Bara rétt aðeins að láta vita af því að myndir af þeim 42 flugum sem nú þegar hafa verið settar inn á viðburðinn eru komnar hér inn á síðuna.
Næstkomandi mánudagskvöld verður síðan fyrsta Hnýtingar- og kynningarkvöldið í Árósum, Dugguvogi 13. Þar mun Stefán Hjaltested sitja við, hnýta og spjalla við gesti. Fleira verður á döfinni, því JOAKIM’S verður með vörukynningu og VEIÐIKORTIÐ verður líka á staðnum. Auðvitað verða fleiri á staðnum og eins víst að sett verði í nokkrar flugur. Það ætti engum að leiðast heima, því allir eru velkomnir í kaffisopa í Árósum á mánudagskvöldum í vetur.