Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Hvað skemmir línuna?

    27. mars 2013
    Græjur

    Upp

    Forsíða

    Eitur í beinum
    Eitur í beinum

    Fyrir utan aulaskapinn í okkur sjálfum, léleg köst og niðurslátt í bakkastinu er ýmislegt sem getur skemmt flugulínuna okkar. Eitt það algengasta eru efnasambönd sem við notum í ‚góðri trú‘ til að þrífa línuna og láta hana renna betur. Alþekkt er svokölluð fóbía fluguveiðimanna gegn WD40 smurefninu, ekki flugunni. Sumir ganga svo langt að veiða ekki í vötnum þar sem orð hefur farið af beituveiði sem spreyjuð hefur verið þessu undraefni. E.t.v. er þessi fóbía ekki svo vitlaus. WD40 inniheldur jarðolíur sem þurrka plastefni þannig að efnatengi plastmólíkúla rofnar, sprungur myndast.

    Nútíma flugulínur eru framleiddar úr plastefnum; Polyvinylclorid (PVC), Polyurethan (PU), Polyetheline (PE / PET) eða Vinyl. Öll eiga þessi plastefni það sameiginlegt að þola illa jarðolíur og efni unnin úr henni, misjafnlega þó. Sum þessara efna eru jafnframt viðkvæm fyrir sýrum. Það sem hefur síðan ruglað marga er skammstöfunarblæti framleiðenda þar sem þeir fela viðkomandi plastefni í nýrri skammstöfun og láta líta út fyrir að eitthvað nýtt og stórkostlegt efni sé á ferðinni en yfirleitt eru öll plastefni runnin undan rifjum ofangreindra efna.

    Allt plastefni er viðkvæmt fyrir útfjólubláum geislum sólar. En þetta þýðir ekki að við eigum að bera sólavörn á flugulínuna. Þvert á móti, sólarvörn hefur þveröfug áhrif á plast m.v. húð og flýtir aðeins fyrir því að það brotnar niður. Hiti flýtir öllu þessu ferli og því rétt að forða línunni frá beinu sólarljósi og hita inni í bíl eða stangarhaldara á húddinu. Geymdu stöngina í skugga á milli holla.

    Hér áður fyrr notuðu menn vax á flugulínurnar en það á alls ekki við lengur. Vax var aðeins notað á flugulínur úr silki til að auka flothæfni þeirra. En hvað á maður að nota á flugulínuna í dag? Ef þú vilt á annað borð nota hreinsivörur á flugulínuna, veldu þér þá eitthvað sem þú mundir þora að nota á andlitið á barninu þínu, ekkert annað. Volgt vatn og mild sápa. Áður en þú berð síðan eitthvað á línuna, athugaðu gaumgæfilega hvort það hæfi plasti og þá aðeins vörur til þess gerðar frá framleiðanda viðkomandi línu. Það sem hæfir einni línu getur skaðað aðra. Ef þú vilt endilega ‚spara‘ nokkrar krónur, horfðu þá til silíkonefna. Ekki trúa neinum fullyrðingum um að viðkomandi efni ‚næri‘ plastefnið. Slíkt efni er einfaldlega ekki til, plastefni taka ekki upp næringu. Aftur á móti eru til þau efni sem mynda húð sem verndar plast.  Ókosturinn er bara sá að flest þessara efna hverfa næstum á skemmri tíma heldur en það tekur að bera þau á línuna, sérstaklega þau sem eru vatnsleysanleg.

    Nokkur húsmæðraráð hafa skotið upp kollinum í gegnum tíðina. Án þess að dæma efnin eða þá sem nota þau á línurnar sínar, langar mig að benda á eftirfarandi:

    Armor All er vatnsleysanlegt og inniheldur fjölda efna sem vinna á PVC. Ætli maður treysti bara ekki orðum Simon Gawesworth, hönnuðar Rio ‚Never, ever use Armorall on a PVC fly line. It breaks down the bond and results in very poor durability. The line will dry out and harden with constant use of Armorall.‘

    Rain-X inniheldur ísóprópanól og acetone sem vinna beint á plastefnum t.d. Urethan (PU), polystyrene og PVC. Þetta er því trúlega það efni sem getur lagt flugulínuna að velli bæði að utan og innan. PVC er notað í huluna, PU og polystyrene er notað til að auka flothæfni hennar. Hér er því hægt að slá tvær flugur í einu höggi; eyða hulunni og útbúa sökklínu úr fínu flotlínunni.

    Edik er sýra og þar með ætti ekki þurfa að segja neitt meira. Þeir veiðimenn sem mælt hafa með því að bera edik á flugulínur eru í flestum tilfellum að losa sig við útfellingar sem koma til við veiðar í kalkríku vatni. Eitthvað sem við þurfum ekki að hafa miklar áhyggjur af hér heima, nema menn séu að veiða í affalli jarðvarmavirkjana. Humm, Nesjavellir?

    Sonax mælaborðshreinsir hentar að vísu á vinyl og inniheldur mjög lágt hlutfall jarðefna, en er vatnsleysanlegt efni og endist því skammt. Kannski skársti kosturinn ef þú átt lélega línu sem þú vilt hleypa lífi í skamma stund.

    Og svona til að hnýta endahnútinn á þetta, þá eru hér nokkur efni og áhrif þeirra á plast. Ef þú finnur einhver þessara efna í hreinsivörum eða undraefni, láttu það þá einfaldlega vera.

    Acetone: eyðir PVC, urethan, neophren, polystyren – Ethanole: leysir upp bindiefni í fiber – Tetrahydrofuran: eyðir PVC – Ethylene dichloride: eyðir Teflon – Methyl chloride: eyðir Teflon (mikið notað í stangir) – Methyl ethyl ketone: eyðir Teflon – Methanol: eyðir urethan, neophren, polystyren – Hexafluoroisopropanol: eyðir PET (kókflöskuplastið) sem er mikið notað í flugustangir – Trifluoroacetic: eyðir PET

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Héraeyra

    24. mars 2013
    Úr þvingunni

    Upp

    Forsíða

    Héraeyrað hefur fylgt fluguveiðimönnum frá örófi alda liggur mér við að segja. Mér hefur flugan fylgt alveg frá því ég eignaðist fyrstu hnýtingargræjurnar. Fyrst var hún bústin, síðar enn bústnari en hin síðari ár hefur hún gengið í gegnum nokkuð alvarlegan niðurskurð og á sama tíma hef ég fært mig frá tinsel vöfum og flash-back útgáfum í mjóslegna flugu með nokkuð áberandi koparvír. Svo hef ég látið það eftir mér að framkvæma þau helgispjöll að nota hár úr íkorna í skottið á henni.

    Fátt er vitað um höfund flugunnar, margir verið nefndir en fáir tilnefndir fyrir alvöru. Hvað um það, þessi fluga er önnur vinsælasta fluga silungsveiðimanna á heimsvísu, hvort sem hún er nú veidd ein og sé í löngum taumi eða í félagi við aðrar sem afleggjari (dropper). Í mínu boxi er hún í stærðum #12, #14 og #16 með haus úr Rusty Brown hnýtingarþræði, sem eru náttúrulega bara tiktúrur í mér, ekki of brúnt og ekki of rautt. Uppskrift og alveg stórfína klippu má finna hér.

    Héraeyrað #12, #14 & #16
    Héraeyrað #12, #14 & #16

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Ull – lopi

    21. mars 2013
    Hnýtingarefni

    Upp

    Forsíða

    Íslenskur lopi
    Íslenskur lopi

    Flestir veiðimenn kannast við stórar laxaflugur hnýttar úr ull og má þar nefna Frances og Snældu. Í þessar flugur hafa menn notað spunninn íslenskan lopa og þá helst Létt lopa. En það er hægt að gera ýmislegt fleira við lopann heldur en vefja honum sem garni á fluguna.

    Íslenska ullin er þeim fágæta eiginleika búin að hún skiptist í tog og þel. Togið er gróft og ver kindina fyrir bleytu en þelið er fíngerðara og einangrandi. Takist manni að aðgreina þessar tvær tegundir frá hvor annarri, þá er maður komin með tvennskonar efni í dub með mjög mismunandi eiginleikum. Dub úr togi hrindir mjög vel frá sér vatni og hentar því sérstaklega vel í þurrflugur og hástæðar votflugur. Dub úr þeli er fíngert, dregur í sig vatn og hentar vel í kraga og vængstæði í púpur. Það sem sameinar þetta hvoru tveggja er að þetta er endingargott efni og heldur lit mjög vel.

    Hvernig mönnum gengur síðan að aðgreina þessar tvær tegundir veltu mikið á þolinmæðinni, en það má alltaf nota fíngerðan vírbursta eða kamb til að draga togið úr lagðinum. Kannski er ég að tefla á tæpasta vaðið að miðla hér broti úr bókinni The Practical Fly Tyer eftir Royce Dam, en ég læt slag standa því umræddur kafli er aðgengilegur sem sýnishorn á Amazon, en í þessum kafla fjallar Royce um það hvernig útbúa má dub úr ull. Kaflan má einnig nálgast á PDF formi hér. Bókin í heild sinni er ein sú eigulegasta sem hnýtarar geta komist yfir.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Watson’s Fancy – púpur

    18. mars 2013
    Úr þvingunni

    Upp

    Forsíða

    Í gegnum tíðina hef ég alltaf átt Watson’s Fancy púpu með silfurvafi og silfurkúlu í boxinu. Einstaka sinnum hefur síðan gyðla í stíl slæðst í boxið og svo berrassaður grubber sem hefur fengið að halda viðurnefninu Watson’s þó hann ætti e.t.v. frekar að vera kenndur við orm, blóðorm. Hvað um það, í minningunni er Watson’s Fancy púpan eina flugan með silfruðum kúluhaus sem hefur krækt í bleikju fyrir mig. Trúlega er þetta bara eitthvert bull í mér, en ég verð eiginlega að eiga nokkur svona kvikindi, annars finnst mér eitthvað vanta í boxið. Kannski er það vegna þess að ég hef ekki alveg fundið mig með Killer, frekar veðjað á þessa klassísku rauðu og svörtu púpu sem flestir silungsveiðimenn kannast við. Stærðirnar; smærri frekar en stærri, #12, #14 og #16.

    Watson's afbrigði
    Watson’s afbrigði

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Vefsamfélagið

    15. mars 2013
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Kannski er þetta að verða aðeins of mikið, en….. Flugur og skröksögur eru komnar á Twitter og heita því frumlega nafni @flugur  Þar með geta lesendur og áhugasamir fylgst með fos.is á eftirfarandi miðlum:

    Flugur og skröksögur á Google +Flugur og skröksögur á FacebookFlugur og skröksögur á PinterestFlugur og skröksögur á IssuuFlugur og skröksögur á VimeoFlugur og skröksögur á YouTubeFlugur og skröksögur á Twitter

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Gleraugnaklútur

    15. mars 2013
    Græjur

    Upp

    Forsíða

    Gleraugnaklútur
    Gleraugnaklútur

    Síðari hluta vetrar fóru nokkrir spjallverjar mikinn og lýstu því hvernig best væri að þrífa flugulínuna sína fyrir vertíðina. Eins og gengur komu margar og misjafnar aðferðir fram í dagsljósið. Töfralausnir eins og að bera hinar og þessar tegundir af bílavörum á línuna voru áberandi; Rain-X, Ultra Gloss, bílabón og Armor All. Í guðanna bænum, farið nú varlega eins og einn spjallverji benti á.

    Þegar öllu er á botninn hvolft þá snýst þessi umræða um það að menn eru að sækjast eftir hreinni línu / línu sem rennur vel. Ef línan þín hefur aldrei runnið auðveldlega þá er alveg sama hvað þú berð á hana, rennslið lagast ekki nema í skamma stund. Núningur línunnar við sig sjálfa á hjólinu og í gegnum stangarlykkjurnar er afskaplega fljótur að hreinsa undraefnið af henni.

    Þegar litið er framhjá undraefnunum þá er það hrein lína sem rennur best og það eru ekki stóru skítaklessurnar sem eru leiðinlegastar heldur fasti fíngerði skíturinn. Fjárfesting í góðri flugulínu í upphafi ásamt míkróklút / gleraugnaklút borgar sig einna helst ef þú leitar að góðu rennsli. Ef þú ert duglegur veiðimaður og veiðir klukkustundum saman, láttu það eftir línunni að draga hana annars slagið inn í gegnum gleraugnaklútinn, jafnvel þótt þú sjáir engin óhreinindi á henni.

    Ummæli

    15.03.2013 – Urriði: Var einmitt að þrífa allar línur, hjól og stangir í gærkvöldi… núna er ekkert eftir nema að bíða eftir vorinu!

    Svar: Vorið er barasta komið hér fyrir sunnan og svo hefur sést til lóu í grennd. Verst að vötnin eru ekki opin í ‘grennd’ en þetta fer nú að styttast.

    16.03.2013 – Urriði: Allt undir ís hérna, -7°C og snjókoma…. ekkert vor á næstunni sýnist mér.

    Svar: Frúin mín hafði á orði að þú ættir nú svo fallega á að sumri að það væri vel þess virði að bíða eftir vorinu, verð bara að vera sammála henni.

    16.03.2013 – Þórunn: Sagði nú reyndar líka og á undan að ég vorkenndi honum ekkert! :) Spurning um að hnýta nokkrar flugur í þessu veðrið, hvort sem menn vantar eða ekki :) Bestu kveðjur austur.

    17.03.2013 – Urriði: Haha ég tek bara aukavaktir í staðinn fyrir að hnýta flugur, sagði upp vinnunni og hætti að vinna í lok maí til að geta leikið mér í sumar! Ég gæti ekki vorkennt sjálfum mér þó ég reyndi það :)

    19.03.2013 – Þórunn: Langar svo að segja hérna….æji sjarap :)

    Kristján: Auðvitað nýt ég þess að þetta er bloggið mitt og ég get alltaf sleppt því að samþykkja ummæli sem geta orkað tvímælis, ólíkt mörgum spjallvefjum þar sem innlegg eru ekki ritskoðuð 🙂 Ég sleppi þessu síðasta kommenti inn því ég sá öfundina í svip konunnar við þetta síðasta innlegg frá þér, Urriði, hreint óborganlegur svipur.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 267 268 269 270 271 … 349
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 178 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar