Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Sokkabuxur

    21. júlí 2012
    Hnýtingarefni

    Upp

    Forsíða

    Nei, þú ert ekki að misskilja fyrirsögnina. Sokkabuxur, þessar sem þvælast um í þurrkaranum innan um sokkana okkar strákanna, eru alveg tilvaldar til fluguhnýtinga. Þær eru alveg tilvaldar til að halda brjóstunum á Bobbingaflugum á sínum stað og ekki síðra efni í bak á púpum, helst rækjum. Mér skilst að líftími svona buxna sé frekar skammur og það falli alltaf eitthvað til af svona dóti, helst hjá konum. Þeir ykkar hnýtaranna sem ekki nota svona græjur sjálfir, endilega setjið inn pöntun hjá kunnugum fyrir svona græjum, helst í mismunandi litum. Athugið: netsokkabuxur hafa takmarkað notagildi við hnýtingar. Þú getur lesið meira um Bobbingaflugur á blogginu hans Svarta Zulu hérna.

    Ummæli

    21.07.2012 – Þórunn Björk: Aha….þetta útskýrir ýmislegt…..en,…í hvað notaðir þú þá netsokkabuxurnar?

    Svar: Við ræðum þetta bara á koddanum, frú mín góð.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Toppurinn

    21. júlí 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Að halda úti bloggi er góð skemmtun og sérstaklega þegar það virðist vekja einhverja eftirtekt og einhverjum ánægju. Í gær, föstudaginn 20.júlí kom nokkuð óvæntur toppur í heimsóknirnar á bloggið.

    783 heimsóknir á einum degi, fyrra metið var 533 frá því um svipað leiti í fyrra og nú hafa innlitin á bloggið skriðið yfir 85.000 frá því ég byrjaði á þessari dellu í maí 2010. Ég hef sagt það áður og segi það enn, mín laun fyrir þetta spjall eru heimsóknirnar og mér finnst eins og ég hafi fengið einhvers konar jólabónus í gær.

    Ég hafði hugsað mér að launa lesendunum mínum innlitin þegar nýjum toppi væri náð og nú fer ég á fullt að skoða málið í samvinnu við góða aðila. Meira um það þegar málin skýrast. Bestu þakkir fyrir mig, nú er ekkert annað að gera en að setjast niður og sjóða saman greinar fyrir næstu vikur…. gott að nýta rokið og rigninguna til þess svona inn á milli veiðiferða.

    Ummæli

    21.07.2012 – Gústaf Ingvi: Þetta er líka stór skemmtileg síða hjá þér og áttu hrós skilið fyrir. keep up the good work :)

    23.07.2012 – Sigurjón: Þetta er frábær síða sem ég er farinn að lesa reglulega svo það er ekkert skrýtið að hún sé farin að vekja athygli. Takk fyrir mig.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Úlfljótsvatn 20. júlí

    21. júlí 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Eftir afskaplega stutt stopp í Þingvallavatni undir kvöldmat, tókum við hjónin okkur upp og héldum áfram í Úlfljótsvatnið í fyrsta skiptið í sumar. Ástæðan; bölvuð undiralda í Þingvallavatni sem gerði það að verkum að maður mátti hafa sig allan við að draga línuna inn til að lágmarka slaka.

    Rétt í þann mund sem við vorum að renna inn fyrir Steingrímsstöð mættum við, alveg óvart, Mosó-genginu sem hafði verið á yfirreið um Þingvalla- og Úlfljótsvatn um daginn. Litlar sögur af afla, eitthvað nart og töluvert að smárri bleikju og nú voru þau á leiðinni heim, e.t.v. með einhverju stoppi í grennd við Skátamiðstöðina. Við hjónin treystum á að fiskurinn mundi sýna sig með kvöldinu og skröngluðumst inn í Hagavík.

    Ekki þurfti frúin mörg köst þar til hún tók þokkalega bleikju á Higa’s SOS en annars var bara nart á ferðinni til að byrja með en með kvöldinu varð allt beinlínis vitlaust í stillunni. Vakað um allt vatn svo langt sem eygði og tittir á í öðru hverju kasti, í það minnsta hjá mér, en frúin bætti fjórum alveg þokkalegum bleikjum við svona inn á milli. Kvöldið var sko ekki mitt, eitt þeirra þar sem ekkert gengur upp; köstin léleg, ekkert rennsli í línunni (þarf að þrífa hana), vindhnútar á vindhnúta ofan o.s.frv. Tókst þó á endanum að krækja í vænsta fisk kvöldsins, hængur rétt yfir pundið þannig að fisklaus fór ég ekki heim. Flugurnar sem gáfu voru;

      

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     88 14 46 4 28 11
    (Sleppi því vísvitandi að skrá slepptum bleikjum í þessari veiðiferð, tómir tittir)
    

    Ummæli

    21.07.2012 – Siggi Kr: Nei heyrðu mig nú! Hverslags töfrafluga er þessi Higa´s SOS eiginlega? Er fiskurinn bara alveg vitlaus í þetta? Nokkuð ljóst að nú verður sest við væsinn (fyrst ekki viðraði nógu vel fyrir fyrirhugaða Framvatnaferð) og bleikjunni í Breiðavatni boðið upp á þessa krás næstu helgi. Kannski hún nái að skáka Króknum góða þar. En í hvaða stærðum er hún aðallega að virka hjá ykkur?

    Svar: Já, þetta kvikindi er alveg ótrúlegt. Við höfum haft hana með okkur í stærðum 10,12 og 14. Byrja yfirleitt með hana í 12 og á þá hinar stærðirnar til vara. Hef verið óhræddur að nota hana #10 í gruggugu vatni eða ölduróti, minnka hana frekar í björtu veðri. Það skemmtilega við hana er að bæði urriðinn og bleikjan eru alveg til í tuskið með henni.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Þingvallavatn – Vatnsvik 18. júlí

    19. júlí 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Þegar kvöldin eru eins falleg og þau gerast á þessum árstíma er fátt betra en bregða sér aðeins út af malbikinu og teyga náttúruna, t.d. á Þingvöllum. Við hjónin stóðumst ekki mátið og brugðum okkur á Vellina í kvöld. Dásamlegt veður og veiðimenn á hverjum tanga og tá.

    Leynt og ljóst stefndum við í Vatnsvik þar sem gæftaleysi mitt í vatninu var rofið ekki alls fyrir löngu, nú átti að reyna að koma fiski á flugu frúarinnar. Við fundum okkur sitt hvora tánna, tangi væri oft sterkt til orða tekið, og teygðum aðeins á línunum. Ekki leið á löngu þar til ég setti í þessa líka fínu hryggnu, einhvers staðar á milli punds og tveggja, flottur fiskur og skömmu síðar heyrðist hljóð frá minni, þ.e. konunni; Kristján, hann er á og ánægjan og spenningurinn leyndi sér ekki, hængur, rúmt pund. Skömmu síðar heyrði ég; Ég er sko alveg með þetta þegar annar eins lág á bakkanum hjá henni, mín alltaf jafn hógvær.

    Við urðu vör við töluvert af fiski eftir þetta, mikið nartað og einhverjar tökur en fleiri fiskar komu ekki upp á bakka, nema þá einn sem frúin setti í en sleppti. Einkennilegur fengur sem ég hef ekki séð tekin á flugu áður, dvergbleikja, ekki nema rétt um 8 sm. að lengd. Já, það er fátt sem frúin ekki fangar.

    Frábært kvöld við Þingvallavatn og ekkert leyndarmál að allir fiskarnir sem við tókum komu á opinbert leynivopn okkar, Higa’s SOS. Vonandi hafa einhverjir aðrir veiðimenn tekið fisk, nóg var af báðum tegundunum við vatnið í kvöld.

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     82 14 46 4 27 11

    Ummæli

    19.07.2012 – Þórunn Björk: Auðvitað verður maður hógværðin uppmáluð þegar maður loksins sigrar eitthvað vatnið :)tala nú ekki um eftir milljón og sjö ferðir þangað, svona h.u.b. En þessi litli var ótrúlega krúttlegur…hélt ég hefði krækt í spún, en hann hefði eflaust verið þyngri í inndrætti…spurning um að kíkja aftur í kvöld !

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Fluguköstin

    16. júlí 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Ég hafði orð á því um daginn að nokkuð skemmtilegt stæði til hjá Berki Smára, FFF flugukastkennara, og það kom í ljós á mbl.is í dag. Fyrsta myndbandið af sjö þar sem Börkur fer í gegnum m.a. The Essentials of Fly Casting eða því sem næst. Fyrsta myndbandið er komið í loftið, endilega skoðið það hér og fylgist með þeim næstu. Frábært að fá svona atriði beint í æð á svona flottann hátt, það líða vonandi ekki margir dagar þar til við sjáum #2.

    Ummæli

    16.07.2012 – Eiður Kristjánsson: Við, næstum því, hjónin vorum hjá Berki í dag. Algörlega frábært! Strákurinn er góður kennari og það er hrein unun að horfa á hann kasta. 

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Holtavörðuvatn 15. júlí

    16. júlí 2012
    Veiði

    Upp

    Forsíða

    Þau eru orðin nokkur vötnin sem við hjónin höfum prófað í fyrsta skiptið á þessu ári og í dag bættist enn eitt við. Það hafa væntanlega ótrúlega margir keyrt framhjá þessu vatni án þess að gefa því neitt sérstakan gaum; Holtavörðuvatn á Holtavörðuheiði.

    Á leið okkar úr Hólmavatni á Laxárdalsheiði ákváðum við í trausti þessað heimildir okkar væru réttar um almenna veiðiheimild í vatninu, að renna niður að vatninu á leið okkar um heiðina. Fyrir okkur varð veiðimaður sem ég tók tali og hafði hann fyrir satt að veiði væri öllum heimil þannig að við létum reyna á græjurnar við norðuenda vatnsins. Mér liggur við að segja; eins og venjulega leið ekki á löngu þar til frúin var búin að setja í bleikju, eða nei, murtu. Og svo aðra, og aðra. Ég varð var við nokkuð hraustlegan urriða en tókst ekki að festa hann tryggilega þannig að hann slapp, en á endanum fékk ég sárabót; murtu sem ég sleppti.

    Þar sem þetta stopp okkar var frekar til gamans gert heldur en hitt, létum við gott heita og héldum ferð okkar heim á leið áfram. En, eftir stendur að níunda nýja vatnið á árinu er komið á blað.

    Veiðitölur ársins

    Bleikjur Sleppt Urriðar Sleppt Fj.ferða Núllað
     79 14 46 4 26 11

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 284 285 286 287 288 … 349
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 178 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar