Allt varð fullt á fyrsta námskeiðinu hjá Berki Smára á þriðjudaginn, en örvæntið ekki því auka byrjendanámskeið verður n.k. miðvikudag 11. júlí! Nú er bara að rífa sig upp úr sófanum og smella sér á námskeið.
Byrjendanámskeið eins og það sem var haldið síðastliðinn þriðjudag verður haldið miðvikudaginn 11. júlí. Nánari lýsingu er hægt að nálgast á heimasíðu Barkar undir Kastnámskeið í júlí. Skráning er á borkur.smari@gmail.com eða í síma 666-1990.
Svo hef ég öruggar heimildir fyrir því að strákurinn er með nokkuð skemmtilegt í bígerð næstu daga og vikur, fylgist með.
Loksins, loksins. Mér er engin launung á því að upplýsa að ég hef aldrei náð fiski úr Þingvallavatni fyrr en í dag. Þrátt fyrir heldur dökka veðurspá í morgun, ákvað ég að hella upp á brúsann minn, lauma kexi í bakbokann og leggja land undir fót. Hafði í huga að renna á Þingvöll og prófa enn eitt svæðið, Lambhaga og þá e.t.v. Presthólmann, en þegar ég var kominn á staðinn var greinilega mjög margt um manninn í Haganum þannig að ég hélt bara áfram inn í Vatnsvik. Og hér má taka eftir; Vatnsvik (með i’i, ekki í’i) Sá leiði misskilningur hefur orðið á síðari tímum að víkin austan við Nautatanga heiti Vatnsvík, en það er ekki rétt, hún heitir Vatnsvik. En nóg um það, ég byrjaði að skyggnast í vatnið við Gjáarenda og brölti inn með Davíðsgjá, alveg inn að Hólmunum án þess að verða var við fisk. Veiddi samt alveg eftir kúnstarinnar reglum í dýpinu; langur taumur, þungar flugur, sökkva og draga lötur hægt.
Kibbi
Þegar inn að Hólmunum var komið skipti ég aðeins um takt, létti fluguna og þá varð ég fyrst var við fisk, murtu, sem tók Kibba á beinum krók. Ég get nú ekki sagt að ég hafi verið sérstaklega upprifinn af þessum afla, en fiskur er fiskur og áralangt fiskleysi mitt í Þingvallavatni var loksins rofið. Eftir að ég hafið fært mig aðeins til og skipt yfir í Higa’s SOS fór fjör að færast í leikinn. Samtals lágu þarna 6 murtur, sem öllum var sleppt þangað til að fyrsta kuðungableikjan tók fluguna með nokkrum látum. Hjartað tók auðvitað kipp og aulaglottið á mér hefur væntanlega ljómað í gegnum regndropana þegar ég landaði henni í nýja háfinn minn. Örlítið fleiri murtur til viðbótar, og svo ein bleikja til. Sem sagt; 12 murtur og 2 þokkalegar kuðungableikjur, stútfullar af mý- og steinflugum.
Higa’s SOS
Það er ein regla í vatnaveiði og hún er sú að það er engin regla. Oftast er talað um að sökkva flugunum vel á Þingvöllum og draga lötur hægt inn, ég veiddi ekki þannig.
Miðað við allt lífið sem var í gangi á og yfir vatnsyfirborðinu valdi ég mér flugu sem var ekkert oft þung, lítill kúluhaus og ég dró hana nokkuð snaggaralega inn með rykkjum. Að vísu var ég með nokkuð langann taum, ríflega 12 fet,en þar með var nú allri samsvörun við Þingvallaregluna lokið, flotlína WF7.
Veiðitölur ársins
Bleikjur
Sleppt
Urriðar
Sleppt
Fj.ferða
Núllað
37
10
32
2
23
11
Ummæli
09.07.2012 Davíð: Hvar er hægt að nálgast þessa Higa’s SOS flugu? Ég hef ekki séð hana í þeim verslunum sem ég hef heimsótt undanfarið. Annars hefur Alma Rún verið að gera góða hluti fyrir mig síðustu daga í Þingvallavatni .. var mjög skæð í morgun á Snáðapallinum og landaði ég 9 bleikum með henni.
Svar: Þessi fluga hefur ekki ratað í verslanir hér heima, enn sem komið er. Henni skaut fyrst upp kollinum í vefverslun Orvis fyrir einhverjum mánuðum síðan eftir að hafa verið kynnt á nokkrum bloggsíðum í US og svo hér heima á þessu bloggi. Ég féll alveg fyrir henni og hef ekki orðið fyrir vonbrigðum með hana og mér sýnist að fleiri séu að kynnast því hve öflug hún er, sjá hér að neðan. Nú er bara lag fyrir veiðimenn að taka fram hnýtingarsettið eða hrista sparigrísinn og fjárfesta í slíku og hnýta nokkrar í stærðum #14 – #10, þær hafa reynst mér best.
05.07.2012 Ingólfur Örn Björgvinsson: Sæll Kristján og takk fyrir þitt ágæta blogg. Fyrir tilviljun las ég í gærkveldi um þessa ferð þína á Þingvelli og þar sem ég ætlaði að kíkja í vatnið í dag hnýtti ég nokkrar Higa’s SOS í boxið. Og þessi fluga gaf vel í kringu hádegið í dag þegar ég reyndi í Vatnsvikinu. Ég fékk samtals 12 bleikjur 1-3 pund, allt á þessa flugu. Hún er komin með fastan sess í mínu Þingvallaboxi. Takk fyrir mig!
Það er líka ein aðferð sem vert er að reyna á Þingvöllum en það er að veiða með tökuvara og hafa aðeins um 80-100cm af taum þar niðuraf með lítilli mýpúpu undir, t.d Zebra Midge #14-18 . Bregða svo við við minstu hreyfingu. Þetta hefur virkað fyrir mig við Vatnskotið og þar í kring þegar ekkert annað gefur.
Kveðja Ingó
04.07.2012 Þorkell: Já, vötnin eiga það til að koma manni á óvart. Ég fór í lærdómsríka ferð í Þingvallavatn í júní. Hafði áður fengið þau ráð að það væri gott að veiða þar með hægsökkvandi glærri flugulínu til að vera viss um að flugan væri að veiða við botninn. Félagi minn var hins vegar með flotlínu og ekkert sérstaklega langan taum og hann veiddi vel en ég ekki neitt. Hér segi ég frá þessum hremmingum mínum. http://vefurkela.com/is/veieimal/veieisoegur/65-mistoek-til-ae-laera-af Kveðja Þorkell
Fjórar tegundir af brunnklukkuætt finnast á Íslandi. Allar eiga þær það sameiginlegt að teljast til rándýra, bæði sem lirfur og sem klukkur. Brunnklukkan er mjög algeng um allt land og finnst í flestum vötnum, þó ekki ám og straumhörðum lækjum. Lirfa brunnklukkunnar nefnist vatnsköttur og finnast helst í júlí og ágúst. Fullvaxta klukkur finnast allt árið um kring. Skoðanir eru mjög á reyki um það hve stóran sess klukkur skipa í fæðu fiska, en tæplega er hann þó stór þar sem viðkoma klukkna er ekki mikil í Íslenskum vötnum.
Örstuttur skreppur rétt út fyrir bæjarmörkin í þokkalegu veðri færði konunni auðvitað einn urriða og mér liggur við að segja; auðvitað á Hérann, hann hefur varla farið af stönginni hennar frá því snemma í vor. Sjálfur missti ég einn af orange Nobbler og fékk tvær tökur á rauðan Nobbler. Meira er nú svo sem ekki til frásagnar af ferðinni, það var eins og við hefðum ekkert mikið í samkeppnina við fluguna að segja. Greinilega mikið æti á ferðinni sem magainnihald urriðans staðfesti; troðfullur af mýflugu og ýmsu öðru góðgæti.
Hornsíli er lítill fiskur, oftast 4 – 8 sm að lengd. Hann er straumlínulagaður og er sverastur um miðjan bol. Hornsílið er algengt í ferskvatni á Íslandi og í sjó við strendur. Litur hornsíla er nokkuð breytilegur, alveg frá silfruðum yfir í blágræn, dökkna verulega á hrygningartímanum og hængarnir verða allt að því rauðir. Hrygning á sér stað að vori, í maí og júní þegar vatnshitinn hefur náð 6-8°C. Frá því ísa leysir og fram að þeim tíma er sílið ekki mikið á ferðinni, nema þá þegar næst er komið að hrygningu þegar hængurinn byrjar undirbúning hreiðurgerðar. Hornsílið er eini fiskurinn á og við Ísland sem gerir sér hreiður til hrygningar. Eggin klekjast á innan við viku til mánaðar, allt eftir hitastigi og súrefnismagni. Þar sem hornsílið er nánast ránfiskur í eggjum annarra fiska, má segja að skrattinn hitti ömmu sína þegar urriðanum og sílableikjunni bregður fyrir og gera sér hornsílin að góðu.
Nytsemi hornsíla er afskaplega takmörkuð, nema þá fæða stærri fiska.
Egg flugunnar þroskast á tveimur til þremur vikum og eftir það lifir flugan í vatninu sem gyðla í eitt ár eða þar til vatnshiti hefur náð í það minnsta 6°C oft ekki fyrr en við 9°C. Þá skríður gyðlan á land og hálf-þroskast (unglingur) á um 24 klst. Þrátt fyrir að þessi einstaklingur hafi vængi, er hann ófleygur og nær ekki flugi fyrr en hann hefur náð fullum þroska við næstu hamskipti. Líftími fullvaxta flugu er mjög skammur, aðeins um sólarhringur. Flugan hefur mjúkan búk, þrískiptan með liðmörgu skotti. Stuttir fálmarar, aðeins eitt par vængja.
Gyðlur flugunnar nærast eingöngu á plöntuleyfum, unglingurinn og flugan ekkert. Mökun á sér stað á flugi, verpir stökum eggjum í vatnið með því að dýfa afturbolum í yfirborðið örskamma stund. Flugan finnst um allt land.
Héraeyra
Pheasant Tail
Gyðla dægurflugunnar
Ummæli
27.06.2012 – G. Hjálmar: Engin furða að Héraeyra og Pheasant Tail eru svona fengsælar, þær ná vel yfir skordýraflóruna. Ég hef ekki verið duglegur við að nota þær en það breytist hér með. Takk fyrir allan fróðleikinn!