Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Undan ís

    9. apríl 2013
    Lífríkið

    Upp

    Forsíða

    Vorið er svona um það bil kl. fimm að morgni ef við skiptum náttúrunni niður á klukkuna. Það eru aðeins hörðustu morgunhanar sem hafa sig af stað og svo þeir sem eldri eru, gamlingjarnir. Ég er eiginlega einn þessara gamlingja. Svefnþörfin hefur minnkað og ég er einfaldlega svo forvitinn að ég get bara ekki sofið lengur en til kl.fimm. Allt er þetta þó í óeiginlegri merkingu. Þegar veiðibakterían hefur grasserað allan veturinn fæ ég ákveðna fró út úr því að skyggnast um í vorinu, sjá lífið vakna og vötnin taka á sig kunnuglega mynd sumarsins. Að sjá vötnin beinlínis rífa af sér vetrarhaminn getur laðað ýmislegt fram í dagsljósið sem annars væri hulið. Það hjálpar síðan gríðarlega að vera svo sýktur af veiðibakteríunni að maður tengir allt þetta sjónarspil við væntanlega veiði sumarsins.

    Ég hef farið nokkrum orðum um umhverfingu vatns að vori, lífríkið og silunginn, en svo eru einnig þeir hlutir sem við getum bara alls ekki séð í annan tíma en einmitt að vorinu. Þegar vötnin rífa af sér vetrarhaminn er gullið tækifæri að skyggnast um og horfa á það sem leynist undir yfirborðinu eins og einn lesandi síðunnar gerði s.l. páska við Eyrarvatn. Auðvitað kitlar það aðeins að mönnum detti eitthvað af síðunni í hug þegar þeir verða vitni að því augliti til auglitis úti í náttúrunni, eins og Árni Árnason upplifði og datt í hug greinin mín um undirstraum í vatni.

    Sæll Kristján 

    Ég reyndi að „lemja“ Þórisstaðavatnið þann fyrsta og kom nú heim án fiskjar en mikið rosalega var gaman að sjá fluguna í vatnsborðinu og sílin í fjöruborðinu, ný upplifun að spá í lífríkið í vatninu og mikið fannst mér þetta allt spennandi. 

    En mig langaði að segja þér frá undirstraumi í vatni eftir að hafa skoðað slíkar upplýsingar á síðunni hjá þér í vetur og fannst þá merkilegt. En mér þykir það enn merkilegra núna þegar ég horfði á nokkuð mikinn ís á Eyrarvatninu og ísinn var að brotna niður eða „hverfa“ og þetta fylgdi ekki beinu gegnum streymi í gegnum vatnið, best að taka fram að þarna var logn og því enginn vindur að hjálpa til við brot eða straum. 

    Eyrarvatnið var nú um páskana að mestu ísilagt nema alveg efsti hluti þess við og aðeins út frá efri ós. Þegar leið á blíðuna og dásamlega vorveðrið um páskana jókst gekk á ísinn en það gerðist ekki í beinu streymi frá efri ós heldur var niðurbrotið á ísnum bogadregið í líkingu við myndina þína um undirstraum.

    Eyrarvatn
    Eyrarvatn

    Til að útskýra þetta myndrænt þá skulum við horfa á vatnið eins og um loftmynd og hafa þá neðri ós neðst og efri ós efst. Vatnsstraumurinn í vatninu virðist leggjast til hægri (séð af loftmynd) en þegar komið er útí c.a. 1/4 – 1/3 af vatnslengdinni þá breytist stefnan aftur yfir til vinstri, virðist stefna í átti að landi c.a. í miðju vatni og þaðan liggur svo straumurinn beina leið niður í neðri ós. 

    Nú þegar ég rifja upp fyrri ár við ísað vatnið man ég eftir að hafa sé þetta gerast áður og leyfi ég mér að fullyrða að þarna sé undirstraumur Eyrarvatns. 

    Efsti hluti þessa undirstraum er utan við kastgetu fluguveiðimanna, virðist liggja frá miðri vegu vatnsins og c.a. yfir á 1/3 hluta vatnsins Vatnaskógar megin, en við mitt vatnið(beint á móti Kapellunni í Vatnaskógi) kemur hann aftur nær landi, að neðsta sumarbústaðasvæðinu í landi Kambhóls og þar stoppar líka sefið sem getur verið mjög áberandi í vatninu og erfitt að koma agni yfir það til að komast að fiski. 

    Þar sem straumurinn liggur meðfram Kambhólslandinu frá c.a miðju vatni og niður í neðri ós hafa sumir oft fengið fisk seinni hluta sumars eða snemma hausts, jafnvel lax eða sjóbirting. 

    Mest notaða veiðisvæðið í vatninu, sandfjaran við efri hluta lands Kambhóls er mest notaði veiðistaðurinn af landi og margir þar að halda í laxavonina en algengast er þó að fá urriða eða bleikju. Þetta svæði er í raun þó nokkuð frá þessum undirstraumi og í þau skipti sem ég hef fengið fisk seinni hluta sumars er það á báti nálægt þessum undirstraumi, sérstaklega í efri hluta vatnsins. 

    Ég leyfi mér að skjóta þessu til þín, til að undirstrika þessa upplýsingar með undirstraum í vatni. Upplýsingarnar hér eru engin hernaðarleyndarmál um hvar er fiskur í vatninu því þeir sem stunda það þekkja þessa staði og sögurnar um þá. 

    Kv. Árni Árnason

    Það er einmitt þessi upplifun Árna sem ég sækist svolítið í að reyna og nýti mér síðan þegar kemur að veiðinni. Að láta það eftir sér að skoða vatn í annan tíma heldur en á sumrin getur fært manni ómetanlegar upplýsingar fyrir komandi vertíð. Landslagið í vatninu og leyndir kostir þess blasa stundum við aðeins þessa stuttu stund sem það færist undan vetri og inn í sumarið. Átt þú ekki örugglega ‚þitt‘ vatn sem vert væri að skoða áður en þú ferð að veiða í sumar?

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Vöðluvasinn

    6. apríl 2013
    Lífríkið

    Upp

    Forsíða

    Vöðluvasinn

    Þeir eru stórkostlegir þessi vasar sem eru framan á flestum vöðlum. Ég nota minn óspart þegar ég veiði. Þegar svo óheppilega vill til að taumurinn minn fer í kássu og mér tekst ekki að losa þessa bölvuðu vindhnúta og ég þarf að klippa hann af kemur vasinn í góðar þarfir. Afklippan fer í vasann og næst þegar ég skríð upp á bakkann, tæmi ég úr vasanum í ruslapokann minn eða í veiðitöskuna. Með þessu móti þarf ég ekki að beygja mig niður eftir ruslinu sem annars lægi eftir mig á bakkanum. Er ekki örugglega vasi á þínum vöðlum?

    Ummæli

    06.04.2013 – Ingólfur Örn: Nota oftast brjóstvasan á mínum vöðlum undir flugur 🙂 En ég mæli eindregið með Monomasternum fyrir allt taumarusl. Alger snilld og kostar lítið: Monomaster og hér er eitthvað um hann: YouTube 

    Bestu kveðjur,
    Ingó

    Svar: Þetta er bara snilld 🙂

    07.04.2013 – Siggi Kr.: Nei heyrðu mig nú! Hvar fær maður þetta? Þarf að kaupa svona handa mér og fleirum.

    Svar: Tja, nú í dag (08.04.2013) dúkkaði einmitt upp auglýsing frá Veiðihorninu á Fésbókinni um að þetta undratæki fengist þar. Engu líkara en menn fylgist með fos.is 🙂

    07.04.2013 – Hrannar Örn: Til margra ára var ég alltaf í neoprene vöðlum með brjóstvasa sem var einmitt mjög hentugur fyrir taumaflækjur og ekki síst til að hita á sér puttana. Ég keypti svo öndunarvöðlur núna í vetur og er mjög sáttur við að á þeim er fóðraður brjóstvasi, :)

    Svar: Já, í einhvern tíma hafa kaldar og loppnar hendur laumast í vasann. Í augnablikinu (segi það vegna þess að ég er vöðluböðull og helst illa á vöðlum) er ég með vöðlur með tvöföldum vasa; fóðraður og með netavasa framan á. Gleymi aldrei að tæma ruslið, það blasir við í netavasanum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Þurrflugur af bekknum

    3. apríl 2013
    Úr þvingunni

    Upp

    Forsíða

    Ég lét það alveg eiga sig seinni part vetrar að upplýsa um þurrfluguhnýtingar vetrarins. Kannski var ég ekkert of ánægður með útkomuna, baksaði lengi við ýmsar fjaðrir með mismunandi árangri, oftast lélegum. En, svo barst blogginu bréf frá Eiði Kristjánssyni sem færði mér kærkomin útgangspunkt til að tjá mig um þurrflugu(til)raunir mínar í vetur.

    Bréfritari ásamt dóttur sinni
    Bréfritari ásamt dóttur sinni

    Sæll Kristján!

    Ég hef nú áður sent þér póst og örugglega komið á framfæri þakklæti mínu fyrir bloggið þitt, en góð vísa er aldrei of oft kveðin og því færðu frá mér fleiri þakkir.

    Ég er búinn að setja mér takmark fyrir veiðitímabilið. Ég ætla að fá fisk á þurrflugu. Ég er púpuveiðimaður í húð og hár. Lít helst ekki við „strímerum“, einstaka sinnum hendi ég votflugu undir og aðeins oftar þurrflugu. Oftast set ég þurrfluguna undir þegar ég sé að fiskur er að vaka, en með hjálp google hef ég komist að því að það er ekkert endilega besti tíminn til þess að reyna þurrfluguna. Gáran er víst ekki svo slæm þegar kemur að þessum málum og jafnvel betri, ef eitthvað er. Þá er ég nokkuð viss um að ég megi sýna aðeins meiri þolinmæði með þurrfluguna, en þar sem ég er afar hrifinn af púpunum þá hættir mér til að gefa þurrflugunni lítinn tíma á taumnum, ef nokkurn.

    Nú, þar sem ég ætla að veiða meira með þurrflugu í sumar þá langar mig að sjálfsögðu að hnýta mínar eigin. En þar stendur hnífurinn í kúnni. Ég er búinn að vera vandræðast með efni í þurrflugur. Nú veit ég allt (kannski ekki allt en slatta) um undrafjaðrirnar CDC og virkni þeirra. Það sem ég er hinsvegar að spá í eru þessari „hackle“ fjaðrir sem svo oft er talað um. Ég á hanahnakka fjaðrir í nokkrum litum og hef verið að nota þær í þessa vafninga sem eru ýmist fremst á hefðbundnum þurrflugum s.s Royal Wulff eða í kringum „stilkinn“ á parachute þurrflugum.

    Það sem ég er hinsvegar ekki að átta mig á er hvernig í ósköpunum ég á að ná fönunum stuttum og fallegum. Hjá mér eru þær allt of langar og ég enda á að þurfa klippa þær til sem leiðir til þess að flugan verður kjánaleg og eiginlega bara alls ekki eins og fyrirmyndin.

    Ég hef lesið á blogginu þínu að konan þín sé hrifin af þurrfluguveiðum svo mér datt í hug að þú hefðir kannski hnýtt einhverjar fyrir hana. Geturðu mælt með einhverju efni fyrir mig, einhverri annarri tegund af fjöðrum eða einhverri annarri aðferð?

    Bestu kveðjur, Eiður Kristjánsson

    Og nú var komið að mér, ég sauð saman eitthvert svar til Eisa með morgunkaffinu og sendi honum með beiðni um að fá að setja bréfið og svörin mín hér á síðuna, sem auðvitað var auðsótt mál.

    Mikið kannast ég við þessi ‚hackle‘ mál. Flestar fjaðrirnar sem ég dró upp úr venjulega ‚Short Cock Hackle‘ pokanum mínum frá Veniard voru annað hvort sveigðar og beygðar eða bara alls ekki ‚short‘ þegar ég var búinn að setja hringvöf á fluguna. Ég brá því á það ráð að tæma pokann á súpudisk og flokka þær niður í eftirfarandi; A. Beygðar og ólögulegar fjaðrir sem ég geymdi í t.d. skott á púpum o.s.frv. B. Langar og beinar nýttust í vængi á straumflugur og að síðustu C. Stuttar og beinar, fíngerðar með stuttum geislum út frá hryggnum sem ég gat nýtt í þurrflugur. Því miður náði síðast greindi flokkurinn ekki nema u.þ.b. 10% af innihaldi pokans, en þó það. Af þessum fjöðrum nýttust síðan 2/3 frá oddi í hringvaf einfaldlega vegna þess að því nær slíðrinu sem dregur lengjast geislarnir og verða í raun allt of langir fyrir litlar silungaþurrflugur. Flugurnar sem urðu til úr þessu voru t.d. Hexía, Black Gnat og Adams.

    Annað sem ég kannaði í vetur voru s.k.‘Non-hackle- þurrflugur, en mér fannst einfaldlega ekkert sérstaklega varið í þær, kannski helst vegna þess að þær eru flestar ímyndir skordýra sem sjást nánast ekki hér á Íslandi, ennþá. Án þess að fara neitt nánar út í hvernig þessar flugur heppnuðust hjá mér, þá er hérna flýtileið á Google leit (myndir).

    Hamurinn
    Hamurinn

    Það sem ég fann mig síðan best í og hafði mesta ánægju af í vetur, var að nýta efni sem ég keypti í einhverju brjálæði hérna um árið fyrir vildarpunktana mína í gegnum Amazon, heill hamur af Ringneck Pheasant. Ég hef svo sem verið að grípa í þennan ham annars slagið í votflugur og tók þá eftir því að þær flugur sem ég skreytti ríkulega með grófustu fjöðrunum, flutu eiginlega allt of vel þannig að ég fikraði mig áfram með þetta efni í vetur og úr urðu nokkrar flugur sem upphaflega voru hnýttar úr hjartarhárum eða CDC.

    Þurrflugur úr Ringneck Pheasant
    Þurrflugur úr Ringneck Pheasant

    Allar þessar flugur (#12 og #14) eru úr fjöðrum sem ég tók af einum og sama fuglinum og þær fljóta alveg glettilega vel og eru afskaplega einfaldar í hnýtingu; þurrfluguöngull, flatur hnýtingarþráður aftur eftir önglinum og til baka. U.þ.b. 1/5 lengdar frá auga smellti ég síðan örlitlu fjallalambadöbbi (úr þeli) til að lyfta fjöðrunum sem ég hnýtti niður þétt fyrir framan döbbið. Frágangurinn er ekki flókinn, upp og í brúsk rétt fyrir aftan augað, snyrt í heppilega lengd og hnýtt vel fyrir. Nú er bara að sjá hvernig urriðanum og frúnni líkar þetta í sumar.

    Þurrfluguboxið mitt
    Þurrfluguboxið mitt

    Ummæli

    03.04.2013 – Hilmar: Góðar pælingar drengir. Hef verið í svipuðum vandræðum með efnið í þurrflugur, þ.e. hackle allt of langt sem maður á. Náði þó að láta einn félaga minn og ferðalang koma með Grizzly hnakka frá Whitingfarms heim fyrir mig og verð að segja að þá batnaði framleiðslan til muna. Og næst á dagskrá er að ná í 100 pack frá sama fyrirtæki. Maður þar víst að fjárfesta aðeins í þurrflugu efnivið ef maður ætlar að ná að gera þurrflugurnar sæmilegar. En ein besta þurrflugan er þó caddis og flestir eiga efnivið í það, þ.e. elk eða dear hair, og hnýtt á sama hátt og þú gerir úr ringneck hamnum hér að ofan Kristján. Hér er t.d. ein afar einföld caddis Winona Fly Factory. 

    mbk, Hilmar

    03.04.2013 – Siggi Kr. (Svarti Zulu): Þurrfluguhnakkarnir frá Whiting eru klassaefni og reyndar er möguleiki minnir mig að fá nokkrar fjaðrir saman í pakka frá þeim en hver fjöður er mjög löng og getur dugað í margar flugur. Ég held að hann Viðar í gallerí flugum hafi verið með efni frá Whiting til sölu en rétt að benda á að þurrfluguhnakkar eru með því dýrara sem maður fjárfestir í við fluguhnýtingar. Ég myndi allavega byrja á því að kíkja í galleríið ef mig vantaði svona efni. En þess utan vil ég endilega hvetja hann Eið til að byrja að líta líka við strímerum því þeir eru ótrúlega skemmtileg veiðitól ;)

    Kv. Siggi Kr.

    03.04.2013 – Urriði: Straumflugur FTW! Þar sem að alvöru þurrflugurnar mínar fljóta aldrei meira en 2-3 köst þá skilgreinist “þurrfluguveiðin” mín þannig að ég strippa straumflugur í yfirborðinu og sé urriðann koma upp og ráðast á þær…ekkert flottara en það!

    Svar: Frábært að heyra hvað menn hafa sterkar skoðanir á þessu. Sjálfur byrjaði ég mest í vot- og straumflugum en síðar náðu púpurnar yfirhöndinni. Samt sem áður eiga straumflugurnar alltaf öruggt pláss í boxinu og nú í sumar ætla ég ekki að horfa upp á frúnna taka hvern fiskinn á fætur öðrum á þurrflugu án þess að geta veitt henni einhverja samkeppni.

    04.04.2013 – Eiður Kristjánsson: Sælir! Ég fann einmitt svona hackle poka frá Whiting Farms í Vesturöst rétt eftir að ég sendi Kristjáni póstinn. Hann kostaði rétt tæplega 6.000 krónur!! Reyndar stór poki en alltof dýr. Ég eiginlega gafst upp á “vafnings” þurrflugunum í bili og skellti í nokkrar í ætt við þær sem Kristján birtir hér að ofan. Þær komu virkilega vel út, hlakka til að prófa þær. Notaði reyndar bara venjulegar fjaðrir í þær, hana og urtönd. En þær fljóta vel.

    Þetta með straumflugurnar er svo náttúrulega bara persónubundið. Ég notaði straumflugur nokkuð mikið þegar ég var að byrja og fiskaði ekki mikið. Um leið og ég fór að halda mig meira í púpunum fór ég hinsvegar að fiska mun meira. Ég hef bara svo rosalega litla trú á straumflugum, sem er náttúrulega bara vitleysa :)

    05.04.2013 – Urriði: Ég er náttúrlega langmest að veiða í straumvatni þar sem straumfluguveiði er auðveldari. Ég veiði alveg jafn vel á púpur og ef e-ð er þá eru þær öflugri og fjölbreyttari veiðitæki….það er bara svo ógeðslega gaman að sjá urriðann koma upp í yfirborðið og ráðast á fluguna (sjá 0:15 hérna)  

    og (2:17 og 5:40 hérna)


    Í vatnaveiði eru púpur hinsvegar í sérflokki, plús það er bara ekki jafn gaman veiða á straumflugur í vatnaveiði og í straumvatni. Þess vegna nota ég púpur meira í vatnaveiði. Ég verð samt mættur með með straumflugu í ljósaskiptunum í maí og júní til að ná mér í 5kg+ urriða í stórurriðavatninu mínu!

    Þurrflugur hafa hingað til bara pirrað mig þar sem að flugurnar fljóta aldrei og línan fælir alla fiska í 100 metra radíus…núna er ég hinsvegar kominn með nettan tvist svo vonandi gengur mér betur með þessa nettu yfirborðsveiði í sumar :)

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Meðalfellsvatn 1.apríl

    1. apríl 2013
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Austlæg átt, þokkaleg bjart yfir og hitinn þetta á bilinu 6-7°C, næstum alveg eins og spáin hafði sagt fyrir um. Það var virkilega ánægjulegt að sjá hve margir veiðimenn tóku fyrri vaktina við vatnið þennan fyrsta dag í vertíð. Vatnið nánast íslaust, aðeins ís á víkinni undan Hjarðarholti, annars autt. Við hjónakornin potuðum okkur austast í röðina undan Meðalfelli, rétt við fyrsta bústaðinn á norðurbakkanum. Lítið varð maður nú var við fisk (ekkert) en það skemmdi nú ekki fyrir okkur ánægjuna að vera loksins komin með stöngina í hönd og fluguboxið í vasann. Ekki var að sjá að aðrir væru mikið meira að taka fisk, en okkur tókst ekki að ná tali af mönnum því rétt upp úr hádeginu hurfu nánast allir af staðnum. Væntanlega búnir að fá nóg af engu. Það er bara að vona að seinni vaktinn verði lukkulegri.

    Meðalfellsvatn 1.apríl 2013
    Meðalfellsvatn 1.apríl 2013

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur í ferð Bleikjur alls Urriðar í ferð Urriðar alls Fj.ferða
     0 / 0 0 / 0 0 / 0 0 / 0 1

    Ummæli

    02.04.2013 – Eiður Kristjánsson: Núllaði líka, fór í Vífó eins og svo margir aðrir :) Ertu búinn að sjá þessa síðu? http://www.danica.com/flytier/ Þarna er ógrynni af flottum flugum og endalaust af hugmyndum.

    Svar: Já, þessi er alltaf ofarlega á listanum hjá manni, hreinn snillingur hann Hans Weilenmann og svo eigum við líka okkar fulltrúa þarna inni, Viðar Egilsson í Litlu flugunni / Gallerí flugur

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Af bekknum í boxin

    1. apríl 2013
    Úr þvingunni

    Upp

    Forsíða

    Það er væntanlega við hæfi að óska veiðimönnum til hamingju með daginn í dag, 1.apríl. Fyrstu vötnin að opna eftir vetrarfrí sem vonandi flestir hafi notað vel til hnýtinga og lestur góðra veiðibóka.

    Síðari hluta vetrar hef ég leyft mönnum að skyggnast í hnýtingarlistann minn fyrir vertíðina sem er að hefjast í dag með greinum undir heitinu ‘Af bekknum’. Nú eru flestar flugurnar komnar í geymsluboxin, sem eru auðvitað frá IcePete og klárar fyrir sumarið, þ.e.a.s. straum- og votflugur auk púpa. Þurrflugurnar eru örlítið færri eftir veturinn, geri þeim skil síðar. Eins og sjá má eru þetta nokkrar flugur, raunar nokkuð fleiri en þær sem ég hef talið til í þessum greinum mínum í vetur. Það eru ekki aðeins silungarnir sem gína við flugum, ég er ekkert skárri á ráfi mínu á veraldarvefnum, ef ég sé eitthvað spennandi verð ég bara að prófa og þannig bætast stundum nokkrar við sem ekki voru á upphaflegum hnýtingarlista vetrarins.

    Geymsluboxin fyrir sumarið
    Geymsluboxin fyrir sumarið

    Með von um að veiðimenn láti nú sjá sig við vötnina í dag, í það minnsta til að óska hverjum öðrum til hamingju með daginn, þakka ég fyrir samfylgdina í vetur og vona að einhverjir hafa haft gaman og e.t.v. eitthvert gagn ‘Af bekknum‘.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Pheasant Tail

    30. mars 2013
    Úr þvingunni

    Upp

    Forsíða

    Frank Sawyer
    Frank Sawyer

    Með þessari grein lýkur í raun yfirferð minni yfir nokkrar af þeim flugum sem ég hnýtti í vetur. Það er ekki seinna vænna því ekki á morgun, heldur hinn, hefst tímabilið formlega og eflaust láta einhverjir sig hafa það, hvernig sem viðrar, að heimsækja einhver veiðistað og reyna fyrir sér í vorinu.

    Síðasta flugan af bekknum er auðvitað Pheasant Tail. Höfundur flugunnar, Frank Sawyer lagði mikla vinnu í og prófaði sig lengi áfram með ýmsar útfærslur af henni áður en hann var sáttur. Gaumgæfilegar athuganir hans á lífríki árinnar Avon leiddu smátt og smátt af sér þessa ódauðlegu flugu sem vel flestir veiðimenn þekkja. Einfaldleika hennar verður best lýst með efnisvalinu; öngull, koparvír og fasanafjaðrir. Fæstir hnýta hana eins einfalda í dag og Sawyer gerði á sínum tíma. Flestir bæta í það minnsta hnýtingarþræðinum við, ef ekki, þá í það minnsta tonnataki til að tryggja hausinn.

    Ég nota þráð og ég nota e.t.v. meiri og grófari koparvír heldur en mörgum þykir við hæfi. Í vængstæðið er ég líka óhræddur við að nota brúnleitt dub úr íslensku fjallalambi. Eflaust þykir einhverju svo mikið út frá upprunalegu uppskriftinni bera að nefna ætti kvikindið eitthvað annað en Pheasant Tail, en….. Nei, ég nefni hana Pheasant Tail, punktur og basta. Já, og stærðirnar mínar eru legglangur #12 og #14 og stuttur #12, #14 og #16.

    Pheasant Tail
    Pheasant Tail

    En fyrir hreintrúarmenn, þá er hér smá klippa þar sem Oliver Edwards sýnir hvernig Frank hnýtti fluguna upprunalega.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 266 267 268 269 270 … 349
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 178 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar