Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Áríðandi skilaboð frá RISE

    11. mars 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum fyrir norðan að RISE er á leiðinni, en nú hefur veðrið potað sér framfyrir í röðinni. Flugið norður er í athugun og ég hvet menn til að athuga stöðuna á sýningunni á heimasíðu RISE eða á Facebook. Stjána Ben. langar mikið að heyra frá ykkur t.d. með pósti á rise@icelandangling.com

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Ósóttar pantanir?

    8. mars 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Ég fékk rétt í þessu smá fréttatilkynningu frá Stjána Ben. sem ég er bara ekki alveg að fatta;  „… á morgun byrjum við að selja ósóttar pantanir í Veiðivon, Mörkinni 6.“  Eru virkilega til einhverjir áhugamenn um stangveiði sem ekki eru búnir að kaupa + sækja miðana sína á RISE?

    Norðlendingar geta enn tryggt sér miða á svak.is og í Veiðivörum.is í Amarohúsinu. Svo ætlar Stjáni sjálfur að vera á Sportvitanum frá kl.14 á sunnudaginn.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Allt að fyllast?

    22. febrúar 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sé sæti á RISE 2012 sem verður í Bíó Paradís þann 10.mars. nk. Útlit er fyrir að aðsóknin verði ekki síðri heldur en í fyrra og því ekki seinna vænna fyrir þá örfáu sem eiga eftir að tryggja sér miða að renna við í Veiðivon í Mörkinni 6 og ganga frá málunum.

    Eins og fram hefur komið verður hátíðin einnig norðan heiða þetta árið, nánar tiltekið í Sportvitanum á Akureyri þann 11.mars. Miðasala fyrir norðan fer fram á síðu Stangveiðifélags Akureyrar.

    Þær gleðilegu fréttir bárust frá Stjána Ben. að ef undirtekt á Akureyri yrðu jafn góðar og fyrstu viðbrögð gefa til kynna, þá væru meiri líkur en minni á því að RISE færi víðar um landið á næsta ári.

    Nánari fréttir um gang mála og undirbúning má alltaf finna á heimasíðu hátíðarinnar.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Veiði á Skagaheiði

    17. febrúar 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Fleiri bæjarfélög mættu taka Skagaströnd sér til fyrirmyndar og þá er ég ekki bara að tala um Kántríbæ. Nú hefur verið gefin út bæklingur um Veiði á Skagaheiði.

    Frábært framtak og hér hefur tekist einstaklega vel til og ekki skemmir að mörg þessara vatna eru á Veiðikortinu. Bæklingin má nálgast hér og nánari umfjöllun má finna á vef Skagastrandar.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • RISE 2012

    6. febrúar 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nú er endanleg dagsetning og dagskrá RISE fluguveiðihátíðarinnar 2012 komin í loftið. Við tökum laugardaginn 10. mars frá fyrir ferð í Bíó Paradís og verðum mættir þar eigi síðar en kl.20:00 þegar fyrsta myndin fer í loftið.

    Fjórar áhugaverðra mynda verða á hátíðinni; Breathe, Hatch, A backyard in nowhere og Sipping Dry. Hægt er að fylgjast nánar með undirbúningi og fréttum af hátíðinni á Facebook síðunni.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Fly dreamers

    17. janúar 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Einn þeirra sem líta reglulega við á klippusafnið mitt á Vimeo benti mér á og bauð mér inn á nokkuð skemmtilega útfærslu af samfélagsvef, Fly dreamers sem komið hefur verið á fót á netinu. Þessari síðu svipar töluvert til Facebook en stærsti munurinn er að hér eru aðeins veiðinördar á ferð að skiptast á upplýsingum og upplifunum. Ég sló til og skráði mig og eftir stutta stund dúkkaði auðvitað annar Íslendingur upp á vefnum, Einar Guðna í Veiðiheimum. Gaman væri nú ef fleiri landar létu sjá sig á þessum vef. Aðgangur er öllum opinn og það er hægt að skrá sig hérna.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 69 70 71 72 73 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar