Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Veiðikortið 2017

    8. desember 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að Veiðikortið 2017 er lent. Sem fyrr eru 35 vötn á kortinu, eitt fellur út og eitt nýtt kemur inn frá því í fyrra. Eflaust sakna einhverjir Meðalfellsvatns af kortinu, ég er sannanlega einn þeirra og þarf nú að finna mér nýtt fyrsta vatn vorsins þar sem ég get vaðið krapa og skautað á ís upp úr 1.apríl.

    fos_vk2017
    Smelltu á kortið til að kaupa

    Nýliðinn á kortinu er Berufjarðarvatn í Reykhólahreppi. Þótt vatnið sé nýtt á kortinu er óhætt að segja að fá vötn eiga sér jafn langa sögu af veiði eins og Berufjarðarvatn og Alifiskalækur sem í það rennur að suðvestan. Í Þorskfirðingasögu er frá því sagt að ungir menn þar í sveit hafi verið frumkvöðlar í fiskirækt, væntanlega einhverjar elstu heimildir um silungseldi sem um getur á Íslandi. Tóku menn fisk úr vatninu og settu í lækinn og gerðu góða veiði þar á eftir. Úr Berufjarðarvatni rennur Kinnastaðaá til Hóps sem gengur inn úr Þorskafirði.

    Með tilkomu Berufjarðarvatns hefur orðið til skemmtilegur veiðislóði sem hefst að sunnan í Haukadalsvatni í Dölum þaðan sem maður getur skotist yfir í Berufjarðarvatn í Reykhólasveit. Þaðan er svo einstaklega falleg leið inn að Vatnsdalsvatni í Vatnsfirði og ef menn kjósa að fara örlítið lengra eru örfáir kílómetrar í Sauðlauksdal og Sauðlauksdalsvatn við Patreksfjörð. Þetta gæti orðið skemmtilegt ferðalag næsta sumar og ekki þarf að hafa með sér ógrynni matar, því öll þessi vötn hafa gefið ágætlega og jafnvel betur en það, hin síðari ár.

    Smelltu á myndina til að lesa fylgirit Veiðikortsins
    Smelltu á myndina til að lesa fylgirit Veiðikortsins

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Ný tímarit

    7. desember 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_vefrit

    VeiðikortiðEitt er það vefrit sem ég bíð alltaf spenntur eftir að glugga í. Það kemur alltaf út á sama tíma árs og ég hef sagt að það marki upphaf jólabókaflóðsins á hverju ári í mínum huga. Auðvitað er ég að tala um fylgirit Veiðikortsins sem nú er komið fyrir sjónir okkar netverja, vandað og glæsilegt rit að venju.

    Í nýjasta tölublaði Angles Edge má finna ágæta grein Fred og Judy-Jones Fraikor um heimsókn þeirra til Íslands s.l. sumar. Eflaust hafa einhverjir áhuga á þeirri grein, alltaf gaman að því þegar Ísland kemst í erlendu pressuna. Meðal staða sem þau heimsóttu var Hólaá, Varmá og Þingvallavatn og auðvitað er Veiðikortsins getið.

    Síðast en ekki síst er komið út nýtt tölublað af Southern Trout. Alltaf eitthvað áhugavert að finna þar. Meðal annars nokkur ráð fyrir þá sem enn eiga eftir að ganga frá veiðigræjunum sínum í geymslunni fyrir veturinn.

     

     

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Ný tímarit

    6. desember 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_vefrit

    Þriðjudagspósturinn inniheldur ný tölublöð af Legacy og The Backcast, ásamt þremur nýjum tímaritum. BTF (Born to fish), Barry Mitchels’s Alberta Fishing Guide og smá stílbrot á síðunni, Lure.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Ný tímarit

    2. desember 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_vefrit

    Tvö af mínum uppáhalds tímaritum voru að senda frá sér ný tölublöð; Dun og Scale. Til að skoða önnur vefrit, smelltu þá á myndina hér að ofan.

    dundes2016
    Dun
    Scale
    Scale

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Ný tímarit

    1. desember 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_vefrit

    Nú fara desember útgáfurnar af vefritunum að hellast inn. Þrjú ný tölublöð að þessu sinni:

    tfm42
    TFM
    NZ fisher
    NZ fisher
    This is fly
    This is fly

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Ný tímarit

    29. nóvember 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_vefritÞrenn ný tímarit tengd stangveiði voru að koma út á veftæku formi. Fyrst er að nefna haustútgáfu Riffle  & Rod sem var að koma út. Síðan hefur lífi verið blásið í tímarit North40 outfitters þar sem oft hafa komið fram áhugaverðar greinar og síðast, en ekki síst þá hefur nýtt tímarit, Fly Punk skotið upp kollinum vestur í Ameríku.

    R&RNorth 40Fly PunkTímaritin má opna með því að smella á smámyndirnar hér til hliðar og að sjálfsögðu eru ný tölublöð annarra tímarita að finna undir Vefrit hér á síðunni.


    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 39 40 41 42 43 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar