stafni. Nú á þriðja degi flensu hefur mér tekist að klára ríflega 30 greinar fyrir bloggið sem duga að mestu til loka ársins, á bara eftir að skrifa jólakveðjuna. Slatti af flugum, fullt af þurrflugupælingum, ýmislegt um tauma, flugustangir og ýmislegt annað sem ég hef átt í uppkasti síðustu mánuði. Svo sjáum við bara til hvað dettur inn þegar ég fer að fikta við væsinn á næstu vikum og hef lokið við lestur nokkurra bóka sem bíða eftir mér. Það er alltaf eitthvað….

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Veiðislóð 4 tbl.2012

    24. ágúst 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    4 tbl. 2012

    Áfram heldur útgáfa Veiðislóðar og nú er 4.tbl. ársins komið á netið. Nú getur maður víst örugglega sagt; að vanda er efnið og frágangur frábær og ættu allir að finna eitthvað áhugavert í blaðinu. Af greinum í þessu tölublaði má nefna; Fjölskylduveiði í Frostastaðavatni, Vöðluskórnir og Meðferð afla. Tölublaðið má skoða hér.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Endurtekið efni

    24. ágúst 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Annað árið í röð standa veiðirétthafar Hlíðarvatns í Selvogi fyrir opnum degi og bjóða öllum sem vilja að reyna fyrir sér í vatninu. Þrátt fyrir sterka umræðu um aflabrest í vatninu nú í sumar, í það minnsta annað sumarið í röð, þá er vatnið og umhverfi þess eftir sem áður eitt það fallegasta sem veiðimönnum býðst hér sunnan- og suðvestanlands.

    Boðið stendur nú á sunnudaginn, 26.ágúst og verður opið í vatnið frá 10 – 17. Flestir ef ekki allir veiðirétthafar verða á staðnum og opna hús sín; Stangaveiðifélag Selfoss, Stangveiðifélag Hafnarfjarðar, Ármenn og Árblik. Þeim sem ekki þekkja til vatnsins er bent á prýðilega umfjöllun Ármanna sem má nálgast hér , kynningu veida.is á svæði Árbliks eða kíkja á smá umfjöllun hér á blogginu. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðum veiðirétthafa hér að ofan.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Veftímarit

    14. ágúst 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nr.3 / 2012
    Nr. 2 / 2012

    Fjöldi ókeypis tímarita á netinu er sífellt að aukast og ég hef reynt að fylgjast með þeim og setja inn tengla á þau eins og mér er frekast unnt. Flest þessara tímarita eru aðgengileg án innskráningar, en svo eru líka til þau sem maður verður að skrá sig inn á. Eitt þeirra er The Contemporary Sportsman sem í síðustu tveimur tölublöðum er með nokkuð skemmtilegar greinar um Laxá í Aðaldal. Þriðja og síðasta greinin mun svo birtast í næsta tölublaði.

    Ég hef verið skráður fyrir þessu vefriti í nokkurn tíma og ekki orðið var við neitt bögg eða vesen af þeirra hálfu og því þori ég alveg að mæla með því að menn skrái sig inn á síðuna þeirra fyrir áskrift hérna.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 65 66 67 68 69 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar