Nýverið fór undirritaður í jómfrúarferð í Langavatn á Skagaheiði. Eins og oft áður nýtti ég tækifærið og tók veiðimenn og umsjónaraðila tali og aflaði nokkurra upplýsinga fyrir vefinn.
Nú hefur þessum upplýsingum ásamt korti af vatninu verið komið fyrir á vefnum sem aðgengilegar eru hér.
Um síðustu helgi var ég svo heppinn að verða vitni að frábærri mætingu félagsmanna Stangveiðifélags Borgarness á Fjölskyldudag við Hlíðarvatn í Hnappadal. Þetta ‚litla‘ félag hefur á undanförnum árum byggt upp glæsilega aðstöðu við þetta rómaða vatn. Veiðihús þeirra félaga, Jónsbúð var reist árið 2010 og nú nýverið var smiðshöggið rekið á aðstöðuna með uppsetningu á vönduðu aðgerðarborði þar á staðnum. Fleiri stangveiðifélög mættu taka sér þetta til fyrirmyndar, það er allt of oft að veiðimenn þurfa að bograst í aðgerð úti í móa og vita svo ekkert hvað á að gera við úrganginn eftir aðgerð.
Hlíðarvatn í Hnappadal
Það var allt sem lagðist á eitt að gera Fjölskyldudaginn að vel heppnaðri samkomu, veðrið lék við veiðimenn og vatn og flestir, ef ekki allir af tæplega 30 gestum dagsins fóru heim með fisk í lok dags.
Eins og áður hefur komið hér fram, þá átti fiskurinn í Hlíðarvatni nokkuð undir högg að sækja fyrir nokkrum árum, en nú hefur hann heldur betur rétt úr kútnum og mikið er af vænum urriða og bleikju í vatninu. Vatnið er nokkuð sérstakt að því leitinu til að vatnsborð þess getur lækkað mikið frá vori til hausts og þetta sumar ætlar vatnsstaðan að vera nokkuð undir meðallagi. Þessar sveiflur í vatnshæð gefa veiðimönnum færi á að kanna veiðistaði sem að öllu jöfnu eru ekki aðgengilegir að vori þegar vatnshæð er í hámarki. Þetta fékk ég að reyna um síðustu helgi þegar við veiðifélagarnir gerðum góða veiði ásamt fleirum við vatnið.
Jónsbúð við Hlíðarvatn – mynd: SVFB
Það veiðisvæði sem Stangveiðifélag Borgarness hefur á leigu er fyrir landi Hraunholta og nær frá vesturbakka vatnsins inn að Álftatanga. Stangafjöldi er ekki takmarkaður á svæði SVFB, enn sem komið er og því tilvalið að hafa þetta svæði í huga þegar stórfjölskyldur vilja taka sig saman um veiðidag eða helgi. Það er einmitt eitt af áhersluatriðum SVFB að skapa félagsmönnum sínum aðstöðu og tækifæri til þess að komast í fjölskylduvæna veiði á viðráðanlegu verði og það hefur svo sannanlega tekist við Hlíðarvatn. Veiðileyfi er hægt að kaupa hjá Sigurði Helgasyni að Hraunholtum og SVFB leigir veiðihúsið til utanfélagsmanna á 5.000,- kr. virka daga og 6.000,- kr. nóttina um helgar. Húsið er einstaklega haganlega byggt, vandað og snyrtilegt og fellur vel að umhverfinu. Hægt er að senda fyrirspurnir um lausa daga og panta veiðihúsið með því að senda póst á svfb310@gmail.com Félagsmönnum SVFB býðst síðan að kaupa árskort í vatnið og nýta sér gæði þess eins og hverjum hentar yfir sumarið.
Þess ber að geta að upplýsingar um vatnið hér á síðunni hafa verið uppfærðar og nýtt kort með þekktum veiðistöðum útbúið.
Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 26. júní. Þennan dag er landsmönnum boðið að veiða í 29 vötnum, víðsvegar um landið. Það er að venju Landsssamband Stangaveiðifélaga sem bíður til þessa og í ár verða eftirtalin vötn í boði;
Austurlandi – Langavatn í landi Staffells, Urriðavatn í Fellum, Þveit, Víkurflóð
FOS.IS hvetur alla sem vettlingi geta valdið að nýta sér þetta tækifæri til að kanna ný vötn eða endurnýja eldri kynni og endilega takið ungviðið með ykkur, það er aldrei of snemmt að koma þeim á bragðið.
Sunnudaginn 12. júní verður haldið upp á hinn árlega Hlíðarvatnsdag í Selvoginum. Undanfarin ár hefur verið gestkvæmt í Selvoginum í lok ágúst, en þetta árið verður dagurinn haldin hátíðlegur nú í júní.
Þennan dag bjóða veiðifélögin gestum og gangandi til veiði í vatninu og ef að líkum lætur gefst mörgum kostur á að smakka einhverja bestu bleikju landsins næsta sunnudagskvöld. Vatnið hefur farið einstaklega vel af stað þetta árið, veiði verið góð og fiskurinn einstaklega vænn og vel haldinn.
Hlíðarvatn í Selvogi
Þeim sem hafa áhuga á að kynnast þessu frábæra veiðivatni er bent á að hér má nálgast ágætar leiðbeiningar um flugur og veiðistaði sem teknar voru saman í bækling árið 2012. Veiðifélögin sem standa að Hlíðarvatnsdeginum eru; Stangaveiðifélagið Stakkavík, Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar, Stangaveiðifélag Selfoss, Ármenn og Stangaveiðifélagið Árblik. Veiðihús þessara félaga verða vel mönnuð á sunnudaginn, kaffi á könnunni og nægar tröllasögur til áheyrnar.
Þegar veiðimenn smitast af bakteríunni á unga aldri er eins gott að einhver nákominn sé þeim innan handar og styðjið við áhugann og leiði menn örlítið áfram. Sem betur fer er það frekar regla heldur en undantekning að foreldrar, afar eða ömmur eru tilbúin að skjótast í veiði með ungviðinu. Við náðum taki á einum ungum veiðimanni sem hefur notið margra góðra stunda við veiði með fjölskyldu sinni og spurðumst fyrir um kveikjuna að veiðiáhuganum.
– Það voru nú pabbi og mamma sem kveiktu hjá mér áhugann með því að gefa mér veiðistöng þegar ég var 3ja eða 4ra ára, svarar Ólafur Arndal Reynisson, 17 ára námsmaður í FB.
Vænn urriði hjá Ólafi
Það hefur væntanlega verið kaststöng?
– Já, þessi líka flotta Batmann-stöng með ýmsum fylgihlutum í boxi þannig að ég kæmist með pabba í veiði.
Hann er þá svolítið í veiðinni líka?
– Já, hann stundar skot- og stangveiði á milli þess sem hann stikar upp um fjöll og firnindi. Hann hefur verið minn kennari, jú og aðrir ættingjar sem ég hef farið með í veiði.
Nú átt þú heima hérna á höfuðborgarsvæðinu, ferðu helst að veiða á þessu horni landsins?
– Nei, alls ekki. Pabbi er ættaður úr Öxarfirðinum og við förum oft norður og veiðum þar í grennd, helst norður á Melrakkasléttu þar sem annað uppáhalds vatnið mitt er einmitt, Æðarvatn. Þar hef ég sett í mína stærstu fiska og ýmislegt skemmtilegt gerst, eins og þegar pabbi stakk sér á eftir veiðistönginni minni þegar 5 punda urriði tók hana út. Það er hægt að hlæja að þessu, svona eftirá.
Þú nefnir það sem annað uppáhalds vatnið þitt, hvert er hitt?
– Það er reyndar vatn hérna í grenndinni sem ég heimsæki stundum með pabba, Stíflisdalsvatn við Kjósaskarð, frábært vatn og flottir fiskar. Pabbi þekki þar landeiganda og við fáum að kíkja annars lagið í vatnið.
Flottur afli úr Æðarvatni
Fyrsta stöngin þín var kaststöng, hefur þú haldið þig við kaststöngina eða veiðir þú eitthvað á flugu?
– Nei, ég veiði mest á maðk eða spún í vötnunum. Annars hef ég líka farið á sjóstöng og leiðist það heldur ekki.
Þið feðgar farið væntanlega eitthvað í veiði í sumar?
– Já, það vona ég svo sannanlega, það er alltaf smá metingur í okkur og ég þarf eiginlega að ná fleiri fiskum heldur en sá gamli í sumar.
Á sjóstöng
Við þökkum Ólafi fyrir samtalið og óskum þeim feðgum góðrar skemmtunar í sumar.
Þetta er ekki eina fyrirsögn hér á síðunni sem lesa má með mismunandi áherslum. Þegar ég setti hana niður á blað var ég með ákveðið ákall í huga; það vantar yngri veiðimenn. Velta stangveiði hér á landi er áætluð tæpir 20 milljarðar á ári og sagt er að þriðjungur þjóðarinnar stundi stangveiði. Þetta eru engar smáræðis tölur og ég viðurkenni fúslega að ég á óskaplega litla hlutdeild í þeim. Ég kaupi mjög takmarkað af veiðileyfum, nota Veiðikortið og félagsskírteini í Ármönnum sem hvoru tveggja veita mér aðgengi að ríflega 40 vötnum þar sem ég get veitt eins og mig listir. Og svo ber ég heldur enga ábyrgð á fjölgun veiðimanna á Íslandi og þá komum við að innihaldi pistilsins; yngri veiðimönnum.
Þannig er að ég lét framhjá mér fara og missti af stangveiðiáhuga sona minna. Í kapphlaupi þess að koma mér örugglega fyrir í lífinu tók ég allt of lítið undir beiðnir um að fara að veiða eða taka veiðistöngina með í útilegur og í dag ég sé töluvert eftir því. Ungt fólk fer mikils á mis ef það stundar ekki útiveru og nær tengingu við uppruna sinn eins og stangveiðin bíður uppá. Í dag er að vaxa úr grasi heil kynslóð sem þekkir silung aðeins sem vacum pökkuð flök í stórmörkuðum, reykt eða grafin. Þessi kynslóð þekkir aftur á móti leynda afkima veraldarvefsins út í ystu æsar, á fjölda ‚vina‘ á samfélagsmiðlum og veit allt um skræpóttar nærbuxur poppstjarna sem gægst hafa upp úr buxnastrengjum á óheppilegu augnabliki. Ungar stúlkur í dag roðna þegar maður segir Peacock og strákar segjast ekki vera neitt fyrir svoleiðis. Ég hef ekki hugmynd um hvað þau lesa út úr þessu göfuga heiti flugunnar en grunar að það sé eitthvað neðan beltis.
Þrátt fyrir þennan mikla fjölda Íslendinga sem leggur stund á stangveiði, þá er heilt yfir um litla nýliðun í stangveiði að ræða. Sama á við um félagsstarf stangveiðifélaganna. Félögin eldast hratt og unglingastarf þeirra á undir högg að sækja. Ef fram fer sem horfir þá verða aðalfundir félaganna haldnir á elliheimilum landsins, helst á milli fyrra kaffis og hádegishressingar þannig að menn sofni ekki undir liðnum önnur mál. En hvað er þá til ráða? Ef þú átt ungliða sem er efni í veiðimann þá eru hér mögulega nokkur atriði sem gott væri að hafa í huga:
Ekki arfleiða neinn að gamla dótinu þínu. Leyfðu krökkunum að velja sér stöng og annan útbúnað, þetta þarf að verða þeirra.
Bjóddu upp á fjölbreytta dagskrá í veiðiferð, gerðu svolítið úr þessu með því að kaupa eitthvað gott í nesti og millimál.
Vertu klár með myndavélina, meira að segja enginn fiskur getur orðið að myndefni.
Veðjaðu á nokkuð öruggt veiðisvæði þar sem fiskurinn tekur, þolinmæði krakka er ekki eins mikil og fullorðinna.
Ekki gera ráð fyrir löngum veiðiferðum til að byrja með og vertu sáttur við að steinar og spýtur á vatnsbakkanum gætu orðið meira spennandi en flot úti á vatni.
Ef allt gengur upp hjá þér ertu kominn með fullar hendur af spurningum, brennandi áhuga ungs veiðimanns og ómældar ánægjustundir.