Þar sem mestar líkur eru á að formlegri stangveiði sé lokið í vötnunum þetta árið og lítið við að vera í þeim fáu en þó nokkuð góðu frístundum mínum sem eru framundan, þá er komið að því að blása lífi í nýjar færslur á síðunni. Í sumar hafa þær nær einskorðast við frásagnir af veiðiferðum sem samtals urðu 25 á móti 37 í fyrra. Þetta árið taldi ég 148 fiska sem er nærri þreföldun frá árinu 2013. Það verður víst seint sagt að eitthvert hrun sé í þessari veiðimennsku.
Færslurnar á síðunni verða vonandi aldrei færri en tvær í viku hverri í vetur, vonandi fleiri þegar nær dregur vori. Eins og endranær kem ég til með að nýta mér viðburði sumarsins, reynslu og eigin mistök til að sjóða saman einhverjar hugrenningar og frásagnir sem verða vonandi einhverjum til gagns, já eða bara til gamans og aðhláturs.
Úr heimsóknartölum á síðuna má lesa að fylgjendur sækja ekkert síður inn á Flugur og skröksögur yfir sumarmánuðina heldur en á vetrum. Vissulega dregur örlítið niður í þeim þegar hæst stendur í veiðinni, en í raun mun minna heldur en ég hef alltaf átt von á. Mánaðarlega heimsóknir haldast í ríflega 9.500 yfir sumarmánuðina en aukast verulega þegar menn skila sér inn úr sumrinu og líður á veturinn. Þegar þetta er skrifað hafa yfir 255.000 heimsóknir dottið inn á síðuna frá því í maí 2010. Takk fyrir að fylgjast með og sýna þessu pári mínu áhuga.
Fiskilega séð varð ferð okkar hjóna í Langavatn í Borgarbyggð heldur snautleg, í það minnsta hjá mér. Frúin aftur á móti náði að jafna bleikjuveiði ársins; 121 fiskur hjá hvoru okkar. Bið lesendur að gefa því gaum að staðan er enn 27:18 fyrir mér þegar kemur að urriðanum.
Annars var þessi dags-skeppur okkar hjóna alveg hreint frábær. Síðasti séns að bleyta flugur í Langavatni þessa vertíðina og þar sem við höfum ekkert kíkt í vatnið þetta sumarið var afráðið að renna í haustlitaferð upp með Langá og reyna aðeins fyrir okkur við vatnið vestanvert. Einstaklega fallegt haustveður fylgdi okkur úr bænum og hélst allan daginn. Að vísu var heldur svalt, rétt slefaði í 4-7°C en ekkert út á það að setja þegar ull er höfð bæði innst og yst.
Ekki var frúin búinn að baða margar flugur þegar bleikja dagsins lét glepjast af Watson’s Fancy púpu (án kúluhauss). Ég aftur á móti varð þess heiðurs aðnjótandi að fá ekki eitt einasta högg, ekki eitt einasta nart og upplifði algjört áhugaleysi þeirra fiska sem mögulega voru á staðnum. Nú má hver sem er trúa eða ekki, en ég var fullkomlega sáttur við að fara heim með öngulinn í rassinum. Dagurinn frábær, umhverfið ægifagurt og ég svitnaði eins og hundur innan undir allri ullinni um leið og ég hreyfði mig eitthvað.
Nú verður veðrið aðeins að fá að stjórna næstu mögulegu för, því enn eru 10 dagar eftir af tímabilinu í nokkrum vötnum og ef spáin versnar ekki, þá er alltaf möguleiki á einum skrepp í viðbót.
Langavatn 20.sept. – Ljósm.ÞBP
Veiðitölur ársins
Bleikjur í ferð
Bleikjur alls
Urriðar í ferð
Urriðar alls
Fj.ferða
1 / 0
121 / 121
0 / 0
18 / 27
23 / 25
Ummæli
21.09.2014: Já staðan er 27 -18. En eru hennar fiskar ekki miklu fallegri ?
Svar: Hverjum þykir sinn fugl (hvað þá urriði) fagur 🙂 Við skulum spyrja að leikslokum, það er langt því frá að vertíðinni sé lokið og oft hefur frúin verið sterkari á endaspettinum heldur en ég.
21.09.2014 – Þórunn Björk: Já og þá verður hugsanlega hægt að jafna urriðatalið…. eða vonandi minnka munin. (minnir eins og ég hafi einhverntímann farið fram á endurtalningu?) Það var þó ekki engöngu eitt stk. bleikja sem var með í för heim. Þetta var sannkölluð búdgrýgindaferð því, einiber, fjallagrös og nokkur kíló af krækiberjum þyngdu farangur á heimleið. Dásamlegur dagur þar sem aðeins heyrðist tvisvar ámátlega í himbrimanum, annars réð þögnin ríkjum. Nauðsynlegt eftir allan skarkalan sífellt í mannabyggðum.
Svar: Hvað er þetta kona, endurtalning, endurtalning! Sama svar og síðast+ hér teljum við ekki endur.
21.09.2014 – Þórunn Björk: Jú takk fyrir. Kunni ekki við að taka það fram, en mínir fiskar eru vitanlega muuuuuun fegurri en hans, þeir eru líka; stærri, veiddir með fallegri köstum, á fallegri flugur og að sjálfsögðu af fallegri veiðimanni (en það segir sig nú hérumbil sjálft) ….já, og svo má ekki gleyma hógværari …miklu, miklu hógværari.
06.10.2014 – Stefán B. Hjaltested:Fagnar hver þá fengið er.!!!! Með sporðakveðju.
Því verður víst ekki á móti mælt að það líður að hausti. Skordýrum á ferli fækkar, hægt og rólegar kólnar en …. það þarf ekki að leggja árar í bát og skjóta ferðavögnum í geymslu. Veðurspáin fyrir helgina var kannski ekki þess efnis að maður stefndi á langan flæking en þá getur maður alltaf skotist í dagsferð, jafnvel gist eina nótt. Og það var einmitt það sem við hjónin gerðum eftir vinnu á föstudag; helstu græjum skotið í skottið á bílnum og vagninn tengdur og stefnan tekin austur fyrir fjall, spáin fyrir laugardaginn var þokkaleg.
Rólyndis veður um morguninn og frúin byrjaði að kíkja til berja á meðan ég dró á mig vöðlur og reyndi aðeins fyrir mér undan suðurbakka vatnsins. Jú, ég sá til fiskjar en það var alveg sama hvað ég bauð, ekkert var nógu gott fyrir hann. Eftir nokkra stund og töluvert af berjum (kræki, aðal- og bara blá) slóst frúin í för með mér vestur með bakkanum. Jú, ég sá til fiskjar en …. Svo sá ég annan fisk, 1,5 punda urriða. Glæsilegur fiskur sem var vægast sagt fullur af seiðum sem hann hafði hafði gert sér að góðu. Þetta var sem sagt fiskurinn sem frúin krækti í á Pheasant, djúpt og langt út frá bakkanum. Vafalaust einhver fallegasti urriði sem ég hef séð í sumar.
Annars er lítið til frásagnar af veiði. Eftir kaffihlé reyndi ég aftur fyrir mér, en án árangurs en naut þess í ríku mæli að fylgjast með smábleikjunni, fast uppi við bakkan þar sem hún var á sífelldum þönum fram og til baka og skartaði sínum fallegustu hrygningarlitum. Sannanlega skemmtilegt að fylgjast með henni.
Það hafði blundað svolítið í mér að labba með vatninu frá bænum og undir Gíslholtsfjalli, en þar sem einhver lurkur hefur verið í mér síðustu vikur varð ekkert úr því. Það virðist hausta svolítið að mér líkt og náttúrunni, ég labba bara út með vatninu síðar.
Lái okkur hver sem vill, Framvötnin kölluðu enn og aftur á okkur hjónin á föstudaginn. Veðurspáin var reyndar í svalara lagi, en þá getur maður jú alltaf lagt land undir fót og prófað eitthvað nýtt. Fyrir valinu varð að prófa tvö vötn sem enn voru óreynd; Lifrarfjallavatn upp af Dómadal og Blautaver norðan Ljótapolls.
Dómadalsvatn
Til að byrja með er rétt að nefna að vatnsborð Dómadalsvatns hefur lækkað verulega síðustu vikur. Meira að segja svo að vel má sjá hvar dýpið tekur við af grynningunum. Að sjá þessi skil kemur sér vel fyrir næsta ár því loftmyndir hafa hingað til ekki sýnt þessi skil nægjanlega vel að mínu mati.
Spölurinn upp að Lifrarfjallavatni er töluvert á fótinn og fyrsti parturinn ekki sá auðveldasti. Brekkan upp frá bílastæðinu við Dómadalsvatn er nokkuð brött en versti partur hennar er ofarlega; laus möl á sorfinni klöpp þannig að festa undir sléttum vöðluskóm er ekki mikil. Þegar upp á Dómadalsháls er komið taka ávalar brekkur við þar til komið er að Lifrarfjallavatni sem liggur í skál við rætur Lifrarfjalla.
Lifrarfjallavatn séð af Dómadalshálsi
Þar sem þetta var fyrsta ferð okkar hjóna að vatninu getum við lítið annað en dregið ályktanir af ummerkjum og þannig sagt að yfirborð vatnsins hefur trúlega lækkað frá efstu stöðu um 1,5 metra í sumar. Auðvitað ætti þá að vera auðveldara að ná til fiskjarins sem þarna leynist, sérstaklega sé tekið mið af sérlega flötum botinum sem stóð nú á þurru (til vinstri á myndinni hér að ofan). Við komum okkur fyrir á álitlegum stað og ég varð fljótlega var við fisk. Sögur segja að oft sé hann mjög tregur en það liðu nú ekki margar mínútur þar til fyrsti fiskur var kominn á land og fljótlega tveir til viðbótar. Á meðan frúin reyndi að ná #2 lagði ég land undir fót og kannaði vesturbakka vatnsins og þá sérstaklega vísbendingar um eitthvert æti sem fiskurinn hefði úr að spila, án árangurs. Mér er enn hulin ráðgáta hvað urriðinn var að éta þarna í vatninu, þeir fiskar sem við tókum voru fullir af óræðu gumsi og lítið á því að græða. En mikið var holdið í þeim fallegt, rósrautt/bleikt, stinnt og fallegt. Þau eru ekki mörg vötnina sem hafa gefið okkur svona fallega fiska.
Lifrarfjöll
Það er satt að það er fallegt undir Lifrarfjöllum en persónulega finnst mér umhverfi Sauðleysuvatns fallegra. Á móti kemur að bleikjukóð Sauðleysu er eitt og sér eiginlega nóg til að skemma heildarmyndina. En það er sannanlega vel þess virði að staulast yfir hálsinn að Lifrarfjallavatni en farið varlega á leiðinni til baka, hér talar maður af slæmri reynslu. Það er ekki erfitt að missa fótanna efst í brekkunni ofan við Dómadalsvatn. Að vísu skemmdist ekkert eða rifnaði, en hér á mánudegi eftir byltuna er ég frá vinnu og eins og ég hafi elst um nokkur ár yfir helgina.
Eftir stuttan stanz við Frostastaði þar sem við fengum okkur bita, héldum við áfram för að Blautaveri, öðru vatni innan Framvatna sem við áttum eftir að kynnast.
Blautaver
Nokkuð misjöfnum sögum hefur farið af Blautaveri síðustu ár. Einhverjir hafa gert góða veiði á meðan aðrir hafa eingöngu sett í titti. Ég tilheyri þeim síðarnefndu, frúin situr enn eftir í hópi þeirra sem ekkert hafa fengið. Ég setti í þrjá fiska, náði tveimur þeirra að landi þannig að ég gat sleppt þeim aftur, missti einn (sem var auðvitað miklu stærri) áður en ég þurfti að losa fluguna úr honum.
Að lokum röltum við inn í hraunið við Frostastaðavatn og nældum í örfáar bleikjur í matinn, ekki veitti nú af. Heilt á litið held ég að þetta hafi verið einhver skemmtilegasta ferð okkar hjóna í Framvötnin í sumar; ný vötn, frábært umhverfi og dásamlegt veður. Fjöldi fiska er alls ekki allt.
Kunnugir vita að mér hefur aldrei tekist að særa fisk upp úr Hólmsá, þ.e. þeirri sem skiptist í Bugðu og Suðurá. Engu að síður finnst mér alltaf skemmtilegt að nota ánna til æfinga og sjálfsagt að reyna sig við straumvatnið annars lagið. Við hjónin skruppum upp fyrir Gunnarshólma í blíðunni eftir kvöldmat eftir að hafa virt kuldalegar gárurnar á Helluvatni fyrir okkur um stund. Ég veðjaði reyndar á að tré og runnar við Hólmsá mundu veita eitthvert skjól fyrir norðan gjólunni, en það reyndist takmarkað. Við komum okkur fyrir við bugðuna rétt neðan brúarinnar inn að Elliðakoti þar sem ég þóttist sjá til fiskjar á breiðunni.
Árangurslaust reyndi ég fyrir mér í smá tíma en vék síðan fyrir frúnni þar sem hún kom röltandi með þurrfluguna sína á taumi. Ekki var að spyrja að því að í fyrsta kasti út á breiðuna tók þessi líka fína bleikja með látum hjá henni. Naum taka en á land náðist 1,5 punda vel haldin hryggna og ég bölvaði að vera ekki með þurrfluguboxið mitt með mér. Fyrsti fiskur frúarinnar í ánni og ég er enn fisklaus á þessum slóðum.
Veiðitölur ársins
Bleikjur í ferð
Bleikjur alls
Urriðar í ferð
Urriðar alls
Fj.ferða
1 / 0
115 / 117
0 / 0
16 / 22
20 / 26
Ummæli
21.08.2014 – Þórarinn ‘Silungsveidi.is‘: Já, það er eitthvað dularfullt afl sem dregur mann aftur og aftur að Hólmsánni, jafnvel þó maður veiði ekki neitt. Ef Elliðavatn er háskóli vatnaveiðinnar er Hólmsáin háskóli árveiðinnar. Ég verð að fara að drífa mig þarna upp eftir áður en veiðitímabilið er á enda. Mér hefur stundum dottið i hug að prófa þarna Tenkara græjur en á móti, þá eru þær bara fyrir smáfisk en samt gæti verið sniðugt að vera með svona langa stöng og láta fluguna detta ofan á vatnið.
Svar: Já, satt segir þú Þórarinn. Ég er farinn að trúa þessum með laumu-veiði við Hólmsánna, en alltaf reynir maður aftur og aftur.
Veðurspár eru afstæðar, það er mín upplifun. Eigum við eitthvað að ræða veðurspá helgarinnar fyrir Veiðivatnahraun, Vatnsfell og Búrfell? Heilt yfir snérust þær um vind, vind og kulda. Þetta eru spástöðvarnar sem við hjónin horfðum til á laugardaginn fyrir vötnin sunnan Tungnaá, Framvötnin. Upp úr hádeginu á laugardag létum við allar spár lönd og leið, bókuðum tvö svefnpokapláss við Landmannahelli, tróðum veiðidótinu í bílinn og keyrðum austur.
Jú, eitthvað blés hann af norðri, en ekkert í líkingu við það sem veðurspáin sagði. Við létum reyna á Herbjarnarfellsvatn um kvöldið og uppskárum sitt hvorn pundarann á móti vindi og glæsilegu sjónarspili kvöldsólarinnar á fjöllum og ásum í norð-austri.
Við Herbjarnarfellsvatn
Sunnudagsmorguninn reif okkur framúr með sólskini og smá golu af norðri. Eftir staðgóðan morgunverð var haldið í Frostastaðavatn að norðan. Ég verð að játa að ég gerði ekki ráð fyrir miklum afla á þeim slóðum, en mikið hafði ég nú rangt fyrir mér. Við fikruðum okkur hægt og rólega til austurs við norðurendann þar til við lentum í tökum, endalausum tökum. Fram af hrauninu höfðu bleikjurnar greinilega fundið nokkrar víkur á botninum þar sem nóg var af æti og þar tóku þær grimmt.
Nú er rétt að vara viðkvæma hófsemdarmenn við þeim lýsingum sem hér fara á eftir. Á þeim 4-5 klst. sem við eyddum við vatnið með einu matarhléi, komu 84 bleikjur á land sem vógu samtals 27 kg. Meðal þyngd þeirra var því 313 gr. Af þessum skrifast 25 stk. á grisjun vegna smæðar en flestar voru rétt innan við pundið en nokkrar 1,5 – 2 pund þó.
Miðað við síðustu ferð okkar hjóna í Framvötnin, dagana 29. til 31. júlí og þann afla sem við bárum heim þá, er ekki nema von að einhverjum detti í hug orð eins og ‚græðgi‘ ‚hömluleysi‘ og þar fram eftir götunum. Á mörgum stöðum ættu þessi orð við, en í mínum huga eiga þau ekki við í Framvötnum þar sem stofnar bleikju hafa fengið að stækka hömlulaust síðustu árin, svo mikið að ákveðin vötn eru beinlínis ónýt sökum smábleikju á þeim slóðum. Þó ástundun stangveiðimanna hafi í raun sára lítið að segja um stóru myndina hvað varðar grisjun ofsetinna vatna, þá hjálpar allt til. Auðvitað kitlar samt að skoða veiðitölur Framvatna frá því í fyrra (sjá hér). Með þeim tveimur urriðum sem við náðum í Herbjarnarfellsvatni, þá erum við búinn að tvöfalda veiðina þar frá því í fyrra. Með báðum okkar ferðum í Frostastaðavatn í ár, þá erum við komin með 36% af heildarafla vatnsins í fyrra. Mér er til efs að veiðimenn hafi skilað veiðiskýrslum í fyrra eins og vera ber.
Blautaver – Horft til norðurs
Að endingu renndum við hjónin inn fyrir Ljótapoll og skyggndumst yfir Blautuver í átt til Veiðivatna. Enn eigum við eftir að prófa Verin, það bíður betri tíma. Það er nægur tími til stefnu, ef ekki fyrir 20.sept. þá kemur annað sumar eftir þetta.
Veiðitölur ársins
Bleikjur í ferð
Bleikjur alls
Urriðar í ferð
Urriðar alls
Fj.ferða
39 / 45
114 / 117
1 / 1
16 / 22
19 / 25
Ummæli
18.08.2014 – Siggi Kr.: Hvílík græðgi og hömluleysi… hjá bleikjunum í Frostastaðavatni 🙂 Sérdeilis glæsilegur túr sem þið hafið gert þarna og ekki laust við að maður öfundi ykkur smá. Hef sjálfur ekkert farið í Framvötnin þó það hafi verið á dagskrá í mörg ár en það er víst að þegar loks kemur að því máttu búast við beiðni um allskonar upplýsingar um þetta svæði (vötn, flugur,taktík o.fl.). Kv. Siggi Kr.
Svar: Ekki máli Siggi, við tökum umræðu um þetta í vetur í Árósum 🙂