Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Fréttir af Febrúarflugum

    9. febrúar 2017
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nú hafa ríflega 100 flugur komið fram í Febrúarflugum þetta árið og greinilega mikið líf með hnýturum landsins. Síðastliðið mánudagskvöld var fyrsta hnýtingar- og kynningarkvöldið á vegum Febrúarflugna og Ármanna haldið í Árósum og aðsókn var hreint út sagt frábær. Á fjórða tug hnýtara og áhugamanna um fluguveiði mættu og áttu góða stund saman.

    rnNæsta mánudag, 13. febrúar, kemur svo Robert Nowak og sýnir okkur hvernig hann ber sig að við að hnýta sínar glæsilegu flugur og ef við þekkjum hann rétt, þá mun ekki standa á svörum eða ráðleggingum til þeirra sem vilja fræðast af honum. Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að mæta í Árósa á mánudaginn. Ef að líkum lætur verður þétt setinn bekkurinn við hnýtingarborðið og því eins gott að taka með sér tól og tæki og mæta á slaginu kl. 20.

    Að gefnu tilefni skal það tekið fram að hnýtingar- og kynningarkvöldin í Árósum eru öllum opin og allir áhugamenn um flugur og fluguveiði eru hvattir til að mæta, byrjendur jafnt sem lengra komnir.

    Þetta kvöld verður Vesturröst líka á staðnum með sýnishorn af vöruúrvali sínu og aldrei að vita hvað þeir draga skemmtilegt fram og sýna okkur, af nógu er að taka í versluninni.

    Sömuleiðis verða Ármenn á staðnum, reiðubúnir að uppfræða gesti um starfsemi félagsins, leiðbeina og svara spurningum ef eftir því verður leitað. Tilvalið að kíkja við og grípa með sér eintak af félagsriti Ármanna, Áróð eða kynningarbæklingi um félagið. Nánar má fræðast um starfsemi Ármanna á nýrri heimasíðu þeirra armenn.is

    feb2017_armenn

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Fréttir af Febrúarflugum

    4. febrúar 2017
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Bara rétt aðeins að láta vita af því að myndir af þeim 42 flugum sem nú þegar hafa verið settar inn á viðburðinn eru komnar hér inn á síðuna.

    Næstkomandi mánudagskvöld verður síðan fyrsta Hnýtingar- og kynningarkvöldið í Árósum, Dugguvogi 13. Þar mun Stefán Hjaltested sitja við, hnýta og spjalla við gesti. Fleira verður á döfinni, því JOAKIM’S verður með vörukynningu og VEIÐIKORTIÐ verður líka á staðnum. Auðvitað verða fleiri á staðnum og eins víst að sett verði í nokkrar flugur. Það ætti engum að leiðast heima, því allir eru velkomnir í kaffisopa í Árósum á mánudagskvöldum í vetur.

    vkani2017febjoakimsanifeb2017_armenn

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Það sem komið er

    2. febrúar 2017
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nú er langt liðið á annan dag Febrúarflugna og þegar hefur mikill fjöldi flugna verið settur inn á viðburðinn á Facebook.

    Eins og okkur grunaði, þá eru alls ekki allir áhugamenn um flugur og fluguhnýtingar á Facebook og því höfum við orðið við þeirri áskorun að setja myndir af flugunum inn á FOS.IS  Ætlunin er að uppfæra myndasafnið reglulega, en það sem komið er inn má sjá hérna.

    Við viljum vekja athygli á að þeir sem ekki eru á Facebook er velkomið að senda okkur myndir með tölvupósti á fos@fos.is

    fos_feb2017

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Það er byrjað

    1. febrúar 2017
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Þriðja árið í röð stendur FOS.IS fyrir hnýtingarviðburðinum Febrúarflugur. Eins og áður fer viðburðurinn fram á Facebook þar sem hnýtarar setja inn myndir af þeim flugum sem þeir eru að hnýta og áhugamenn um flugur og fluguhnýtingar geta virt afraksturinn fyrir sér.

    Að þessu sinni verður aukið verulega við dagskránna því í samstarfi við Ármenn verða haldin fern hnýtingarkvöld í Árósum, Dugguvogi 13, frá kl. 20 – 22, alla mánudaga í febrúar. Þar gefst gestum kostur á að kynnast handbragði nokkurra þekktra hnýtara, s.s Stefáns Hjaltested, Robert Nowak, Ingvars Ingvarssonar og Hjartar Oddssonar, auk þess sem gestum er boðið að nýta sér aðstöðu Ármanna til hnýtinga og fluguspjalls yfir rjúkandi kaffibolla. Að auki munu styrktaraðilar Febrúarflugna vera á staðnum og kynna hnýtingar- og stangveiðivörur sínar fyrir gestum og gangandi.

    fos_februarflugur_logo

    Í fyrra bárust hátt í 400 flugur í viðburðinn og vonir okkar standa til að enn fleiri berist að þessu sinni. Ungir og upprennandi hnýtarar eru eindregið hvattir til að leggja sitt að mörkum, sýna flugur sínar og handbragð og njóta leiðsagnar reyndari hnýtara á hnýtingarkvöldunum.

    Þess má geta að nöfn nokkurra heppinna þátttakenda verða dregin út í lok mánaðarins og hljóta veglegar viðurkenningar frá styrktaraðilum viðburðarins sem eru Árvík, Flugubúllan, Joakim‘s, Sunray.is, Veiðikortið og Vesturröst.

    Allar nánari upplýsingar og dagskrá má nálgast hér á síðunni.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Ný tímarit

    26. janúar 2017
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_vefritLestrarskammtur vikunnar inniheldur að þessu sinni þrenn ný tölublöð. Þar sem Febrúarflugur eru alveg að smella inn, langar mig að vekja sérstaka athygli á hnýtingartímariti IFFF Tying Times þar sem m.a. má finna nokkur góð ráð fyrir myndatöku á flugum, eitthvað sem margir munu örugglega stunda í febrúar.

    TyingTimes
    TyingTimes
    ThisIsFly
    ThisIsFly
    Seatrout Fyn
    Seatrout Fyn

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Ný tímarit

    15. janúar 2017
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_vefrit

    Alltaf eitthvað nýtt að lesa, þrenn ný tölublöð eru komin inn á Vefrit:

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 37 38 39 40 41 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar