Þó áramótin séu ekki alveg komin, þá er ég búinn að setja nýtt ár inn á Dagatalið. Helstu tillidagar, sólarupprás, sólsetur, fullt tungl og ýmislegt fleira fyrir hvern dag ársins. Að þessu sinni eru allir mánuðirnir á einni síðu og flýtivísanir á hvern mánuð efst á síðunni.
Vegna umfangs myndanna getur síðan verið svolítið hæg þegar hún opnast, en strax eftir fyrstu opnun ætti hún að komast á eðlilegt skrið.
Ummæli
27.12.2012 – Siggi Kr.: Var að kíkja á dagatalið og mikið gladdi það mig að 1. apríl skuli detta á frídag
Var að kíkja á dagatalið og mikið gladdi það mig að 1. apríl skuli detta á frídag 🙂