
Flugur og skröksögur halda ró sinni yfir hátíðarnar og njóta þess að eyða tímanum með sínum nánustu. Við sendum ykkur öllum, okkar bestu óskir um gleðilega hátíð.


Flugur og skröksögur halda ró sinni yfir hátíðarnar og njóta þess að eyða tímanum með sínum nánustu. Við sendum ykkur öllum, okkar bestu óskir um gleðilega hátíð.
Höfundur:

Þá er síðasta vatnið af Framvötnunum komið á síðuna, Sauðleysuvatn. Um daginn biðlaði ég til lesenda um álit þeirra og innlegg pottinn yfir möguleg ný vötn eða vatnasvæði á síðuna, en heldur var fátt um svör. Aðeins ein uppástunga barst, Veiðivötn. Þar sem ég hef aðeins lagt leið mína einu sinni í þau ágætu vötn í veiði og þekking mín á þeim nokkuð takmörkuð, þarf ég aðeins að leggjast undir feld áður en ég afræð að leggja í þá yfirferð.
Hafi lesendur einhverjar ábendingar um vötn eða vatnasvæði sem þeir kynnu að hafa áhuga á að sjá hér á síðunni, ekki hika við að senda mér ábendingu með því að smella hérna.
Höfundur:
Það er komið, það er komið. Veiðikortið 2015 er komið og með því fylgir eins og venjulega jólabók ársins, Bæklingur Veiðikortsins.
Eins og venjulega er hægt að panta veiðikortið á netinu og fá það sent heim. Biðina eftir póstinum má síðan stytta með því að skoða bæklinginn á netinu hérna.
Vötnin eru 38 þetta árið. Geitabergsvatn, Þórisstaðavatn og Eyrarvatn eru komin aftur en Hópið tekur sér pásu þetta árið.
Að vanda er ýmislegt áhugavert lesefni í bæklinginum; ítarlegar lýsingar á vötnunum, ýmsir fróðleiksmolar um veiði og svo grein um dulda veiðifélaga sem spretta fram þegar minnst varir. Sjá bls. 28.
Það skemmir svo ekki fyrir að verð Veiðikortsins er það sama og í fyrra 6.900,- kr. Kostakjör að endalausri ánægju og afþreyingu.
Höfundur:
Nú er aldeilis lag fyrir veiðimenn að gera góð kaup. JOAKIM’S opnar jólamarkað að Skútuvogi 10F þann 6.des. kl.11
Fjöldi frábærra tilboða á flugustöngum, hjólum, töskum, vöðlum og hnýtingarvörum. Markaðurinn verður opinn sem hér segir:
Höfundur:

Rétt sunnan Löðmundar, eins mikilfenglegasta fjallsins að Fjallabaki, hvílir eitt af nafntogaðri vötnum Framvatna, Löðmundarvatn. Á ýmsu hefur gengið í sögu þessa vatns síðustu áratugina, hæðir og lægðir. Löðmundarvatn er næst-síðasta vatnið í röð Framvatna sem kemur hér fram á síðunni.
Höfundur:
Það er ekki oft sem við veiðifélagarnir bregðum okkur í veiði og gistum í öðru en ferðavagninum okkar, en það kemur fyrir. Kvöld eitt í sumar, rétt í þann mund sem við vorum að taka okkur til í kvöldveiði, kom til mín nágranni á gististað, nokkuð einkennilegur á svip. Þarna var á ferðinni erlendur ferðalangur, veiðimaður í göngutúr um hálendi Íslands án stangar, nánast guðlast en förum ekki út í þá sálma.
Maðurinn virti útbúnaðinn fyrir sér og spurði kurteislega hvort við værum á leið í veiði. Ég játti því og spurði að bragði hvort hann væri veiðimaður. Jú, eitthvað fór fyrir því, hann hefði rétt ný lokið viku veiðiferð til Alaska og gert skemmtilega veiði. ‚En hvar veiðir maður hér?‘, spurði hann og skimaði í kringum sig. Ég átti örlítið erfitt með að finna viðeigandi svar, hefði helst viljað leiðrétta spurninguna og snúa henni við ‚Hvar veiðir maður ekki hér?‘ en ég lét það vera. Þess í stað svaraði ég því til að við hefðum hugsað okkur að skjótast þarna rétt yfir ásinn og renna fyrir urriða í gíg-vatninu sem væri þar undir fjallinu.
Það var víst í ævintýri H.C. Andersen, Eldfærunum, að hundurinn var með augu á stærð við undirskálar og það var u.þ.b. stærðin á augum ferðalangsins þegar ég lét þetta út úr mér. ‚Er fiskur í þessum vötnum sem ég er búinn að labba framhjá?‘, spurði hann loks, fullur vantrúar. Það var beinlínis sárt að horfa á mann greyið þegar ég svaraði honum því til að hér væri fiskur í nánast öllum vötnum og víða allt of mikið af honum, ‘Ertu ekki með veiðistöng með þér?‘ ‚Nei, ég athugaði með veiðileyfi áður en ég kom, en hætti alveg við þegar ég sá verðlagið‘, svaraði hann og leit heldur niðurlútur á gönguskóna sína. Mér datt helst í hug að hann væri að verðleggja þá og væri til í að láta þá upp í veiðistöng á staðnum.

Þessi stuttu kynni mín af þessum veiðimanni á villigötum og spjalli okkar næsta morgun færðu mér heim óþægilega staðreynd sem mig hafði samt grunað í nokkurn tíma. Orðspor íslenskrar veiðimenningar erlendis snýst um hátt verðlag, ekki náttúrufegurð eða almennt aðgengi að veiði á skynsamlegu verði. Það er víst eitthvað til í því að útlendingum finnist eins og við séum að selja fjársjóðinn við enda regnbogans, ekki veiðileyfi. Hér eru einhverjir svo sannanlega á villigötum.
Höfundur: