FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Uppfærsla

    27. desember 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_updateÞó áramótin séu ekki alveg komin, þá er ég búinn að setja nýtt ár inn á Dagatalið. Helstu tillidagar, sólarupprás, sólsetur, fullt tungl og ýmislegt fleira fyrir hvern dag ársins. Að þessu sinni eru allir mánuðirnir á einni síðu og flýtivísanir á hvern mánuð efst á síðunni.

    Vegna umfangs myndanna getur síðan verið svolítið hæg þegar hún opnast, en strax eftir fyrstu opnun ætti hún að komast á eðlilegt skrið.

    Ummæli

    27.12.2012 – Siggi Kr.: Var að kíkja á dagatalið og mikið gladdi það mig að 1. apríl skuli detta á frídag :)

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Gleðilega hátíð

    24. desember 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_glhatid

    Kveðjur

    24.12.2012 – Hilmar: Gleðilega hátíð, mbk Hilmar.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hún er komin, jólabókin í ár

    7. desember 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Smelltu hér og keyptu þér kort
    Smelltu hér og keyptu þér kort

    Gleðifréttir fyrir þá óþolinmóðu, bæklingur Veiðikortsins er komin á vefinn og þú getur nálgast hann með því að smella hérna. Nú er um að gera að fletta honum fram og til baka og láta sig dreyma um vorið, það eru jú bara tæpir fjórir mánuðir þangað til við getum farið að byrja í fyrstu vötnunum. Þangað til er bara gaman að ylja sér inni við, hnýta nokkrar flugur og fletta bæklingnum.

    E.S. vek sérstaka athygli á alveg prýðilega góðri grein á bls. 52-53 í bæklingnum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Alltaf eitthvað

    4. desember 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    fos_updateÞað er alltaf eitthvað að gerast. Nú eru t.d. flest desember/áramóta tölublöðin af veftímaritunum að koma út og ég reyni að fylgjast með þeim eins og ég get og uppfæri þau hér á síðunni.

    Margir bíða spenntir eftir rafrænni útgáfu jólabókarinna í ár; bæklingi Veiðikortsins, en þangað til hann verður tilbúinn er um að gera að tryggja sér kortið sjálft hérna og eiga þá von á bókinni á pappír inn um lúguna fljótlega.

    Stöku sinnum leiðrétti ég eða bæti við nýjum atriðum í eldri greinar. T.d. hrasaði ég um daginn yfir ágætis hnýtingarmyndband fyrir Black Zulu og bætti því við greinina um þá ágætis flugu.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Veiðikortið 2013

    26. nóvember 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Forsíða Veiðikorts bæklingsins 2013

    Nú er sala á Veiðikortinu fyrir næstu vertíð komin á fullt. Kortið má kaupa hér og að vanda fylgir því vandaður bæklingur sem sendur verður kaupendum heim að dyrum ásamt kortinu.

    Örlitlar breytingar hafa orðið á þeim vötnum sem Veiðikortið veitir aðgang að; Elliðavatn, Hólmsá og Nátthagavatn bætast nú í hópinn en vötnin í Svínadal hverfa á braut (Geitabergsvatn, Þórisstaðavatn og Eyrarvatn).

    Eins og venjulega er verið kortsins stillt í hóf (6.900,-) og má því áfram segja að það sé ótvírætt langsamlega hagstæðasti kostur veiðimanna í dag.

    Allar nánari upplýsingar um kortið og veiðisvæðin má finna á vef Veiðikortsins.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Nei, nú er nóg komið

    24. nóvember 2012
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Örvæntingarfull þurrfluga

    Ég hef verið að baksa við þurrflugurnar í morgun, en nú er mér öllum lokið. Þær hafa allar drukknað og sú síðasta sem ég prófaði í vatnsskálinni var svo örugg um að hún færi sömu leið og systur sínar að hún tók með sér björgunarhring.

    Ég verð víst að endurskoða eitthvað fjaðrirnar mínar og aðferðir ef ég ætla að veiða eitthvað á þurrflugu næsta sumar.

    .

    Ummæli

    24.11.2012 – Hilmar: Nei nei nei, þú ert rétt að byrja. Lenti í svipuðu dæmi þegar ég var að byrja! En þetta reddar málinu: Árvík  Aðeins nánar ( sjá HOW TO USE): Loonoutdoors Þetta svínvirkar.

    mbk, Hilmar

    24.11.2012 – Hilmar: En ATH ekki nota Hydrostop á CDC fjaðrir, það eyðileggur þær.

    mbk, Hilmar

    Svar: Já, frúin kom með undradolluna sína og smurði einhverju á eitt kvikindið og sú lifði í það minnsta 2 klst. í baðinu án þess að sökkva. Kannski á ég mér einhverja von, verð að prófa þetta. Takk fyrir ábendingarnar.

    E.S. það sem frúin lumaði á er: FlyTop 

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 63 64 65 66 67 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
 

    • Gerast áskrifandi Subscribed
      • FOS
      • Join 176 other subscribers
      • Already have a WordPress.com account? Log in now.
      • FOS
      • Gerast áskrifandi Subscribed
      • Skrá mig
      • Innskráning
      • Report this content
      • Skoða vef í lesara
      • Manage subscriptions
      • Collapse this bar