FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Dýptarkort

    2. apríl 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Dýptarkort af vötnum geta komið sér vel þegar leitað er að fiski. Flest dýptarkort sem útbúin hafa verið á Íslandi eru vistuð hjá Orkustofnun og með nokkrum krókaleiðum má nálgast flest þeirra rafrænt.

    Nú hef ég bætt nokkrum þessara korta inn á upplýsingar um vötnin hér á síðunni. Meðal þeirra vatna sem ég hef þannig aukið við eru:

    Djúpavatn
    Gíslholtsvötn í Holtum
    Hítarvatn
    Hítarvatn
    Hlíðarvatn í Hnappadal
    Hlíðarvatn í Hnappadal
    GPS hnit: 63° 52,206'N, 21° 43,362'W
    Hlíðarvatn í Selvogi
    Langavatn
    Langavatn
    Ljótipollur - Hnit: 64° 2,118'N, 18° 59,886'W
    Ljótipollur
    Meðalfellsvatn
    Þingvallavatn
    Þingvallavatn
    Úlfljótsvatn
    Úlfljótsvatn

     

    Dýptarkort
    Dýptarkort

    Kortin eru einkennd Orkustofnum með tákni stofnunarinnar og opnast í nýjum vafraglugga, mönnum til hægðarauka.

    Þess ber að geta að flest þessara korta eru frá Sigurjóni Rist komin og eru frá árunum um og eftir 1970, en eru vitaskuld enn í fullu gildi.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Vatnaveiði -árið um kring

    25. mars 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Vorið 2015 kemur út hjá Forlaginu ný bók um vatnaveiði á Íslandi eftir Kristján Friðriksson, Vatnaveiði – árið um kring. Þar er rakið heilt ár í lífi silungsveiðimannsins og farið yfir allt frá undirbúningi og fluguhnýtingum að frágangi eftir síðustu veiðiferð ársins. Fjallað er um kjörsvæði og hegðun silungsins, græjur og grip, mismunandi veiðislóðir og ólíkar aðferðir eru kynntar til sögunnar eftir því sem veiðiárinu vindur fram. Hver mánuður inniheldur þar að auki gagnlegar ábendingar vegna helstu vandkvæða sem upp kunna að koma.

    fos_vaukKristján Friðriksson er veiðimönnum að góðu kunnur fyrir greinaskrif um silungsveiði á vef sínum Flugur og skröksögur, http://www.fos.is. Persónulegar reynslusögur og athuganir hans munu gagnast reyndum sem óreyndum veiðimönnum og í Vatnaveiði – árið um kring gefst einstakt tækifæri til að öðlast innsýn í heim silungsveiðimanns og náttúruunnanda. Bókina prýðir fjöldi ljósmynda ásamt skýringamyndum sem skerpa á efninu.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Out of touch

    23. mars 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Síðustu sýnendurnir á Veiðisýningunni sem við kynnum eru:


    SVFR er fjölmennasta veiðifélag landsins og verður auðvitað á sýningunni og kynnir veiðisvæði sín fyrir gestum og gangandi.

    Veiðibúðin Krafla kynnir sýnar langsþekktu flugur, veiðistangir og fatnað á sýningunni.

    Veiðiferðir til Grænlands eða South Greenland Fly fishing sem er deild innan ferðaskrifstofunnar Igdlo, bíður upp á fluguveiðiferðir til Grænlands.

    Veiðiþjónustan Strengir mæta á staðinn og kynna sínar ár; Breiðdalsá, Jökla, Fögruhlíðará, Minnivallalækur og Hrútafjarðará

    Ytri Rangá Leigutakar Ytri Rangá verða með bás og segja gestum og gangandi frá öllu því sem viðkemur veiðisvæði Ytri Rangár.


    Áhugamenn um suðrænar fluguveiðar ættu ekki að láta þessa mynd á RISE Fluguveiði Kvikmyndahátíðinni fram hjá sér fara.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Those Moments

    22. mars 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Enn heldur kynning sýnenda á Veiðisýningunni áfram, hér koma næstu 6 sýnendur og svo auðvitað ein klippa af RISE í lokinn.


    JOAKIM‘S fluguveiðivörur verða á Veiðisýningunni og kynna eigin hönnun og vöruúrval sitt.

    Laugardalsá / Fossá verða á sýningunni og hjá þeim geta menn fræðst allt um árnar.

    Laxabakki ehf er leigutaki Víðidalsár og Hópsins í Húnvatnssýslu. Fulltrúi þeirra verður á sýningunni og kynnir veiðisvæðin sem þeir ráða yfir.

    Mekka Wines & Spirits víngæðingarnir endurtaka væntanlega leikinn frá því í fyrra og verða með vinsælli sýnendunum.

    Norðlingafljót kemur til með að eiga sína fulltrúa á sýningunni sem gestum gest kostur á að spjalla við á fimmtudaginn.

    Skúli Kristinsson sýnir flugur og fluguhnýtingar. E.t.v. finna áhangendur Rangánna eitthvað við sitt hæfi hjá Skúla, m.a. Pool og Bismo.


    Þessi augnablik á RISE Fluguveiði Kvikmyndahátíðinni verða örugglega einhverjum minnisstæð. Ætli þetta sé ekki sú mynd sem ég bíð spenntastur eftir.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Carpland

    21. mars 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Á Veiðisýningunni mun kenna ýmissa grasa. Sýnendur verða ríflega 20 og hér á eftir er örstutt kynning fyrstu 6 þeirra.


    Atlantic Flies bjóða hinum heimsfræga hnýtara Davie McPhail til sýningarinnar. Flestir íslenskir fluguhnýtarar þekkja handbragð Davie og eflaust ætla margir að nýta tækifærið að fylgjast með honum.

    Baldur Hermannsson sýnir flugur og fluguhnýtingar. Aldrei að vita nema menn geti virt tilurð Frigga fyrir sér.

    Einarsson Fly fishing verða með bás á sýningunni og munu kynna vörur sínar fyrir gestum og gangandi.

    Forlagið kynnir væntanlega bók um vatnaveiði á Íslandi. Bókin rekur heilt ár í lífi silungsveiðimannsins með ýmsum gagnlegum ábendingum fyrir byrjendur sem lengra komna.

    Heimilistæki verða með bás á sýningunni og kynna þrjár myndavélar fyrir útvistafólk sem þeir hafa til sölu.

    Hreggnasi er enn af stærstu veiðileyfasölum landsins og býður einnig upp á veiðiferðir erlendis. Hér heima bjóða m.a. upp á Grímsá, Svalbarðsá og Laxá í Kjós.


    Enn ein þeirra mynda sem sýndar verða á RISE Fluguveiði Kvikmyndahátíðinni er Carpland sem er nokkurs konar veiðispennumynd í búningi heimildarmyndar. Sýnist þetta vera áhugaverð mynd af stikklunni að dæma:

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Backcountry North Island

    20. mars 2015
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nú er dagskrá fimmtudagsins 26. mars að taka á sig endanlega mynd:

    • 17:00 – 18:30 Veiði og verndun í sátt við íslenska náttúru: Málþing íslandsdeildar Continental trout. Staður: Háskólabíó – Stóri salurinn. Ókeypis aðgangur
    • 18:00 – 22:00 Veiðisýningin 2015. Staður: Háskólabíó – Anddyri. Ókeypis aðgangur
    • 20:00 – 22:00 RISE Fluguveiði Kvikmyndahátíð. Staður: Háskólabíó – Stóri salurinn. Miðalasala á midi.is

    Trompið á Kvikmyndahátíðinni verður er Backcountry North Island

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 51 52 53 54 55 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 176 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar