Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Upprifinn

    13. mars 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Það má með sanni segja að maður varð upprifinn eftir kynningu Geirs Thorsteinssonar á Elliðavatni í kvöld í húsakynnum SVFR, kærar þakkir fyrir mig. Stangaveiðifélagið og Veiðikortið eiga hrós skilið fyrir framtakið, vonandi verður framhald á að vatnaveiði verði gerð jafn góð skil og gert var í kvöld.

    Tenglar á bæði Elliðavatnsbækling Geirs og Þingvallavatnsbækling SVFR eru nú komnir hér inn á síðuna og munu eiga sér fastan sess hér til hliðar ásamt bæklingi Veiðikortsins og öðrum vefbæklingum. Þeir sem ekki hafa enn kynnt sér þessa bæklinga eru hvattir til þess að hlaða þeim niður hið fyrsta.

    Veidikortid2013thingvallavatnsvfrellidavatngt

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hérinn

    12. mars 2013
    Úr þvingunni

    Upp

    Forsíða

    Þær þurfa ekki allar að vera flóknar eða fancy til að ganga í augun á silunginum og hér er ein sönnun þess. Afskaplega einföld fluga; krókur, kúla, tan þráður, koparvír og héradub. Ef fyrsta fluga byrjenda í fluguhnýtingum er t.d. Peacock, þá gæti þessi verið ágæt #2 ef menn vilja æfa sig í meðferð dub’s, mistök skipta engu máli, það má alltaf bæta við og mér hefur fundist hún nánast aldrei geta orðið of bústinn.

    Hérinn er auðvitað bara einfölduð útgáfa að Héraeyranu heimsfræga og hefur fyrir löngu tekið frá fast sæti í boxinu mínu. Auðvitað verður hann með í för næsta sumar, bæði beinn og boginn (grubber) í stærðum #10, #12 og #14.

    Hérar, bognir og beinir
    Hérar, bognir og beinir

    Ummæli

    15.03.2013 – Urriði: Ég er pínu forvitinn um ykkur sem eruð álíka afkastamiklir í hnýtingum og meðalstór verksmiðja… þurfið þið allar þessar flugur? Ég er að missa svona 5-10 flugur á sumri, ef ég hnýtti svona mikið fyrir hvert sumar þá yrði ég að kaupa mér fleiri tugi veiðiboxa. Ætli ég hafi ekki hnýtt innan við 10 nýjar flugur fyrir þetta sumar og gert við svona 10 gamlar sem voru farnar að tætast.
    Skil reyndar að það sé gaman að hnýta, sérstaklega í góðra vina hópi :)

    Svar: Sko, ég er náttúrulega svo heppinn að vera að hnýta fyrir okkur bæði, hjónin. Annars er svarið auðvitað nei, ég hef örugglega ekkert að gera við allar þessar flugur en mér finnst kvöldunum ekkert síður varið í hnýtingar heldur en sjónvarpsgláp. Því miður hefur mér ekki tekist að ná saman ‘góðra vina hóp’ í hnýtingar t.d. á mínum vinnustað og svo er ég náttúrulega svolítið sér á parti, vinn mér inn efni og flugur langt fram í tímann fyrir þessa síðu. Er t.d. kominn með efni og búinn að setja á schedule greinar fram til loka júní.

    16.03.2013 – Eiður Kristjánsson: Ég hnýti oftast 5 stykki í tveimur stærðum af hverri flugu fyrir sig. Er svo með 4-5 box með mér í bakpoka þegar ég fer að veiða en eitt í vöðlujakkanum/vestinu sem ég vel í.

    Ég hnýti líka oftast aðeins extra þar sem mér finnst afar ánægjulegt að hafa flugur aukalega til að gefa ef ég lendi á spjalli við einhvern veiðimann á bakkanum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Elliðavatnsfræðsla

    12. mars 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Elliðavatn á Veiðikortinu
    Elliðavatn á Veiðikortinu

    Að gefnu tilefni og vegna nokkurra fyrirspurna sem mér hafa borist hef ég fengið staðfest hjá SVFR að fræðslukvöldið á morgun (13.03.2013) um Elliðavatn er opið öllum, ekki aðeins félögum SVFR. Nú er um að gera að drífa sig og heyra hvað Háskólarektor Elliðavatns, Geir Thorsteinsson hefur fram að færa í húsakynnum SVFR í Elliðarárdalnum kl.19:30.

    Af vef Veiðikortsins: Fræðslukvöld hjá SVFR um Elliðavatn.

    Það verður mikið um að vera á fræðslukvöldi Stangaveiðifélags Reykjavíkur á miðvikudagskvöldið 13. mars kl. 19.30.   Þá mun Geir Thorsteinsson, sem þekkir Elliðavatnið sjálfsagt manna best, kynna fyrir veiðimönnum veiði í Elliðavatni.  Vatnasvæðið hefur oft verið nefnt háskóli veiðimannsins þannig að þessi „kurs“ hlýtur að vera veiðimönnum kærkominn.

    Þeir sem vilja undirbúa sig fyrir kynninguna geta skoðað bæklinginn sem Geir hefur gefið út á rafrænu formi með því að smella hér. 

    Einnig verður hægt að kaupa Veiðikortið 2013 með afsláttarkjörum á staðnum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Stíffanir – biots

    9. mars 2013
    Hnýtingarefni

    Upp

    Forsíða

    Geislar
    Geislar

    Flestir vita hvað ég er að fjalla hér um, en fyrir þá sem ekki þekkja til eru þetta stuttu, sveru geislanir á efri fön vængfjaðra. Í verslunum er algengast að finna tilskornar fjaðrir af gæs eða kalkún, litaðar í öllum mögulegum litum. En svo eru allar hinar fjaðrirnar sem við kaupum heilar eða verðum okkur úti um, þær luma einnig á þessum geislum sem oftar en ekki lenda í ruslinu hjá hnýtaranum þegar neðri fönin hefur verið fullnýtt. En það er engin ástæða til að farga þessu úrvals hráefni. Stíffanir má nota í skott, fætur, fálmara, vængstæði og búk á ýmsar tegundir flugna. Eins og gefur að skilja þá er lengd þeirra, stíf- og sverleiki nokkuð mismunandi eftir því af hvaða fugli fjöðrin er og ágætt að þekkja aðeins til mismunandi eiginleika hverrar tegundar áður en byrjað er að hnýta.

    Stíffanir úr gæsafjöður eru yfirleitt stífari og frekar styttri. Þegar þeir eru notaðir í búk (vöf) mynda þeir þynnri og áferðarfallegri vafninga heldur en flestar aðrar tegundir. Annar styrkur þeirra er að þeir endast mjög vel og eru ekki eins viðkvæmir og margir aðrir. Á móti kemur að það getur verið nokkuð snúið að útbúa heilan búk úr þeim þar sem þeir eru svo stuttir, yfirleitt duga þeir ekki í stærri flugur en #14.

    Stíffanir af kalkún eru aftur á móti lengri og henta því betur í heilan búk, en þar kemur á móti að þeir eru heldur viðkvæmari og vilja endast skemur.


    Straumendur
    Straumendur

    Svo eru það blessaðar endurnar. Ég er óttalegur safnari og beygi mig yfirleitt alltaf eftir fjöðrum sem ég rekst á úti í náttúrunni og oftar en ekki eru þetta andafjaðrir. En það er ekki nóg að safna þeim saman, maður verður jú að nota þær líka. Þess vegna hef ég fikrað mig áfram með að nota stíffanir af vængfjöðrum anda þegar mér finnst vanta líf í púpurnar mínar eða ábreiðu á vængstæðið. Og merkilegt nokk, stíffanir úr andafjöðrum hafa bara gefist mjög vel. Þær eru ekki eins stífar og af gæsinni og ef maður er heppinn þá eru þær ekkert styttri heldur en kalkúna fanir. Auðvitað eru þær bara í náttúrulegum litum, en þannig eru nú flest skordýrin líka.


    Copper John
    Copper John

    Stuttar og sverar stíffanir henta best í skott eins og t.d. á Copper John. Löngu fanirnar eru hentugri í vafninga eða búk eins og t.d. í Prince Nymph.

    Auðvitað eru löngu og breiðu fanirnar hentugastir í búk, en einhvern veginn finnst manni aldrei að einn geisli nái því að vera bæði breiður og langur. En það eru kannski bara hindurvitni eða fordómar, nokkuð sem stíffanir hafa mætt lengi hjá hnýturum. Ekki er óalgegnt að heyra af mönnum sem finna þessu efni allt til foráttu og beinlínis sneiða hjá flugum sem gera ráð fyrir geislum í uppskrift.

    Það eru alltaf tveir möguleikar á að þekja búk með geisla. Annað hvort vill maður hafa yfirborðið slétt eða hrufótt. Allar fanir eru örlítið sveigðir þegar þeir koma úr föninni. Festir þú geislann þannig niður að hann sveigist upp, verðra samskeytin hrufótt, en festir þú geislann þannig að hann sveigist niður verður yfirborðið slétt.

    Að lokum eru hér nokkur ráð við meðhöndlun geisla:

    • Þegar maður fjarlægir geisla af hryggnum á alls ekki að skera eða klippa þá, heldur rífa. Ef maður rífur þá af hryggnum fylgir oft örlítil hornhimna með sem gott er að hafa til að festa fjaðurtöngina á.
    • Til að komast hjá því að brjóta geislana er ágætt að væta þá stundarkorn í volgu vatni áður en þeir eru notaðir. Eins getur dugað að leggja þá í blauta bréfþurrku í smá stund.
    • Þegar byrjað er á vafningi á flugu skal festa odd geislans aftast á öngulinn og láta hann vísa í átt að auga öngulsins og vinda síðan fram eftir önglinum.
    • Best er að tryggja hvern einasta vafning á flugunni með hnýtingarþræði fremst á hverjum vafningi. Annars er hætt við að búkurinn losni upp þegar sá stóri nartar í fluguna.
    • Þegar nota á tvo geisla í skott á flugu er betra að hnýta báða niður í einu, tvo til þrjá vafninga til að byrja með þannig að unnt sé að stilla þá af áður en gegnið er endalega frá þeim.
    • Þolinmæði og smá umhyggja er yfirleitt allt sem þarf til að ná góðum tökum á því að hnýta með geislum. Ekki gefast upp þótt þú brjótir fyrstu 100 geislana sem þú reynir við.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Vorflugupúpur

    6. mars 2013
    Úr þvingunni

    Upp

    Forsíða

    Á meðan ég var að hnýta Peacock í gríð og erg reikaði hugurinn út og suður og upp í kollinn á mér kom þessu spurning; Er líf eftir Peacock? Já, auðvitað. Þegar vorflugupúpan skríður loks út úr húsinu sínu, svamlar hún um í nokkrun tíma þar til hún rís upp að yfirborðinu og verður að fullvaxta flugu. Á þessum tíma kemur eiginlegur litur púpunnar í ljós og oftar en ekki er hún ljósleit og nokkuð áberandi í vatninu. En, vitaskuld er hún til í ýmsum litum sem mér skilst að ráðist mest af þeirri fæðu sem hún leggur sér til munns á meðan hún lifir í hylkinu.

    Þegar svo ber undir að maður verður var við einhvern fjölda á þessu stigi í vötnunum, er ekki óalgengt að maður grípi til Héraeyrans eða Héranns, en svo má líka vera með eitthvað þessu líkt í boxinu. Þannig verðu það í það minnsta í sumar hjá mér. Hnýtt á grubber #10, feit og pattaraleg.

    Húsnæðislausar vorflugupúpur
    Húsnæðislausar vorflugupúpur

    Ummæli

    06.03.2013 – Hilmar: Þetta er nú besta nafngift sem ég hef séð lengi á púpum, þú átt eftir að moka inn á þessa í sumar.

    mbk, Hilmar

    08.03.2013 – Kristinn / veida.is: Þessi er flott, veiðileg – hún yrði líklega framarlega í röðinni hjá (mér) að fara undir.

    15.03.2013 – Urriði: Ég án djóks hnýtti nákvæmlega eins flugur fyrir nokkrum árum. Hef samt af einhverjum ástæðum aldrei notað þær. Hef reyndar notað aðra útgáfu af heimilislausri vorflugupúpu með góðum árangri :)

    Svar: Já, nú held ég bara áfram að ergja þig, Urriði. Hvernig væri nú að þú kæmir þér upp bloggi og settir eitthvað af þínum verkum á framfæri. Þú hefur sýnt það svo um munar að þú lumar á ýmsu skemmtilegu sem við hinir veiðinördarnir súpum hveljur yfir.

    16.03.2013 – Urriði: Þetta kemur allt á netið á einn eða annan hátt, hvort sem það er á veidi.is eða veiðidelluhópnum :) Ég nenni ekki að sjá um það sjálfur að halda úti vefsíðu, plús efnið yrði 99% eintómar montsögur frá leynistöðum sem yrði fljótt þreytt.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Storkur – marabou

    3. mars 2013
    Hnýtingarefni

    Upp

    Forsíða

    Marabou
    Marabou

    Hér er náttúrulega úr vöndu að ráða. Marabou er heitið á fjöðrum storksins og við tölum alltaf um að hnýta marabou flugur. Vandamálið, ef vandmál getur kallast, er að fjaðrirnar sem við kaupum í dag eru bara alls ekki af storki, heldur strút eða kalkún. Storkurinn er nefnilega alfriðaður um allan heim.  Leiðrétting: Marabou storkurinn er ekki alfriðaður þótt heimalönd hans mörg hver í S-Afríku séu skilgreind friðlönd. Hvað um það, við notum þessar fjaðrir í Nobblera, Damsel-flugur og í vængi stórra straumflugna til að fylla þá lífi.

    Flestar þessara fjaðra eru litaðar úr hvítum og til í næstum eins mörgum litbrigðum og regnboginn. Þegar kemur að því að velja pakkningu er ágætt að hafa það í huga að við sækjumst eftir þéttum lit og áberandi. Lélegur litur í pakkningu verður bara ennþá lélegri þegar flugan blotnar.

    Ummæli

    03.03.2013 – Siggi Kr.: Einhvernveginn finnst mér að það marabou sem við notum mest af komi af kalkún frekar en strút. Gæti það verið?

    Svar: Jú, mikið rétt. Hlutfall kalkúns hefur aukist verulega (laumaðist til að bæta honum inn í greinina hér að ofan). Það má næstum orðið skipta marabou fjöðrum í tvennt; þær grófari með lengri fjöðurstaf koma af strútinum en þær fíngerðari af kalkún. Veniard hefur hin síðari ár lagt áherslu á kalkún á meðan Hareline hefur haldið sig að mestu við strútinn en Wapsi bíður hvoru tveggja.

    04.03.2013 – Nafnlaus (því miður): Þú ert náttúrulega að tala um marabou stork ekki þann sem við köllum venjulega stork og kemur með börnin (http://en.wikipedia.org/wiki/Marabou_Stork). Eftir því sem ég kemst næst er hann ekki friðaður.

    Svar: Nú hljóp ég á mig á internetinu, kærar þakkir fyrir ábendinguna. Ég sé ekki betur en þetta sé fullkomlega rétt hjá þér. Það er víst bara sá með bleyjuna sem er friðaður en ekki sá sem hefur verið pakkað í hnýtingarefni. Ég féll í þá gryfju að taka mark á einni heimild (Leland Fly Tying) tilvitnun; „It is now illegal to harvest the feathers from the species and…“ sem ekki reyndist áræðanlegri en þetta. Kærar þakkir enn og aftur.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 268 269 270 271 272 … 349
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 178 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar