Nú í vetur las ég nokkuð skemmtilega grein eftir Simon Gawesworth um Buzzer og það sem aðskilur hann frá Blóðormi. Í stuttu máli; Buzzer er bara samheiti veiðimanna yfir lirfur rykmýs, ekki bitmýsins, sem finnast á stjái í vötnum norðanverðrar Evrópu þegar kemur að því að flugan klekst út. Simon er afar stífur á því að Buzzer getur aldrei verið rauður, þá heitir hann Blóðormur (Bloodworm) og er fastur við botninn. O, jæja, hugsaði ég með mér, hverju skiptir hvað við köllum kvikindið, svo lengi sem það gefur fisk. Síðan settist ég niður og hnýtti nokkrar útgáfur af Blóðormi (þessum rauða) til að hafa í boxinu í vor, já og raunar langt fram á sumarið.
Ég get svo sem verið sammála Simon að Buzzer og Blóðormur séu bara samheiti flugna og því eru Blóðormarnir mínir afskaplega mismunandi í útliti og lögun. Þegar svo kemur að því að velja Blóðorm fyrir fisk ræður skap mitt í það og það skiptið væntanlega meiru um valið heldur en gaumgæfileg skoðun á útliti þeirra í vatninu. Það er nefnilega alls ekki svo einfalt að greina útlit þeirra í vatninu, maður velur bara einn og skiptir um þangað til hann bítur á.
Eins og glöggir lesendur síðunnar tóku eftir fyrir skömmu, fékk ég smá hjálp við hnýtingarnar sem urðu til þess að gamlir krókar dúkkuðu upp úr krókaboxinu mínu. Þegar ég réðst á hrúguna valdi ég þá leið að flokka krókana með einföldum samanburði, án þess að leiða nokkuð hugann að merktum stærðum þeirra. Það kemur e.t.v. engum vönum hnýtara á óvart að hrúgurnar mínar urðu nokkuð fleiri heldur en merkingarnar í boxinu sögðu til um. Sem dæmi get ég nefnt að af #12 sem ég taldi mig eiga í lengdum Standard, 1XL og 2XL komu fimm hrúgur. Áferð krókanna sagði mér auðvitað að hér væru í það minnsta 3 mismunandi framleiðendur á ferðinni og lengdirnar töluvert mismunandi hjá þeim öllum. Þannig endaði ég með einhverjar millistærðir þegar ég var búinn að taka frá þá styðstu, miðlungs og lengstu.
Krókur
Auðvitað vaknaði forvitnin hjá mér og ég lagðist í netið í skýringaleit. Sem sagt; smátt og smátt hafa framleiðendur reynt að sammælast um hver stærð önguls #10 sé, þ.e. bilið á milli odds og leggjar ( 8 á myndinni hér til hliðar ) og útbúa einhvern staðal þannig að þegar við kaupum #10 frá Mustad er bilið jafn stórt og á #10 frá Kamasan. Svo virðist sem frændur okkar í Noregi hafi vinninginn því flestir framleiðendur hafa sæst á að nota stærðarflokkun Mustad sem viðmið.
Þessar aðlaganir framleiðenda hafa orðið þess valdandi að nokkuð reglulega hafa krókar framleiðenda skipt um vörunúmer og stærðarflokkun síðustu árin með tilheyrandi óþægindum fyrir veiðimenn en á sama tíma hafa stærðirnar staðlast. Aftur á móti virðist vera aðeins lengra í það að framleiðendur komi sér saman um samræmda merkingu fyrir lengd króka, þar kennir ennþá ýmissa grasa sem ég fékk sko heldur betur að kenna á þegar ég sorteraði hrúguna mína. Ég sem sagt sat uppi með mun fleiri lengdir í hverri stærð heldur en ég hafði nokkurn tímann keypt.
Á öllu þessu rápi mínu um netheima hrasaði ég auðvitað um alls konar samanburðartöflur á krókum ýmissa framleiðenda, sumar flóknari heldur en aðrar, aðrar einfaldari. Til gamans tók ég nokkrar þessara taflna, sneið af þeim króka sem mér þóttu utan áhugasviðs og framleiðendur sem ég hef aldrei heyrt nefnda. Úr varð mini-útgáfa sem hef sett hér á síðuna undir Töflur / Krókar. Til að einfalda samanburð smellti ég síðan myndum af umræddum krókum inn í töfluna til glöggvunar.
Þegar þessi verður til í skotinu mínu og fyrir valinu verður grubber öngull þá heitir hún WD-40. En þegar beinn öngull verður fyrir valinu, þá fær hún í mínum huga heitið Tailor. Auðvitað eru þær ekki eins, meira að segja töluverður munur á þeim m.v. uppskriftirnar en þegar upp er staðið og þær komnar í vatnið er lítill munur á þeim, í það minnsta eins og ég hnýti þær. Ég hnýti þessa flugu (WD-40) með Ultra Dark Brown 70 þræði til að ná fram áberandi skilum í búk flugunnar þegar hún er komin í vatnið, það myndast skemmtilegur contrast á milli ullar og þráðar sem silungurinn virðist alveg gleypa við.
Þessar flugur eru hluti ættartrés Pheasant Tail þótt hráefnið sé allt annað. Allar þrjár eru ómissandi í boxinu þegar gráðugur silungurinn er annars vegar.
Söðulfjaðrir eru heldur lengri heldur en hnakka- eða hálsfjaðrir en svipar að öðru leiti nokkuð til þeirra. Samhverfar og oddmjóar og henta því vel í hringvöf, hvort heldur í þurr- eða votflugur. Dýrustu fjaðrirnar eru af séröldum fuglum og mjög eftirsóttar í þurrflugur. Hver fjöður dugir í fjölda flugna vegna þess hve geislar þeirra liggja þétt og eru jafnir.
Á síðustu árum hefur tískubylgja meðal kvenna erlendis orðið til þess að verð þessara fjaðra hefur rokið upp úr öllu valdi og í verstu tilfellunum hafa framleiðendur látið fjaðrir til fluguhnýtinga sitja á hakanum sem hefur enn aukið á skortinn.
Sú fluga sem kom mér mest á óvart árið 2012, Higa’s SOS. Það var í lok árs 2011 að ég rakst á skemmtilega grein um þessa sára einföldu flugu sem gert hafði góða hluti vestan hafs þá um árið. Eftir að hafa prófað að hnýta kvikindið setti ég uppskriftina að henni hingað á síðuna og reyndi hana svo fyrir alvöru s.l. sumar. Í sem fæstum orðum; stórkostleg fluga sem ég veit að fleiri hafa prófað með mjög góðum árangri.
Þó upprunalega uppskriftin nefni silfurkúlu, þá hef ég látið það eftir veiðifélaga mínum að setja á hana svarta kúlu fyrir næsta sumar. Það kemur síðan í ljós hvor virkar betur, silfur eða svört. Ég fer ekki í veiði án þessarar flugu í stærðunum #10 – #16 og nú er búið að fylla á tvö box af þessu undrakvikindi.
Higa’s SOS
Ummæli
Ingó – 10.02.2013: Ég hnýtti haug af þessari síðasta vetur og hún gaf ótrúlega vel í Þingvallavatni eftir miðjan júní. Þá virtist engu máli skipta hvort hún var hnýtt með vængstubb úr glitþræði eða ekki. Spennandi að sjá hvort bleikjan tekur hana jafnt grimmt næsta sumar eða hvort hún verður komin úr tísku Ingó
Palli G. – 13.02.2013:Þessari verður klárlega bætt í rotation-ið.
Nú er komið að því, RISE 2013 verður haldin í Bíó Paradís, fimmtudagskvöldið 7. mars. Eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá Stjána Ben. opnar húsið kl.19 en sýningar hefjast kl.20.