Miðvikudagskvöldið 15. apríl ætla Ármenn að efna til Flóamarkaðar þar sem kostur gefst á að koma ónotuðu veiðidóti í verð eða góðra manna hendur. Þarna gefst frábært tækifæri til að koma gömlum stöngum, hjólum, vöðlum og hnýtingarverkfærum á framfæri og gera mögulega úr þessu smá aur sem nýta má til að kaupa það sem vantar af öðrum veiðimönnum á staðnum.
Þegar hafa margir félagsmenn og söluaðilar boðað komu sína og kennir ýmissa grasa í því sem boðið verður uppá. Þetta er frábært tækifæri til að losa aðeins um pláss í geymslunni eða fylla í auðar skúffur.
Ármenn sjálfir hyggjast selja nokkrar lausar stangir í Hlíðarvatni í Selvogi áður en þær fara í almenna sölu á leyfi.is Það getur því borgað sig að taka með sér smá aur á miðvikudagskvöldið og kíkja á Flóamarkaðinn.
Flóamarkaðurinn verður haldinn í Árósum, félagsheimili Ármanna að Dugguvogi 13 (sjá kort) og hefst stundvíslega kl.20:00. Allir velkomnir með gamalt og nýtt
