Vatn vikunnar er Snjóölduvatn í Veiðivötnum. Allar upplýsingar um vatnið má nálgast með því að smella á myndina hér að neðan.

Í næstu viku hefst lokasprettur þessarar aukningar á vötnum á síðunni, þriðja síðasta vatnið kemur þá hér inn.

Ýmislegt og allskonar um flugur, veiðistaði og stangveiði almennt.
Höfundur:
Það hefur lengi tíðkast að eyrnamerkja ákveðnar flugur ákveðnum tegundum fiska. Við þekkjum flugur sem eru seldar sem laxaflugur og við þekkjum flugur sem eru eyrnamerktar silungaflugur. Það getur verið hin ágætasta skemmtun að bera þessar tvær gerðir flugna saman og þá kemur nú stundum sitthvað skemmtilegt í ljós.
Tökum sem dæmi Black Ghost, þessa víðfrægu flugu Herbert L. Welch frá árinu 1927. Hverjum hefði dottið í hug að þessi laxafluga væri jafn gjöful í silungs eins og raun ber vitni. Já, það er fyrst minnst á Black Ghost sem salmon fly en guði sé lof datt einhverjum í hug að setja hana undir í bleikju og gerði góða veiði. Trúlega var einhver þá þegar búinn að setja hana undir fyrir urriða og væntanlega gert álíka góða hluti. Góður kunningi minn fussar reyndar ítrekað þegar rætt er um sérstakar laxaflugur og sérstakar silungaflugur. Segir að fiskurinn hafi ekki hugmynd um þessa mannlegu múra sem byggðir hafa verið utan um flugur og því ekkert að marka þetta, fiskur tekur flugu óháð því í hvaða flokk mannskeppnan hefur sett hana, svo lengi sem hún höfðar til hans.
Mér fannst áberandi í sumar sem leið að laxaflugan Green Butt væri nefnd sem gjöful fluga í lax. Ég trúi því alveg að þessi fluga hafi gefið, því á sama tíma tók ég nokkra væna urriða á svartan Nobbler með grænum rassi. Nú ætla ég ekki að birta myndir af þessum flugum, aðeins lýsingu í grófum dráttum; svartur búkur með silfurvöfum sem endar í neongrænum rassi, svartur vængur sem nær búklengd aftur fyrir krók. Nú má hver sem er geta sér til um hvora fluguna þessi lýsing á betur við.
Upp úr miðju síðasta tímabili fór ég í nokkur vötn þar sem silfurlituð hornsíli voru nokkuð áberandi. Ég rótaði í boxunum mínum og fann nokkra Dýrbíta sem svöruðu þokkalega til útlits þessara hornsíla, þó ekki alveg, en þeir gerður sitt gagn og við veiðifélagarnir veiddum ágætlega. Í haust fór ég síðan á stúfana á netinu og leitaði að flugum sem samsvöruðu betur þessum hornsílum sem ég rakst á. Nú veit ég ekki hve margir lesenda hafa stundað sjóstöng, hvað þá í Karíba- eða Kyrrahafinu, en ég rakst á mjög girnilega flugu sem mig langar að prófa, verst er að hún er eyrnamerkt Bonefish og slík skeppna er barasta ekki til hér á landi og samkvæmt því ætti þessi fluga ekki að gefa mér neitt í íslenskum vötnum.

Ég er nú samt tilbúinn að láta á þetta reyna og hef hnýtt nokkrar svona flugur og ætla að prófa þær á íslenskum urriðum og bleikjum næsta sumar, kannski hafa þessir fiskar bara ekki hugmynd um að þessar flugur séu ætlaðar í alsendist óskilda fisktegund úr hlýsjó sunnanundan miðbaug jarðar.
Höfundur:
Veiðifélag Landmannaafréttar boðar til fræðslufundar um fiskirækt í Veiðivötnum og vötnunum sunnan Tungnaár, sunnudaginn 24. mars kl.15:00 í Árósum, félagsheimili Ármanna, Dugguvogi 13 í Reykjavík.
Á fundinum munu þeir Magnús Jóhannsson og Benoný Jónsson frá Hafró á Selfossi segja frá fiskirannsóknum undanfarin ár í Veiðivötnum og Framvötnum, þ.e. vötnunum sunnan Tungnaár. Heyrst hefur að þá muni veiðifélagið kynna eitthvað mjög spennandi og skemmtilegt sem býðst veiðimönnum á sumri komandi í veiði.
Fundurinn er öllum opinn og áhugamenn um þessi vinsælu veiðisvæði eru hvattir til að mæta og fræðast nánar um fiskirækt og ástand fiskistofna á þessum svæðum.
FOS.IS vill að þessu tilefni vekja athygli á að nú fara síðustu vötnin í Veiðivatna-seríunni að koma fram hér á síðunni og þegar hefur öllum vötnunum sunnan Tunganár verið gerð góð skil hér. Nánar má skoða umfjöllum um þessi veiðisvæði með því að smella á myndirnar hér að neðan:


Höfundur:
Það er ekkert leyndarmál að eftir að ég komst í kynni við hægsökkvandi línur, þ.e. intermediate þá hefur verulega dregið úr álagi á flotlínurnar mínar. Þegar þetta er ritað, þá á ég tvær mismunandi hægsökkvandi línur; slow intermediate sem sekkur um 0,5 tommu á sek. og fast intermediate sem sekkur um 1,5 tommur á sek. Báðar eru þær WF (e: weight forward) þannig að það er nánast enginn munur á að kasta þeim m.v. hefðbundna flotlínu. Þyngd þessara lína er í raun lítið meiri en flotlínu, en eiginleikum þeirra til að sökkva undir yfirborð vatnsins er fyrst og fremst náð með því að hafa línuna grennri þannig að hún sker yfirborðið.
Það eru einnig til þær hægsökkvandi línur þar sem þessum eiginleikum er fyrst og fremst náð með því að bæta tungsten eða öðrum þungum ögnum í kápuna, en þá eru þær yfirleitt sverari og virka til muna þyngri í kasti heldur en flotlínur.
Þá fyrri finnst mér tilvalið að nota fyrir t.d. votflugur eða léttar púpur sem ég vil veiða 10 – 15 sm. undir yfirborðinu, sérstaklega þegar einhver vindur er á vatninu sem hrakið gæti línuna til.

Þá hraðari nota ég reyndar mest. Ræður þar mestu að hún sekkur jafnt og vel og ég þarf þarf ekki að bíða lengi þar til hún hefur náð kjördýpt hornsíla og flestra tegunda púpa. Þar sem straums gætir, svo fremi að hann er ekki of mikill, þar kemur fast intermediate línan að svipuðum notum og hrað- eða framsökkvandi sökklína í stríðum straumi. Kemur flugunni vel niður áður en straumurinn tekur línuna og framkallar óeðlilegt drag og hrifsar þannig fluguna af því svæði sem ég vil veiða hana á.
Síðan skemmir það auðvitað ekki að þar sem þessar intermediate línur mínar eru töluvert mjórri heldur en hefðbundin flotlína, þá taka þær minni vind á sig, sem er ótvíræður kostur á landi eins og Íslandi.
Höfundur:
Veiðivatn vikunnar er að vanda úr Veiðivatnaklasanum. Að þessu sinni er það Skeifan, eitt Hraunvatnanna. Allar upplýsingar um vatnið má finna með því að smella á myndina hér að neðan.

Til viðbótar öllum Veiðivötnunum sem hafa komið hér fram er hægt að finna hér upplýsingar um Veiðivötn í heild sinni, kort og tengla á ítarefni og auðvitað uppdrátt að svæði Veiðifélags Landmannaafréttar við Tjaldvatn með nöfnum veiðiskálanna.
Höfundur: