Dómadalsvatn

Dómadalsvatn liggur nyrst í Dómadal að Fjallabaki. Vatnið tilheyrir s.k. Framvötnum og er í 566 metra hæð, fallegt vatn sem er rétt innan við 0,1 kmað stærð.  Ekið er að vatninu út frá Dómadalsleið þar sem vegurinn liggur að og yfir Dómadalsháls. Akfært er inn að vatninu þar sem gott bílastæði er til staðar. Upp frá bílastæðinu liggur gönguleið að Lifrarfjallavatni, um 20 mín. gangur.

Dómadalsvatn er eitt fárra vatna á svæðinu sem á sér vle sýnilegt aðrennsli þar sem sprækur lækurinn við rætur Dómadalshálss skoppar yfir F225 og rennur til vatnsins. Vaðið er vel fólksbílafært en fyrir kemur að menn vanmeta það endu að síður og meira a ðsegja 4×4 bílar hafa hikstað ef of greitt er ekið yfir það.

Við fyrstu sýn má halda að vatnið sé allt frekar grunnt en svo er ekki því mesta dýpi þess er vel yfir 15 metrar þegar út í skálina er komið. Að vísu er aðgrunnt að sunnan, en vel má gera góða veiði þar síðla dags þegar urriðinn leitar upp á grynningarnar. Oft má sjá veiðimenn undir hlíðinni að austan, þaðan sem stutt er í dýpið sem og í suð-vestur horni þess. Í vatninu hefur nær eingöngu veiðst urriði hin síðari ári, en á árum áður var sleppt í það bleikjuseiðum og lá við að það yrði ofsetið, svo mikið fjölgaði hún sér. Urriðinn í vatninu getur orðið rígvænn og hafa menn sett þar í 5 punda fiska en algengasta stærð er á bilinu 1,5 – 2 pund. Fallegur fiskur og ljóngrimmur að eiga við.

Tenglar

Flugur

Humungus
Fromage (silfraður)
Gullbrá
Gullið
Nobbler (orange)
Nobbler (svartur)
Nobbler (hvítur)
Black Ghost
Litla Rauð
Brúnn og kopar
Nobbler (olive)
Black and Orange Marabou

Myndir

Vötnin

Vesturland
Norðvesturland
Norðausturland
Austurland
Suðurland
Hálendið

Create a website or blog at WordPress.com