Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Febrúarflugur 2017

    7. janúar 2017
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Nú ætlar FOS.IS að standa fyrir hnýtingarviðburðinum Febrúarflugur þriðja árið í röð. Skráning er hafin á Facebook og stofnað hefur verið afdrep fyrir 2017, 2016 og 2015 hér á síðunni þar sem gefur m.a. að líta allar þær flugur sem lagðar hafa verið til viðburðarins síðustu tvö ár.

    Allar nánari upplýsingar um viðburðinn má finna hér og auðvitað á viðburðinum sjálfum á Facebook. Áhugasamir veiðimenn og hnýtarar eru hvattir til að deila þessum viðburði eins og kostur er, þetta árið er markmiðið að fjölga þátttakendum og flugum. Í fyrra náðum við 390 flugum frá 40 hnýturum, þannig að það er stefnt á glæsilegan viðburð þetta árið.

    fos_feb2017

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Ný tímarit

    2. janúar 2017
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_vefritFern ný tölublöð skutu upp kollinum í síðustu viku inn á FOS.IS  Þetta eru Southern Trout – Ozark Edition, The Flyfisher Magazine, H2O og Lure. 

    Ozark
    Ozark
    TFM
    TFM
    H2O
    H2O
    Lure
    Lure


    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Í upphafi árs

    1. janúar 2017
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Þá er nýtt ár gengið í garð eins og vera ber. Hér á síðunni hefur skapast sú hefð að uppfæra dagatalið þann 1.janúar ár hvert og ekki verður brugðið út frá þeirri hefð. Nýlega kannaði ég hverju gestir síðunnar hafa leitað helst að á umliðnum árum og þá lenti orðið dagatal nokkuð ofarlega á listanum og þessi einstaki liður hefur verið opnaður yfir 25.000 sinnum frá því hann birtist hér fyrst. Það eru því greinilega einhverjir sem nýta sér þetta grúsk mitt að setja gagnlegar upplýsingar fyrir veiðimenn saman í eitt dagatal.

    Dagatalið vinn ég með ýmsum reikniformúlum og sameina síðan fyrir hvern dag ársins. Þannig má í dagatalinu finna upplýsingar um alla helstu tillidaga ársins; sólarupprás hvers dags, sólsetur, ásamt tímasetningu og hæð árdegis- og síðdegisflóðs. Innan hvers mánaðar má svo vitaskuld finna upplýsingar um stöðu tungls og þannig stærstu strauma.

    Þar sem hér er um útreiknaðar upplýsingar að ræða geta þær vikið frá rauntíma um einhverjar mínútur, en það kemur vonandi ekki að sök. Dagatal ársins 2017 má nálgast hér.

    fos_nytt2017

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hátíðarkveðja

    24. desember 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_hatidarkvedja2016

    Flugur og skröksögur halda ró sinni yfir hátíðarnar og fagna hækkandi sól með þá von í brjósti að fylgjendur síðunnar, vinir og vandamenn hafi það náðugt þessa fáu en góðu daga.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Ný tímarit

    20. desember 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_vefrit

    Síðustu viku hef ég bætt inn sex nýjum tölublöðum vefrita hér á síðuna. Þau eru; HookedUp, Magasin Mitt Fiske, NZFisher, Catch, High Country Angler og North 40. Allt eru þetta áhugaverð tímarit, þótt ég hafi mest dálæti á Catch og High Country Angler. Búast má við nokkrum fjölda nýrra tölublaða það sem eftir lifir desember og ég mun gera mitt besta til að vekja athygli á þeim eftir því sem fram vindur.

    HookedUp
    HookedUp
    Mitt fiske
    Mitt fiske
    NZFisher
    NZFisher
    Catch
    Catch
    HCA
    HCA
    North 40
    North 40

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Ný tímarit

    13. desember 2016
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_vefrit

    thisisfly60Meðal efnis í nýjasta This is fly má nefna grein um Mark Rauschenberger, fluguveiðimann og hnýtara. Annars er flest af efninu í þessu tölublaði að mestu ættað í grend við miðbaug jarðar og töluvert fjallað um veiði á framandi fiskum sem ég kann ekki að nefna.
    fos_div

    ffi14

    Það kveður við nokkuð annan tón í nýjasta tölublaði Flyfishers Inc.  Þetta Ný-Sjálenska tímarit hefur lengi verið á leslistanum mínum, enda umhverfi veiðimanna þar og fiskarnir sem þeir glíma við ekki svo frábrugðið okkar hér á Íslandi.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 38 39 40 41 42 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar