Langavatn á Mýrum

Einhverjum kann að hafa þótt 553 frá Svignaskarði upp að Langavatni ekki spennandi vegur, en það var áður en hann var bættur verulega fyrir nokkrum árum. Fyrsti spölur hans liggur um eitthvert fallegasta svæði landsins, upp með Gljúfurá í Borgarfirði. Frá brúnni yfir Gljúfurá liggur hann aðeins á brattan og þarf gefur að líta afar falleg sýn á umhverfið og vel þess virði að staldra þar aðeins við og njóta þess. Það sama má segja um umhverfið við Langavatn og því togar þetta vatn alltaf eitthvað í mann þrátt fyrir að vera ekki með aflasælustu vötnum landsins, þó vissulega komi þar skot í aflatölur.

Einhverra hluta vegna hafa veiðimenn frekar sótt í veiðistaði við Beilárvelli og við botn vatnsins. Sjálfur hef ég góða reynslu af veiði við vestari bakka vatnsins þar sem sagnir herma að sé nokkuð vænni urriði heldur en víða annars staðar í vatninu. Það sem styður þessar sagnir er e.t.v. sú staðreynd að ég landaði þar mínum stærsta fiski á stöng, sjá hér.

Önnur leið að vatninu og ekki síðri er um 535 Grímsstaðir inn að Grímstaðamúla og inn Grenjum. Þar er beygt út af slóðanum og farið yfir Grenjamúla meðfram Langá inn að Sandvatni og áfram að Langavatni að vestan. Fyrir ævintýragjarna er slóðinn yfir Grenjamúla afar falleg leið með útsýni yfir Langá þar sem hún rennur um Grenjadal, en slóðinn getur verið grófur og ekki endilega fær fólksbílum, í það minnsta framan af sumri.

Við útfall vatnsins er stífla sem miðlar vatni til Langár og því er vatnsborð Langavatns nokkuð háð því hvað vantar af vatni í ánna. Ég viðurkenni það fúslega að þessi stífla er mér þyrnir í augum eins og lesa má í grein minni Aðgangur bannaður. Hún ekki aðeins tálmi vatns heldur og urriða úr Langavatni sem hrygndi áður í ofanverðri Langá, urriða sem leitað hefur nýrra hrygningarstöðva í Langavatnsá sem er til muna síðri til hrygninga heldur en ofanverð Langá.

Tenglar

Flugur

Watson’s Fanci – sept.
Hérinn – júní
Pheasant – júní
Peacock – jún. til ág.
Pheasant Tail
Nobbler (orange) – júní til ág.
Nobbler (olive) – júní til ág.
Nobbler (rauður) – júní til ág.
Nobbler (svartur) – júní til ág.
Black and Orange Marabou
Dentist – júní til sept.
Vinstri græn – júní

TÖLT UM VATNIÐ

Myndir

Myndbönd

Vötnin

Vesturland
Norðvesturland
Norðausturland
Austurland
Suðurland
Hálendið