Það er ekki verra að vera með gott ímyndunarafl þegar maður er veiðimaður en það er jafnvel betra að geta séð hlutina svona nokkur veginn fyrir sér áður en af þeim verður. Það sem ég hef átt í mestum vandræðum með er að geta spáð fyrir um, svona með þokkalegri vissu, er það hvernig kastið mitt lítur út á endanum.
Eftir öll þessi ár og óteljandi köst koma köstin mér enn þá oft og iðulega spánskt fyrir sjónir. Það sem átti í upphafi að vera létt og lipurt hefur á stundum leysts upp í einhverja bölvaða kraftakeppni með tilheyrandi hnútum og vitleysu. Það er ekki eins og ég viti ekki að þessi rembingur í síðasta framkastinu er ekki til þess fallinn að koma línunni neitt lengra út, þvert á móti. Ég veit þetta alveg, rétt eins og ég veit að fiskurinn liggur ekkert frekar við 12 m. mörkin úti í vatninu. Samt grípur þessi ósjálfráð rembingur um sig og ég reyni að hlaða stöngina eins og ég mögulega get í síðasta kastinu.
Svipaða sögu er að segja af því þegar ég sé fisk vaka eða velta sér í yfirborðinu. Það er ekki alveg eins og ég láti það eftir mér að hinkra við, gefa því sérstaklega gaum hvort fiskurinn sé á ferðinni eða eins og hlekkjaður við sama blettinn í vatninu. Þetta hefur að vísu lagast aðeins með árunum, en yfirleitt er nú kveikiþráðurinn frekar stuttur. Um leið og ég sé eitthvert lífsmark, þá er stöngin komin á loft og byrjað að efna í fyrsta kastið.
Að gefa sér smá tíma getur borgað sig, hvort sem það er á milli kasta eða áður en maður tekur ákvörðun um að leggja fluguna niður á nýjum stað. Að sjást fyrir er svolítið eins og að geta sagt um fyrir hvar fiskurinn sé og hvert hann stefnir, ef þá eitthvert yfir höfuð. Þá fyrst ætti maður að hugsa um hvernig kastið ætti að vera; langt eða stutt, fyrir innan legustað eða til hliðar og þá endilega, hvort er fiskurinn á ferðinni til hægri eða vinstri.
Á meðan maður er að velta þessu fyrir sér, er ekki úr vegi að renna augunum eftir línunni, taumnum og að flugunni. Er ekki örugglega allt í lagi alla leið? Hljóp kannski einhver vindhnútur á snærið þegar ég reyndi að þenja mig í síðasta kasti?
Ég efast um að ég gæti fundið jafn opna fyrirsögn á grein þótt ég reyndi. Á Íslandi eru nær óteljandi vötn og í flestum þeirra eru nokkrir ef ekki hundruð veiðistaða. Ef við bætum svo öllum lækjum og ám við, þá erum við komin með óteljandi veiðistaði. Meira að segja staðir sem ekki eru þekktir sem veiðistaðir gefa fisk var sagt við mig einu sinni. Auðvitað á maður nokkra uppáhalds veiðistaði í hverju vatni og eins einkennilegt sem það er, þá mætir maður þangað ítrekað ef maður hefur einu sinni gert þar góða veiði.
Upplýsingar um veiðistaði eru vísbendingar, í besta falli. Ef veiðimaður mætir á staðinn, er með forskrift og hnitin á hreinu, þá er ekkert víst að viðkomandi fái fisk, jafnvel þótt fiskurinn sé á staðnum. Að þessu leitinu til er það stundum óleikur að gefa einhverjum upp veiðistað eða merkja hann inn á kort eins og ég hef gert töluvert af hér á síðunni. Meira að segja bestu veiðistaðirnir eru ekki allra og ekki alltaf.
Álitlegur veiðistaður?
Það hafa nú komið hér fram nokkrar greinar um að kunna að lesa í náttúruna, það er eitt. En það er líka til eitthvað að lesa í veiðistað í vatni. Nú þori ég ekki að segja neitt um slíka staði í ám eða lækjum, þekki það ekki nægjanlega vel, en það er ákveðin eðlismunur á t.d. laxveiði og silungsveiði. Það liggur í eðli laxveiði að þekkja eða finna þá staði í ám þar sem laxinn staldrar við á leið sinni upp ána. Þetta er ritað með þeirri einföldu forsendu að vatn renni í ánni, sem ku hafa verið brögðótt síðastliðið sumar. Þegar staðurinn er fundinn segja kunnugir mér að þá taki pirringurinn við, þ.e. að pirra laxinn til töku. Hér ætla ég að láta staðar numið í fræðum laxveiði, en ég er enn að velta því fyrir mér hve pirrandi ánamaðkur getur verið í augum laxins. Þeir voru alveg nokkrir laxarnir sem komu á maðk hjá mér hér um árið sem í sjálfu sér er einkennilegt fyrst laxinn er sagður ekkert éta á leið sinn upp árnar.
En ég þekki það svo sem að pirra fisk til töku, meira að segja bleikju sem annars er sögð hin mesta rólyndisskeppna. Ég hef sagt það áður og segi það enn; bleikur Nobbler líkist engu æti sem er að finna í náttúrunni. En dragi maður slíkt kvikindi á hraða sem hæfir spretthörðustu laxaflugum, þá bregst það varla að bleikjan bregst við sem er ekkert einkennilegt, því bleikja er líka lax-fiskur. Þegar öllu er á botninn hvolft, þá er kannski ekkert svo stór munur á silungsveiði og laxveiði, maður verður bara að finna þessa skollans veiðistaði og nýta þá.
Ég hef verið þeirrar ánægju aðnjótandi á liðnum árum að fá að leggja mitt að mörkum í fylgirit Veiðikortsins. Hér að neðan er fyrsta greinin sem Ingimundur tók upp á sína arma og birti í fylgiritinu árið 2013.
Það er engum blöðum um það að fletta að stangveiði er ein vinsælasta útivist landsmanna. Flestir laxveiðimenn hefja feril sinn í silungsveiði en svo eru þeir einnig til sem aldrei bregða flugu fyrir lax, heldur einbeita sér að silunginum og þá helst í vötnum. Oftar en ekki hefur maður verið spurður að því hvar sportið sé í því að standa einn og yfirgefinn úti í vatni og leggja flugu fyrir fisk sem maður ekki einu sinni sér. Jú, vitaskuld getur það verið ákveðin kúnst að finna fiskinn í því flæmi sem vötnin geta verið, svona við fyrstu sýn, en það er algjör óþarfi að örvænta. Með smá æfingu lærist hvað fiskinum þykir spennandi og hvar hann heldur sig. Vötnin eru alls ekki án landslags. Undir yfirborðinu leynast hólar og hæðir, steinar og skorningar þar sem silungurinn heldur gjarnan til og við bakkana og framundan þeim er gróðurinn sem fóstrar bæði æti og fisk.
Ef ég yrði beðinn um eitt gott byrjendaráð þá yrði það væntanlega að nálgast vatnið hægt og rólega. Það liggur í eðli silungsins að vera var um sig og hann fælist auðveldlega. Öryggi er silunginum mikilvægt, næstum eins mikilvægt og fæðuöflum. En, heldur hann sig þá ekki bara lengst úti í vatninu, þar sem hann er öruggur? Nei, alls ekki. Þar sem er ætið, þar er silungurinn. Gróskumestu svæðin eru á og við grynningarnar, aðeins steinsnar frá bakkanum og því öruggara að læðast ef maður vill ekki styggja hann.
Maður þarf því ekki að vera heimsmeistari í langstökki til að ná yfir lækinn, stundum er alveg eins gott að vaða hann fet fyrir fer. Í vatnaveiði veiðast flestir fiskar vel innan 12 metra frá bakkanum og því sjaldnast þörf á að vöðlast langt út eða þenja köstin langt yfir 20 metrana. Oft ríður meira á að geta kastað stutt, létt og nákvæmt. Þetta lærist oft af sjálfu sér en ekki er verra að leita sér leiðsagnar kastkennara, jafnvel fyrr en síðar, því oft vill reynast erfitt að venja sig af mistökunum. Að vísu er gott að eiga eins og eitt og eitt gott kast í bakhöndinni til að ná út að dýpinu þar sem silungurinn heldur sig gjarnan þegar bjartast er yfir og óþægilegt fyrir hann að svamla um á grynningunum.
Á sólríkum sumardögum er ekki úr vegi að kanna hvar skugga ber á vatnið undir hlíð, við kletta eða af trjágróðri á bakkanum. Silungurinn er birtufælinn og ef honum gefst kostur á að sameina skugga, öryggi og fæðuöflun á einum stað er það hans fyrsti kostur. Meira að segja botnlægur gróður getur veitt silunginum þetta skjól og oft er gefandi að veiða við eða í slíkum flákum.
Mest er um fæðu á og við botninn og því gefa litlar flugur sem líkja eftir mismunandi þroskastigi skordýra mjög vel í vatnaveiði. En það þýðir lítið að bjóða upp á grænmetisrétt þegar steikhúsið er opið. Við verðum að velja flugurnar í samræmi við það sem er á matseðlinum hverju sinni og því ágæt regla að litast um við vatnið áður en fyrsta flugan er hnýtt á. Oft tekur lífríkið snögglega við sér, púpur losa sig upp af botninum og rísa upp að yfirborðinu sem kallar á nýjar flugur og því gott að vera á varðbergi. Öruggu flugurnar gætu verið hinn rammíslenski Peacock eða alþjóðlegi Pheasant Tail í lúshægum inndrætti.
Þegar fyrsti fiskurinn er kominn á land getur flugnavalið snúist við á einu augabragði. Sjálfsagt er að skoða vel magainnihald fisksins og velja flugu til samræmis við það sem hann er að éta, það eykur líkurnar á að góma þann næsta. En ekki er öll vatnaveiði háð ágiskun um ætið. Þegar flugurnar klekjast úr og tylla sér á yfirborðið getum við spreytt okkur á þurrflugum og notið athygli silungsins til fullnustu. Þá finnst mörgum eins og fullkomnun fluguveiðanna sé náð og fullum tengslum við náttúruna komið á.
Sumir veiðimenn eyða deginum í, að er virðist, endalausri bið eftir stillum sumarnáttanna þegar vötnin okkar skarta sínu fegursta. Þá dekkja menn gjarnan flugurnar, setja jafnvel straumflugu eða Nobbler undir og egna þannig fyrir silunginn þar sem hann eltist við hornsíli eða seiði í húminu. Stundum er kyrrð og ró þessara nátta slík að engu er líkara en tíminn standi kyrr.
En það er ekki alltaf kyrrð og ró yfir vötnunum okkar. Stundum tekur vindurinn upp á því að ýfa vatnið og öldurnar róta upp æti við bakkana. Þá er oft nægilegt að koma flugunni út sem nemur rúmlega stangarlengd til að leggja hana á gnægtaborð silungsins. Þá er ekki verra að eiga áberandi flugu í boxinu sem sker sig aðeins úr fjöldanum og æsir silunginn til töku.
Góður útbúnaður til fluguveiða í vötnum þarf alls ekki að kosta mikið eða vera flókinn. Almennt er mælt með léttum búnaði, stöng #4 – #7, flotlínu eða hægsökkvandi, tveimur stærðum tauma og þetta 20 – 30 silungaflugum í boxi. Og auðvitað notum við öryggisbúnað eins og gleraugu og húfu með stæl. Með Veiðikortið í vasanum getur þú síðan lagt af stað og valið úr fjölda vatna um land allt og átt þar kyrrðarstund, einn eða í hópi góðra vina.
Allt snýst þetta um að njóta og finna sig með náttúrunni. Við búum á norðlægum slóðum þar sem grænn tími ársins er skammur og náttúran viðkvæm. Tökum allt með okkur sem við bárum á veiðistað og tryggjum að næsti veiðimaður komi að umverfinu í sama ástandi eða betra heldur en við komum að því.
Ég er nú ekki þannig búinn í veiðinni að ég eigi stöng eða stangir með verðmiða sem telur 6 tölustafi, en ég reyni að hugsa vel um þær stangir sem ég á. Raunar stend ég mig að því að hugsa ekki alveg nægjanlega vel um þær, en það er önnur saga og tengist allt öðru en því sem ég er með í huga núna.
Ég hélt svei mér þá að engum veiðimanni dytti í hug að geyma stöngina sína á milli ferða í einhverju öðru en hólkinum sem fylgdi henni, sérstaklega ef um dýrari stöng væri að ræða. En, svo má manninn lengi reyna að ekki komi eitthvað nýtt fyrir sjónir, sérstaklega þegar skyggnst er inn í bílskúra. Flottur skúr, allur í drasli að vísu, eiginlega úði og grúði af öllu mögulegu þarna inni, það sá maður þegar mesta rykið sjatnaði eftir að hurðin var opnuð. Mér datt eitt augnablik í hug að það væri eins gott að eigandinn ætti ekki kött, sá hefði getað fótbrotið sig í öllu draslinu á gólfinu. Ég held að ég sé búinn að draga upp ákveðna mynd af þessum skúr, en það vantar samt eitt. Í vegg, baka til í skúrnum, ofan við ruslahrúgu sem helst minnti á jökulruðning við rætur Svínafellsjökuls, höfðu nokkur hvítmáluð steypustyrktarjárn verið reknir í vegginn. Á þessum teinum hvíldu nokkrar Sage von Orvis d‘Loop stangir, samsettar með hjólum og öllu.
Svona geymi ég mínar stangir
Nú veit ég fyrir víst að þessi virti stangaframleiðandi afhendir allar sínar stangir í hólkum, meira að segja nokkuð vönduðum hólkum. Það er mér enn hulin ráðgáta hvers vegna þessi annars ágæti skúreigandi geymir ekki stangirnar sínar í þessum hólkum í stað þess að láta þær skrölta á beru steypustyrktarjárninu. Ég get svarið það að ég heyrði þær skoppa þegar hann skellti bílskúrshurðinni eftir að hafa fiskað eitthvað dót upp af gólfinu. Hefðu stangirnar skoppað fram af járninu, þá hefðu þær lent í jökulruðninginum fyrir neðan og trúlega horfið þar að eilífu.
Neibb, frekar vil ég geyma stangirnar mínar í hólkunum á tryggum og öruggum stað þar sem þeim er ekki hætta búin af náttúruhamförum.
Þessi greinarstúfur er sérstaklega tileinkaður letipúka sem hefur fylgt mér í ótal mörg ár, sjálfum mér. Það er alveg sama hve oft ég einset mér að hugsa betur um flugulínurnar mínar, þá gerist það allt of sjaldan. Góð umhirða flugulínu lengir nefnilega líftíma hennar og þá verður hinn púkinn minn miklu ánægðari, nískupúkinn í mér.
Ég var spurður að því um daginn hve lengi línurnar mínar entust. Ég satt best að segja gat ekki svarað því nákvæmlega, eina sem ég veit að sumar hef ég átt lengi á meðan aðrar hafa lifað skemur. Kunnáttumaður sagði mér að góð flugulína, þar sem góð ræðst oftar en ekki af verðmiðanum, eigi að endast þetta 250 veiðidaga. Sami maður sagði mér að með góðri línu eigi maður að geta verið svona keppnis þótt flugustöngin sé langt því frá að vera í verðflokki keppnisstanga. Þessar línur kosta í dag á bilinu 12 – 16 þ.kr. Hér verð ég að taka það fram að ég hef átt línur sem kosta aðeins fjórðung af þessu verði og ég hef ekki fundið mikinn mun á þeim og dýrari línum og þær hafa enst mér ágætlega. Þetta síðasta var til að friða nískupúkann í mér.
En til að ýta aðeins við letipúkanum þá eru hér nokkrar línur um þrif og meðhöndlun flugulína:
Sum sumur er það sem hefur mest áhrif á plastið í flugulínunum ekkert vandamál á Íslandi, sólin. Of mikið sólarljós í of langan tíma styttir líftíma flugulínunnar verulega. Þótt nýjustu flugulínurnar séu merktar UV resistance þá hefur sólarljósið samt mjög mikil áhrif á þær. Mér liggur við að segja að þessi merking sé nærri jafn áreiðanleg og Anti age formula í hinum og þessum húðkremum. Þegar hiti og sólarljós fer saman, t.d. þegar veiðihjólið þitt liggur í aftursætinu og bakast þar í sólinni, þá fer niðurbrot plastsins fyrst af stað fyrir alvöru.
Það að þrífa línuna reglulega er ekkert svo mikið mál. Flestir mikla það eitthvað fyrir sér að láta ylvolgt vatn í skál eða fötu, bæta smá handsápu (ilmefnalausri) út í og leyfa línunni að liggja þar í 15 – 25 mín. Tíminn ræðst af því hvort menn hafa vanist á að nota eitthvert sleipiefni á línuna eða ekki. Því oftar sem sleipiefni er notað, því meiri leifar verða eftir á línunni sem gera lítið annað en safna í sig skít og óhreinindum sem hægja á henni í kasti. Fyrir alla muni, ekki freistast til þess að nota svamp eða grófan skrúbb á línuna þótt hún sé mjög skítug. Mjúkur bómullarklútur er alveg tilvalinn, eftir að línan hefur legið í vatninu og áður en skolað er af henni og hún hengd upp til þerris. Já, þú last rétt. Það verður að leifa línunni að þorna þokkalega áður en henni er spólað aftur inn á hjólið.
Það er líka mikilvægt að hugsa um línuna á milli þvotta. Það er ekki bara nóg að þvo hana að hausti og bíða síðan til næsta hausts að hugsa þá um hana. Það eru til ýmsar vörur sem eru ætlaðar til þess að næra flugulínuna á milli þvotta. Ég hef ekki hugmynd um hver fann upp á þessum frasa, en hann hafði ekki mikið vit á efnafræði og þá sér í lagi fjölliðum eins og í plasti. Í eitt skipti fyrir öll (er reyndar búinn að segja þetta svo oft áður); þau efni sem eiga að næra flugulínuna þína eru í flestum tilfellum bón eða sílikon og hafa ekkert næringarfræðilegt gildi fyrir plast.
Vissulega er hægt að nota bón til að ná betra rennsli í línuna og þá skiptir í raun engu máli hvaða bón þú notar. Allt bón inniheldur leysiefni af einhverri gerð og leysiefni er ekki besti vinur flugulínunnar þannig að því oftar sem þú notar bón, því oftar þarftu að nota það. Húð línunnar fer því hraðar af henni því oftar sem þú dregur hana í gegnum bónklútinn sem er mettaður af leysiefni. Að mínu mati ætti bónið að fá að hvíla sig alveg þangað til línan er kominn að gjörgæslu og lífdagar hennar eru í raun taldir, sem sagt aðeins nota bón í neyðartilfellum.
Sleipiefni sem hönnuð eru fyrir flugulínur innihalda fyrst og fremst sílikon sem geta fjarlægt minniháttar óhreinindi af línunni, en fyrst og fremst skilja þau eftir sig örþunna filmu sem hrindir frá sér vatni og óhreinindum. Þetta hjálpar vissulega við aukið rennsli til að byrja með, en við endurtekna notkun án þess að þrífa línuna á milli þykknar þessi hús á köflum og fer að draga að sér óhreinindi í stað þess að hrinda þeim frá sér. Ekki gleyma að þrífa línuna á milli þess að þú berð á hana, annars endar þú með verra rennsli í línunni heldur áður.
Jæja, púkarnir mínir, nú eruð þið búnir að lesa þetta og þá er eins gott að taka sig saman í andlitinu og þrífa línurnar eftir sumarið.
Það er alls ekki jafn sjálfsagt að koma frá sér flugu eins og margur heldur. Flott fluga sem maður rekst á eða rekur augun í er ekki endilega töfruð fram á einu augabragði. Í byrjun vetrar getur verið sérstaklega erfitt að setja í fyrstu fluguna.
Nú lýsi ég eigin reynsluheimi og aðstæðum. Ég á mér afdrep þar sem hnýtingarefni og tól eiga að vera innan seilingar. Já, þau eiga að vera innan seilingar, en stundum er eins og sprengja hafi fallið á hnýtingarborðið, ekkert er þar sem það á að vera og sumt er bara alls ekki til staðar. Þá þarf að taka til, taka aðeins meira til og finna það sem mann vantar í fluguna. Skjótast út í búð og kaupa það sem ekki finnst. Finna stað fyrir það sem maður keypti og þá þarf stundum að færa eitthvað annað til, sem sagt að laga aðeins meira til. Og hvað gerist þá? Jú, maður finnur það sem maður hélt alveg örugglega að maður ætti, en fann ekki.
Hnýtingarborðið fyrir tiltekt
Svo kemst maður loksins í þau spor að geta farið að hnýta, þ.e. þegar maður er búinn að taka aðeins meira til og búa til pláss fyrir flugurnar sem þó eru ekki enn sprottnar fram úr hnýtingarþvingunni. Jæja, loksins er komið að því að setja í fyrstu fluguna. Kemur þá ekki í ljós að algengustu áhöld og efni eru ekki lengur innan seilingar. Þá þarf maður að færa aðeins til í hillunni og raða upp á nýtt.
Loksins kemur fyrsta flugan. Æ, hún var nú ekkert sérstaklega vel gerð, eitthvað skökk og skæld og hreint ekkert lýk fyrirmyndinni. Best að hnýta aðra og ef tími gefst til, þá hnýtir maður þau fimm eintök sem vantar þannig að við veiðifélagarnir höfum í það minnsta þrjú eintök í boxinu, hvort um sig.
Hnýtingarborðið eftir tiltekt
Þá er að öllum líkindum komið að því að kveikja undir kvöldmatnum og …. æ, best að kveikja líka á fréttunum, kannski vill svo illa til að enn einn hefur fengið viðbótarkvóta fyrir sjókvíaeldi og þá er dagurinn ónýtur. Ég get þó í það minnsta huggað mig við að það eru komnar 6 nýjar flugur í boxin okkar og ég hef gert enn eina tilraun til að hafa allt á sínum stað, sem ku vera til mikilla bóta fyrir hnýtarann.