FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Framvötn 2016

    24. október 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Um þessar mundir birtast endanlegar veiðitölur sumarsins á helstu fréttamiðlum og veiðimenn spá og spekúlera í þeim af miklum móð. Fyrir þá sem sakna annarra veiðitalna en þeirra sem birtast af laxveiði, þá má geta þess að nýverið voru birtar lokatölur úr Framvötnum fyrir sumarið 2016.

    Veiði í Framvötnum 2016
    Veiði í Framvötnum 2016

    Eins og við mátti búast þá stóð Frostastaðavatn upp úr hvað varðar fjölda fiska; 1110 fiskar af þeim 1670 sem vötnin gáfu samtals af sér í sumar.

    Frostastaðavatn 2010 - 2016
    Frostastaðavatn 2010 – 2016

    Eins og sjá má er þetta besta árið frá 2010, þótt ekki muni miklu á árunum  2011 og 2016. Þess ber að geta að tölur fyrir 2015 vantar úr Framvötnum, en miðað við tíðarfar það sumar er víst óhætt að áætla að það ár hafi ekki toppað 2016 þó það hefði getað slagað upp í 2010.

    Ljótipollur 2010 - 2016
    Ljótipollur 2010 – 2016

    Eitthvað virðist veiði í Ljótapolli hafa dregist saman s.l. sumar eftir nokkuð gott ár 2014. Enn er þó langt í land að hann nái 2010 sem vel að merkja, var mjög gott ár í Framvötnum heilt yfir eins og sjá má af heildartölum Framvatna 2010 – 2016 hér að neðan.

    Framvötn 2010 - 2016
    Framvötn 2010 – 2016
    Löðmundarvatn 2010 - 2016
    Löðmundarvatn 2010 – 2016

    Ef við færum okkur aðeins vestar, þá hefur veiðin í Löðmundarvatni verið að rétta aðeins úr sér bæði hvað varðar fjölda fiska og meðalþyngd.

    Veiðin í öðrum vötnum á svæðinu er svona upp og ofan, Dómadalsvatn með 39 fiska sem er nokkuð í takt við það sem verið hefur á liðnum árum og Herbjarnarfellsvatn með 45 fiskar sem er reyndar umtalsvert meira en árin á undan. Það vekur athygli að Sauðleysuvatn og Eskihlíðarvatn eru að stimpla sig inn eftir nokkurra ára fjarveru af listanum og þar hafa veiðst vænar bleikjur þótt meðalþyngdin sé reyndar frekar döpur enn sem komið er.

    Þess ber að geta að veiðitölur Framvatna eru færðar til bókar skv. 80 skýrslum sem skilað var inn á árinu. Heildarlista má finna á vef Veiðivatna, veidivotn.is

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Á döfinni

    1. október 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Þeir eru væntanlega ekki margir staðirnir á landinu þar sem haustið er ekki farið að setja mark sitt á náttúruna. Næturfrost á veðurkortunum, snjóföl í fjöllum og morgnarnir hefjast orðið á því að bregða þarf kreditkortinu á framrúðu bílsins. Hann er genginn í garð, tíminn þegar ég sest niður, rifja upp atvik frá liðnu sumri og set í greinar nokkrar hugleiðingar út frá efninu.

    fos_thingvellir_kirkja

    Nú þegar hafa á fjórða tug greina af ýmsum toga komist á blað og flestum þegar raðað niður til birtingar á vefnum. Þegar 39 dögum hefur verið eytt í veiði á sumrinu, er ekki nema von að fyrstu vikur vetrar fari svolítið í að gera sumarið upp, lesa í aukna innistæðu í reynslubankanum og reyna að læra eitthvað af mistökum sumarsins.

    Væntanlega verða einhverjar nýjar og gamlar flugur kynntar til leiks þegar nýtt ár gengur í garð og þannig kemur eitthvað til með að bætast við þær tæplega 80 uppskriftir og upplýsingar sem þegar má finna á síðunni. Ég er þegar með nokkrar áhugaverðar í sigtinu og þær verða reyndar í hnýtingarþvingunni á næstu vikum. Ef þær verða fiskum bjóðandi fara þær í myndatöku og gerðar klárar fyrir vefinn.

    FOS.IS mun á nýju ári standa eitt skiptið enn fyrir hnýtingarviðburði á Facebook undir nafninu Febrúarflugur. Eins og áður er öllum heimil þátttaka með því að skrá sig til leiks og setja inn myndir af því sem kemur úr hnýtingarþvingunni þann mánuðinn. Engar kvaðir eru á þátttakendum, þeir haga sínum innleggjum eins og hverjum hentar. Væntanlega verður viðburðurinn með svipuðu sniði og áður, en áhugasamir geta þegar skráð sig til leiks með því að smella hérna. Nánar verður fjallað um fyrirkomulag þegar nær dregur.

    Undanfarin ár hafa rétt um 1200 greinar safnast á vefinn og fylgjendum hans fjölgað jafnt og þétt. Það er ekki sjálfgefið að allt það efni sem hér birtist verði áreynslulaust til úr eigin ranni og því er nú einfaldlega þannig farið að fæstir lesendur vefsins hafa mjög hátt um það hvaða efni þeir vilja sjá hér á síðunni. Ef lesendur hafa hug á senda mér ábendingar eða óskir um sérstakt efni, þá er það velkomið og þeim bent á senda mér tölvupóst á kristjan(hjá)fos.is eða nýta sér skilaboðaform sem nálgast má hér á síðunni.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Til hamingju með daginn

    16. september 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Í dag, 16. september, er afmælisdagur Ómars Ragnarssonar og þar með Dagur íslenskrar náttúru. Áhugasömum er bent á fjölda viðburða sem tengdir eru deginum og má sjá þá flesta á vef Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins með því að smella hérna.

    fos_halendissolarlag

    Veiðimenn eru hvattir til að bregða sér í veiði í dag, njóta hreinnar náttúru okkar og ósnortinna fiskistofna. Nú, sem aldrei fyrr, steðjar ógn að okkar viðkvæma lífríki þegar áform um stórfelld umhverfisspjöll eru áformuð við strendur Íslands í formi sjókvíaeldis með erlendum fiskistofnum.

    Segjum nei við því að leppfyrirtæki erlendra fiskeldisrisa komist upp með að flytja hingað mengandi sjókvíastóriðjur sem sannanlega ógna náttúru Íslands. Hvaða dagur er til þess fallinn til að standa vörð um náttúruna, ef ekki Dagur íslenskrar náttúru?

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Aflatölur úr Framvötnum

    3. september 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nýjar aflatölur úr Framvötnum, vötnunum sunnar Tungnaár voru að koma á heimasíðu Veiðivatna. Veiðitölurnar byggja á 55 skýrslum sem skilað hafði verið inn til 30. ágúst. Sem fyrr trónir Frostastaðavatn á toppnum með 966 fiska og Ljótipollur í öðru sæti með 192 stk. Það vekur athygli að í Sauðleysuvatni er þyngsti fiskur skráður 2,8 pund sem eru virkilega jákvæðar fréttir þar sem vatnið hefur verið þekkt fyrir allt annað en væna fiska á undanförnum árum. Svipaða sögu er að segja af Hrafnabjargavatni með 1,3 pund þyngst, en þar hafa að vísu aðeins verið veiddir 7 fiskar það sem af er árs. Bæði þessi vötn hafa átt undir högg að sækja sökum ofsetningar bleikju á undanförnum árum, spurning hvort þar sé að komast upp stofn ránbleikju, en eflaust er of snemmt að fjölyrða eitthvað um það.

    Löðmundarvatn - stendur í 117 fiskum
    Löðmundarvatn stendur í 117 fiskum

    Eins og sjá má vantar ekki nema eina góða dagsstöng upp á að Frostastaðavatni fari yfir 1.000 fiska. Eflaust lumar einhver veiðimaður á óskilaðri veiðiskýrslu sem gæti togað tölurnar yfir þúsundið, nú og svo er sumarið alls ekki búið og margir góðir dagar eftir að Fjallabaki. Ef einhver á í fórum sínum skýrslu sem gleymdist að skila, þá geri ég ekki ráð fyrir öðru en henni megi skila með tölvupósti á info(hjá)landmannahellir.is eða hringja tölurnar inn í síma 893-8407

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Veiðitölur úr Framvötnum

    30. júlí 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Á vef Veiðivatna má finna frétt af aflabrögðum úr Framvötnum. Tölurnar byggja á veiði frá 24. júní til 9. júlí, en það sem vekur athygli er að aðeins er úr 16 veiðiskýrslum að moða á þessu tímabili. Það kemur engum á óvart að Frostastaðavatn trónir á toppinum með 600 bleikjur, næst kemur Ljótipollur með 28 urriða og Dómadalsvatn með 21 stk. Samtals voru því komnir 649 fiskar upp úr vötnunum þann 9. júlí, en verulega hefur bætt í þessa tölu síðan og Herbjarnarfellsvatn m.a. komið á blað með í það minnsta 4 væna urriða.

    Frostastaðavatn
    Frostastaðavatn

    Í fréttinni eru veiðimenn hvattir til að skila inn veiðiskýrslum í póstkassana við Frostastaðavatn og vegamótum Landmannaleiðar og afleggjara að Landmannahelli. Eins má skila skýrslum til umsjónarmanna við Landmannahelli. Það verður spennandi að sjá hvort skýrslum fjölgi ekki eitthvað eftir þessa hvatningu, skil hafa verið mjög léleg m.v. útgefin leyfi og því verður vart trúað að menn hafi núllað á svæðinu í sumar.
    Þess má geta í framhjáhlaupi að skráð heildarveiði 2014 úr Frostastaðavatni voru 624 fiskar og það hefur örugglega verið toppað núna, því inn í tölur ársins vantar m.a. 55 fiska okkar veiðifélaganna úr síðustu ferð. Því miður hafa aflatölur fyrir 2015 ekki verið birtar ennþá.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Nýtt vatn á FOS.IS

    27. júlí 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nýverið fór undirritaður í jómfrúarferð í Langavatn á Skagaheiði. Eins og oft áður nýtti ég tækifærið og tók veiðimenn og umsjónaraðila tali og aflaði nokkurra upplýsinga fyrir vefinn.

    Nú hefur þessum upplýsingum ásamt korti af vatninu verið komið fyrir á vefnum sem aðgengilegar eru hér.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 40 41 42 43 44 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 176 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar