Þurrflugur af bekknum

Ég lét það alveg eiga sig seinni part vetrar að upplýsa um þurrfluguhnýtingar vetrarins. Kannski var ég ekkert of ánægður með útkomuna, baksaði lengi við ýmsar fjaðrir með mismunandi árangri, oftast lélegum. En, svo barst blogginu bréf frá Eiði Kristjánssyni sem færði mér kærkomin útgangspunkt til að tjá mig um þurrflugu(til)raunir mínar í vetur.

Bréfritari ásamt dóttur sinni
Bréfritari ásamt dóttur sinni

Sæll Kristján!

Ég hef nú áður sent þér póst og örugglega komið á framfæri þakklæti mínu fyrir bloggið þitt, en góð vísa er aldrei of oft kveðin og því færðu frá mér fleiri þakkir.

Ég er búinn að setja mér takmark fyrir veiðitímabilið. Ég ætla að fá fisk á þurrflugu. Ég er púpuveiðimaður í húð og hár. Lít helst ekki við „strímerum“, einstaka sinnum hendi ég votflugu undir og aðeins oftar þurrflugu. Oftast set ég þurrfluguna undir þegar ég sé að fiskur er að vaka, en með hjálp google hef ég komist að því að það er ekkert endilega besti tíminn til þess að reyna þurrfluguna. Gáran er víst ekki svo slæm þegar kemur að þessum málum og jafnvel betri, ef eitthvað er. Þá er ég nokkuð viss um að ég megi sýna aðeins meiri þolinmæði með þurrfluguna, en þar sem ég er afar hrifinn af púpunum þá hættir mér til að gefa þurrflugunni lítinn tíma á taumnum, ef nokkurn.

Nú, þar sem ég ætla að veiða meira með þurrflugu í sumar þá langar mig að sjálfsögðu að hnýta mínar eigin. En þar stendur hnífurinn í kúnni. Ég er búinn að vera vandræðast með efni í þurrflugur. Nú veit ég allt (kannski ekki allt en slatta) um undrafjaðrirnar CDC og virkni þeirra. Það sem ég er hinsvegar að spá í eru þessari „hackle“ fjaðrir sem svo oft er talað um. Ég á hanahnakka fjaðrir í nokkrum litum og hef verið að nota þær í þessa vafninga sem eru ýmist fremst á hefðbundnum þurrflugum s.s Royal Wulff eða í kringum „stilkinn“ á parachute þurrflugum.

Það sem ég er hinsvegar ekki að átta mig á er hvernig í ósköpunum ég á að ná fönunum stuttum og fallegum. Hjá mér eru þær allt of langar og ég enda á að þurfa klippa þær til sem leiðir til þess að flugan verður kjánaleg og eiginlega bara alls ekki eins og fyrirmyndin.

Ég hef lesið á blogginu þínu að konan þín sé hrifin af þurrfluguveiðum svo mér datt í hug að þú hefðir kannski hnýtt einhverjar fyrir hana. Geturðu mælt með einhverju efni fyrir mig, einhverri annarri tegund af fjöðrum eða einhverri annarri aðferð?

Bestu kveðjur, Eiður Kristjánsson

Og nú var komið að mér, ég sauð saman eitthvert svar til Eisa með morgunkaffinu og sendi honum með beiðni um að fá að setja bréfið og svörin mín hér á síðuna, sem auðvitað var auðsótt mál.

Mikið kannast ég við þessi ‚hackle‘ mál. Flestar fjaðrirnar sem ég dró upp úr venjulega ‚Short Cock Hackle‘ pokanum mínum frá Veniard voru annað hvort sveigðar og beygðar eða bara alls ekki ‚short‘ þegar ég var búinn að setja hringvöf á fluguna. Ég brá því á það ráð að tæma pokann á súpudisk og flokka þær niður í eftirfarandi; A. Beygðar og ólögulegar fjaðrir sem ég geymdi í t.d. skott á púpum o.s.frv. B. Langar og beinar nýttust í vængi á straumflugur og að síðustu C. Stuttar og beinar, fíngerðar með stuttum geislum út frá hryggnum sem ég gat nýtt í þurrflugur. Því miður náði síðast greindi flokkurinn ekki nema u.þ.b. 10% af innihaldi pokans, en þó það. Af þessum fjöðrum nýttust síðan 2/3 frá oddi í hringvaf einfaldlega vegna þess að því nær slíðrinu sem dregur lengjast geislarnir og verða í raun allt of langir fyrir litlar silungaþurrflugur. Flugurnar sem urðu til úr þessu voru t.d. Hexía, Black Gnat og Adams.

Annað sem ég kannaði í vetur voru s.k.‘Non-hackle- þurrflugur, en mér fannst einfaldlega ekkert sérstaklega varið í þær, kannski helst vegna þess að þær eru flestar ímyndir skordýra sem sjást nánast ekki hér á Íslandi, ennþá. Án þess að fara neitt nánar út í hvernig þessar flugur heppnuðust hjá mér, þá er hérna flýtileið á Google leit (myndir).

Hamurinn
Hamurinn

Það sem ég fann mig síðan best í og hafði mesta ánægju af í vetur, var að nýta efni sem ég keypti í einhverju brjálæði hérna um árið fyrir vildarpunktana mína í gegnum Amazon, heill hamur af Ringneck Pheasant. Ég hef svo sem verið að grípa í þennan ham annars slagið í votflugur og tók þá eftir því að þær flugur sem ég skreytti ríkulega með grófustu fjöðrunum, flutu eiginlega allt of vel þannig að ég fikraði mig áfram með þetta efni í vetur og úr urðu nokkrar flugur sem upphaflega voru hnýttar úr hjartarhárum eða CDC.

Þurrflugur úr Ringneck Pheasant
Þurrflugur úr Ringneck Pheasant

Allar þessar flugur (#12 og #14) eru úr fjöðrum sem ég tók af einum og sama fuglinum og þær fljóta alveg glettilega vel og eru afskaplega einfaldar í hnýtingu; þurrfluguöngull, flatur hnýtingarþráður aftur eftir önglinum og til baka. U.þ.b. 1/5 lengdar frá auga smellti ég síðan örlitlu fjallalambadöbbi (úr þeli) til að lyfta fjöðrunum sem ég hnýtti niður þétt fyrir framan döbbið. Frágangurinn er ekki flókinn, upp og í brúsk rétt fyrir aftan augað, snyrt í heppilega lengd og hnýtt vel fyrir. Nú er bara að sjá hvernig urriðanum og frúnni líkar þetta í sumar.

Þurrfluguboxið mitt
Þurrfluguboxið mitt

Ummæli

03.04.2013 – HilmarGóðar pælingar drengir. Hef verið í svipuðum vandræðum með efnið í þurrflugur, þ.e. hackle allt of langt sem maður á. Náði þó að láta einn félaga minn og ferðalang koma með Grizzly hnakka frá Whitingfarms heim fyrir mig og verð að segja að þá batnaði framleiðslan til muna. Og næst á dagskrá er að ná í 100 pack frá sama fyrirtæki. Maður þar víst að fjárfesta aðeins í þurrflugu efnivið ef maður ætlar að ná að gera þurrflugurnar sæmilegar. En ein besta þurrflugan er þó caddis og flestir eiga efnivið í það, þ.e. elk eða dear hair, og hnýtt á sama hátt og þú gerir úr ringneck hamnum hér að ofan Kristján. Hér er t.d. ein afar einföld caddis Winona Fly Factory

mbk, Hilmar

03.04.2013 – Siggi Kr. (Svarti Zulu)Þurrfluguhnakkarnir frá Whiting eru klassaefni og reyndar er möguleiki minnir mig að fá nokkrar fjaðrir saman í pakka frá þeim en hver fjöður er mjög löng og getur dugað í margar flugur. Ég held að hann Viðar í gallerí flugum hafi verið með efni frá Whiting til sölu en rétt að benda á að þurrfluguhnakkar eru með því dýrara sem maður fjárfestir í við fluguhnýtingar. Ég myndi allavega byrja á því að kíkja í galleríið ef mig vantaði svona efni. En þess utan vil ég endilega hvetja hann Eið til að byrja að líta líka við strímerum því þeir eru ótrúlega skemmtileg veiðitól ;)

Kv. Siggi Kr.

03.04.2013 – UrriðiStraumflugur FTW! Þar sem að alvöru þurrflugurnar mínar fljóta aldrei meira en 2-3 köst þá skilgreinist “þurrfluguveiðin” mín þannig að ég strippa straumflugur í yfirborðinu og sé urriðann koma upp og ráðast á þær…ekkert flottara en það!

Svar: Frábært að heyra hvað menn hafa sterkar skoðanir á þessu. Sjálfur byrjaði ég mest í vot- og straumflugum en síðar náðu púpurnar yfirhöndinni. Samt sem áður eiga straumflugurnar alltaf öruggt pláss í boxinu og nú í sumar ætla ég ekki að horfa upp á frúnna taka hvern fiskinn á fætur öðrum á þurrflugu án þess að geta veitt henni einhverja samkeppni.

04.04.2013 – Eiður KristjánssonSælir! Ég fann einmitt svona hackle poka frá Whiting Farms í Vesturöst rétt eftir að ég sendi Kristjáni póstinn. Hann kostaði rétt tæplega 6.000 krónur!! Reyndar stór poki en alltof dýr. Ég eiginlega gafst upp á “vafnings” þurrflugunum í bili og skellti í nokkrar í ætt við þær sem Kristján birtir hér að ofan. Þær komu virkilega vel út, hlakka til að prófa þær. Notaði reyndar bara venjulegar fjaðrir í þær, hana og urtönd. En þær fljóta vel.

Þetta með straumflugurnar er svo náttúrulega bara persónubundið. Ég notaði straumflugur nokkuð mikið þegar ég var að byrja og fiskaði ekki mikið. Um leið og ég fór að halda mig meira í púpunum fór ég hinsvegar að fiska mun meira. Ég hef bara svo rosalega litla trú á straumflugum, sem er náttúrulega bara vitleysa :)

05.04.2013 – Urriði: Ég er náttúrlega langmest að veiða í straumvatni þar sem straumfluguveiði er auðveldari. Ég veiði alveg jafn vel á púpur og ef e-ð er þá eru þær öflugri og fjölbreyttari veiðitæki….það er bara svo ógeðslega gaman að sjá urriðann koma upp í yfirborðið og ráðast á fluguna (sjá 0:15 hérna)  

og (2:17 og 5:40 hérna)


Í vatnaveiði eru púpur hinsvegar í sérflokki, plús það er bara ekki jafn gaman veiða á straumflugur í vatnaveiði og í straumvatni. Þess vegna nota ég púpur meira í vatnaveiði. Ég verð samt mættur með með straumflugu í ljósaskiptunum í maí og júní til að ná mér í 5kg+ urriða í stórurriðavatninu mínu!

Þurrflugur hafa hingað til bara pirrað mig þar sem að flugurnar fljóta aldrei og línan fælir alla fiska í 100 metra radíus…núna er ég hinsvegar kominn með nettan tvist svo vonandi gengur mér betur með þessa nettu yfirborðsveiði í sumar :)

5 svör við “Þurrflugur af bekknum”

  1. Hilmar Avatar
    Hilmar

    Góða pælingar drengir. Hef verið í svipuðum vandræðum með efnið í þurrflugur, þ.e. hackle allt of langt sem maður á. Náði þó að láta einn félaga minn og ferðalang koma með Grizzly hnakka frá http://whitingfarms.com/prod_whiting.html heim fyrir mig og verð að segja að þá batnaði framleiðslan til muna. Og næst á dagskrá er að ná í 100 pack frá sama fyrirtæki. Maður þar víst að fjárfesta aðeins í þurrflugu efnivið ef maður ætlar að ná að gera þurrflugurnar sæmilegar. En ein besta þurrflugan er þó caddis og flestir eiga efnivið í það, þ.e. elk eða dear hair, og hnýtt á sama hátt og þú gerir úr ringneck hamnum hér að ofan Kristján. Hér er t.d. ein afar einföld caddis http://www.winonaflyfactory.com/sporty-grey-caddis/

    mbk

    Hilmar

    Líkar við

  2. Siggi Kr Avatar

    Þurrfluguhnakkarnir frá Whiting eru klassaefni og reyndar er möguleiki minnir mig að fá nokkrar fjaðrir saman í pakka frá þeim en hver fjöður er mjög löng og getur dugað í margar flugur. Ég held að hann Viðar í gallerí flugum hafi verið með efni frá Whiting til sölu en rétt að benda á að þurrfluguhnakkar eru með því dýrara sem maður fjárfestir í við fluguhnýtingar. Ég myndi allavega byrja á því að kíkja í galleríið ef mig vantaði svona efni. En þess utan vil ég endilega hvetja hann Eið til að byrja að líta líka við strímerum því þeir eru ótrúlega skemmtileg veiðitól 😉

    Kv.
    Siggi Kr.

    Líkar við

  3. Urriði Avatar
    Urriði

    Straumflugur FTW! Þar sem að alvöru þurrflugurnar mínar fljóta aldrei meira en 2-3 köst þá skilgreinist „þurrfluguveiðin“ mín þannig að ég strippa straumflugur í yfirborðinu og sé urriðann koma upp og ráðast á þær…ekkert flottara en það!

    Líkar við

  4. Eiður Kristjánsson Avatar
    Eiður Kristjánsson

    Sælir!

    Ég fann einmitt svona hackle poka frá Whiting Farms í Vesturöst rétt eftir að ég sendi Kristjáni póstinn. Hann kostaði rétt tæplega 6.000 krónur!! Reyndar stór poki en alltof dýr. Ég eiginlega gafst upp á „vafnings“ þurrflugunum í bili og skellti í nokkrar í ætt við þær sem Kristján birtir hér að ofan. Þær komu virkilega vel út, hlakka til að prófa þær. Notaði reyndar bara venjulegar fjaðrir í þær, hana og urtönd. En þær fljóta vel.

    Þetta með straumflugurnar er svo náttúrulega bara persónubundið. Ég notaði straumflugur nokkuð mikið þegar ég var að byrja og fiskaði ekki mikið. Um leið og ég fór að halda mig meira í púpunum fór ég hinsvegar að fiska mun meira. Ég hef bara svo rosalega litla trú á straumflugum, sem er náttúrulega bara vitleysa 🙂

    Líkar við

  5. Urriði Avatar
    Urriði

    Ég er náttúrlega langmest að veiða í straumvatni þar sem straumfluguveiði er auðveldari. Ég veiði alveg jafn vel á púpur og ef e-ð er þá eru þær öflugri og fjölbreyttari veiðitæki….það er bara svo ógeðslega gaman að sjá urriðann koma upp í yfirborðið og ráðast á fluguna(sjá 0:15 hérna https://vimeo.com/53149480 og 2:17 og 5:40 hérna https://vimeo.com/33829567).

    Í vatnaveiði eru púpur hinsvegar í sérflokki, plús það er bara ekki jafn gaman veiða á straumflugur í vatnaveiði og í straumvatni. Þess vegna nota ég púpur meira í vatnaveiði. Ég verð samt mættur með með straumflugu í ljósaskiptunum í maí og júní til að ná mér í 5kg+ urriða í stórurriðavatninu mínu!

    Þurrflugur hafa hingað til bara pirrað mig þar sem að flugurnar fljóta aldrei og línan fælir alla fiska í 100 metra radíus…núna er ég hinsvegar kominn með nettan tvist svo vonandi gengur mér betur með þessa nettu yfirborðsveiði í sumar 🙂

    Líkar við

Senda ábendingu

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Create a website or blog at WordPress.com