Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Ég ætti að vera í gipsi

    30. maí 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Fastur úlnliður

    Við hjónin áttum frábæra 2ja klst. stund með Stefáni B. Hjaltested seinni partinn í dag. Það er hverjum manni hollt að leita til sér hæfari manna og Stefán kann svo sannanlega að koma fram með gagnlegar ábendingar um það sem betur má fara þegar kemur að flugukastinu. Það sem stendur uppúr hjá mér er lélegt aftara stopp og laus úlnliður, þar hafið þið það. Nú verður kaststíllinn settur undir smásjánna á næstunni og stefnan tekin á að laga lausan úlnliðinn. Ætli næsta grasflöt fái ekki að finna fyrir æfingunum næstu kvöld.

    Til þeirra sem þora að takast á við eigin misbresti í flugukasti og fá gagnlegar ábendingar beini ég þeirri áskorun að setja sig í samband við Stefán í síma 553-1329 / 862-1329. Að fá því næst sem einkakennslu (2-3 í hópi) þar sem hann einbeitir sér að hverjum þátttakenda fyrir sig er ómetanlegt og flugurnar hjá karli eru heldur ekki neitt slor. Viltu eignast 1.flokks flugur á frábæru verði? Þá er Stefán maðurinn.

    Núna þarf ég að leggjast í svolitla naflaskoðun, stífa úlnliðinn af og renna yfir eldri greinar um kasttækni og misbresti. Hver veit nema ég líti þær öðrum augum eftir þessa gæðastund með Stefáni. Meira um það síðar.

    Ummæli

    31.05.2012 – Árni Jónsson: Áhugavert að þú skulir einmitt nefna þetta með úlnliðinn. Þar sem að ég er nú svo heppinn að vera með æfingasvæði við hliðina á húsinu mínu, eyði ég miklum tíma einmitt þar til að einmitt vinna í þessu. Þess á milli er ég tíður gestur að viða að mér meiri fróðleik (lesist: hangi á síðunni þinni) og viti menn, rakst ég ekki á einn á YouTube sem að segir akkúrat hið mótstæða með úlnliðinn (YouTube). Þetta er greinilega ekki svo heilagt eins og ég einmitt hélt.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • 8 tbl. Veiðislóð

    25. maí 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Enn eitt tölublaðið af Veiðislóð er komið út. Meðal umfjöllunarefnis er; Fjölskylduveiði, Vöðlur og vöðluskór, Græjur og margt fleira. Eins og áður er blaðið ‘fríkeypis’ eins og krakkarnir segja og hægt að nálgast það á netinu hérna.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Í blíðunni

    20. maí 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Sko, svona á að kasta Jón minn
    Jón Viðar og Stefán Hjaltested

    Það er mál manna að sólin lætur alltaf sjá sig þegar JOAKIM’S og Stefán Hjaltested koma saman á Klambratúni. Fjöldi manna og kvenna börðu blíðuna og stangirnar augum eftir hádegið í dag og margir hverjir létu loksins af því verða að prófa gripina.

    Eins og venjulega lét Stefán ekki sitt eftir liggja, gekk á milli manna og kom með gagnlegar ábendingar um það sem betur mátti fara. Sjálfur prófaði ég ECP stöngina frá JOAKIM’S og verð bara að segja að hún gefur tvö- og þrefallt dýrari ‘merkja vöru’ ekkert eftir. Ég hef hingað til verið mjög sáttur við MMX stöngina mína en þessi slær henni jafnvel við.

    Köstin æfð

    Eins og sjá má prófuðu menn ýmsar útfærslur stanga, allt frá léttum #4 einhendum og upp í ég veit ekki númer hvað tvíhendur. Jafnt blákaldir bloggarar (Siggi Kr. í forgrunni) sem og þrautreyndir laxmenn prófðu allt frá léttum einhendum #4 og upp í ég veit ekki númer hvað tvíhendur og var ekki annað að heyra heldur en mönnum líkaði vel það sem þeir tóku á.

    Bestu þakkir fyrir daginn.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • JOAKIM’S og Hjaltested

    19. maí 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Ég bara má til með að koma þessu á framfæri, fór auðvitað í fyrra og þótti mikið til koma. Raunar liðkuðum við hjónin okkar JOAKIM’S MMX stangir í dag í Þingvallavatni, en á morgun ætlum við að endurtaka leikinn og þá undir vökulum augum Stefáns Hjaltested.

    Kastæfing á Klambratúni í boði Stefáns B. Hjaltested og JOAKIM´S ehf.

    Nú ætlum við að endurtaka leikinn frá því í fyrra og hafa létta kastæfingu á Klambratúninu vestanverðu sunnudaginn 20.maí kl.14:00. Það er Stefán Bjarni Hjaltested sem mun hafa yfirumsjón með kastæfingunni og leiðbeina.

    Á staðnum verða allar gerðir JOAKIM´S flugustanga sem hægt verður að prófa. Nú er um að gera að mæta og liðka kasthendina aðeins. Léttar veitingar í boði JOAKIM´S ehf. Allir velkomnir.

    Vonumst til að sjá sem flesta.

    JOAKIM´S ehf

    Jón V.Óskarsson

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Trúboði vorsins lokið

    4. maí 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Í þessari viku veittist mér sú ánægja að heimsækja tvenn veiðifélög og halda smá tölu um dásemdir vatnaveiðinnar. Nú síðast í kvöld heimsótti ég alveg bráð skemmtilegan félagsskap starfsmanna RB á Veiðimessu að vori. Þetta var síðasta vísitering mín að sinni, nú tekur alvaran við, veiðin. Annars er það ekkert síður minn akkur að hitta veiðimenn og konur á svona samkomum, það má alltaf næla sér í gagnlegar upplýsingar í góðra vina hópi. Bestu þakkir fyrir gott hljóð í vetur og vonandi hafa menn og konur haft eitthvert gagn og gaman af.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Sól og máni

    26. apríl 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Hver hefur ekki heyrt; Besta veiðin er undir fullu tungli, Fiskurinn tekur best við sólarupprás, Ekkert gerist fyrr en við sólarlag. Allt getur þetta verið rétt og gott, en hvenær á þetta sér allt stað og stund? Hér að ofan hefur nú bæst við nýr valkostur; Dagatal þar sem tilgreind er sólarupprás, sólarlag, tunglstaða og ýmislegt fleira fyrir hvern dag ársins. Dagatalið nær til loka þessa árs og verður væntanlega uppfært á og með nýju ári. Vonandi kemur þetta einhverjum að notum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 67 68 69 70 71 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar