Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Að skauta

    23. janúar 2020
    Veiðitækni

    Upp

    Forsíða

    Það rifjaðist upp fyrir mér í sumar þegar ég fékk skilaboð frá samlokufélögum sem ég á í veiðinni að ég ætlaði alltaf að hnýta svona skautaflugur. Fyrir þá sem ekki þekkja samlokufélaga, þá eru það félagar sem eiga sameiginlegt áhugamál í matargerð sem fær útrás í veiði- og gúrmeferðum sem slá næstum allt út, næstum.

    Þessir samlokufélagar áttu greinilega notalega kvöldstund og voru að hnýta frauðflugur sem eru eiginlega straumflugur með heljarinnar miklu magni af flotefni á bakinu þannig að hægt er að láta þær skauta á yfirborði vatnsins. Þessar flugur ku virka vel þar sem gráðugur urriði er á ferðinni. Mér vitandi eru aðeins örfáar skortdýrategundir hér á landi sem skauta svona á yfirborðinu og þær eru flestar mjög smávaxnar. Samt hefur mig langað til að prófa svona flugur í ákveðnum litum eftir að ég rakst á þetta myndband á vefnum.

    Það er aldrei að vita nema maður láti verða að því að hnýta nokkrar frauðflugur í vetur til að prófa næsta sumar. Ég þykist vita um nokkra urriða sem mundu alveg gefa þeim gaum.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Klekja vorflugunnar

    21. janúar 2020
    Hnýtingar

    Upp

    Forsíða

    Vorflugur eru skordýr sem taka fullkominni myndbreytingu; egg > lirfa > púpa > fluga. Rétt eins og mörg önnur skordýr nýtir vorflugan sér loftbólur til að lyfta sér upp af botninum eftir að hún hefur breyst úr lirfu í púpu. Þegar loftbólurnar eru orðnar nægar, lyftist púpan upp af botninum og sundfálmararnir taka til við að kippa púpunni upp að yfirborðinu. Ef hitastigið er heppilegt, nægir skriðþungi púpunnar til að rjúfa yfirborðsspennu vatnsins og við tekur síðasta myndbreytingin, púpan verður að fullvaxta flugu. Almennt gengur púpum stórra flugna betur að rjúfa filmuna og ná flugi í orðsins fyllstu merkingu. Afföll vorflugna sem klekja er ekki nema brot af afföllum mýflugna.

    Þetta ferli vorflugunnar tekur ekki nema augnablik vegna þess að hún, ólíkt mörgum öðrum flugum, er með vængi sem hrinda frá sér vatni og eru nánast fullskapaðir þegar upp á yfirborðið er komið. Hún þarf því ekki að sitja á vatninu í óákveðinn tíma og þurrka vængina og bíða þess að þeir verði tilbúnir til flugtaks. Það er því púpustigið sem silungurinn einblínir á þegar vorflugur eru á matseðlinum, fullvaxta ná þær ekki einu sinni að vera konfektmolinn með kaffinu eftir matinn.

    Það vekur því ákveðna furðu að flugur sem sitja beinlínis á yfirborðinu, eins og t.d. Elk Hair Caddis skuli koma sterklega til greina þegar klekjur vorflugunnar eru á ferðinni, en það er nú samt þannig. En þegar kemur að því að hugs alfarið um púpu vorflugunnar, þá eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga. Klekjupúpur vorflugunnar ættu að vera glansandi, rétt eins og þær séu umvafðar loftbólum, með áberandi haus eða fálmara og umfram allt vera á ferli frá botni og upp að vatnsborði.

    Þessi lýsing ætti eins og sér að nægja til að benda á eina ákveðna flugu, Peacock. Lauslega þyngd er þetta tilvalinn fluga til að líkja eftir púpustigi votflugunnar sem klekju. Vitaskuld er hægt að ganga lengra í eftirlíkingum og til eru óteljandi tegundir klekjueftirlíkinga vorflugna, auk þeirra óteljandi afbrigða Peacock sem hafa komið fram.

    Sjálfur veiði ég Peacock oft á tíðum eins og hefðbundna votflugu, ekki endilega sem púpu. Inndrátturinn í áttina að miðlungs hraða með tilfallandi rykkjum og skrykkjum, pásur á milli. Kjördýpt vorflugna á lirfustigi er hreint ekki á svo miklu dýpi, þannig að það má næstum fullyrða að intermediate eða sökklína fyrir Peacock er ofrausn, hefðbundin flotlína með 9+ feta taum ætti að vera nóg.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Dub-burstar

    19. janúar 2020
    Hnýtingar

    Upp

    Forsíða

    Nei, nú er ég ekki að meina þessa tilbúnu strimla, heldur alvöru bursta til að ýfa upp búkefni og kraga sem gerðir eru úr dubi. Það setur alltaf af stað ákveðna vellíðan að geta endurnýtt hluti, það er leikurinn í þessari ábendingu. Hér áður benti ég á hagnýt not af tannhreinsiburstum til að þrífa augu á flugu eftir lökkun.

    Stærri burstana, þá sem ekki nýtast í þrifin, má nota sem dub-bursta í mýkra dub efni þar sem grófir burstar geta hæglega dregið of mikið efni úr flugunni.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Hvaða fluga virkar best?

    16. janúar 2020
    Hnýtingar

    Upp

    Forsíða

    Ef einhver er í vafa um mitt álit á fluguveiðimönnum, þá skal þeim vafa útrýmt hér og nú. Fluguveiðimenn eru mjög fyndinn hópur fólks. Það eru ekki aðeins athafnir þeirra á veiðistað sem eru mjög sérstakar, þ.e. að veifa þessu priki fram og til baka með torkennilegum spotta á endanum, áföstu safni af torkennilegu dóti sem glitrar eða ekki. Þetta endalausa takmark þeirra að ná að plata einhverja lífveru sem er aðeins með brot af heila þeirra sjálfra og stæra sig síðan af því, er líka sérstaklega áhugavert.

    Að öllu gríni slepptu, þá þekki ég fáa hópa fólks sem eru jafn fastheldnir á skoðanir og athafnir eins og fluguveiðimenn. Á sama tíma eru þeir ótrúlega ginkeyptir fyrir nýjungum eða í það minnsta nýjum hlutum. Auðvitað er þetta alhæfing, en þegar öllu er á botninn hvolft, þá á þetta við um mjög stóran hóp fluguveiðimanna.

    Ætli flugur séu ekki ódýrasta birtingarmynd nýjungagirndar fluguveiðimanna. Ég er t.d. þannig að þegar ég sé mynd af nýrri flugu, þá vaknar strax hjá mér spurningin: Hvar ætli þessi virki? Síðan vakna ýmsar aðrar spurningar um efnið, krókinn og fleira. Það er yfirleitt nokkuð langt í að ég velti fyrir mér hvort viðkomandi fluga passi inn í fánuna hér á Íslandi, sé virkilega eins og eitthvað kvikindi sem silungurinn þekkir hér og étur.

    Framboð á flugum er óendanlegt og eykst sífellt. Ný efni, nýjar hugmyndir hnýtara og útfærslur virðast ekki eiga sér nein takmörk. Samt sem áður er það nú þannig að flestar flugur eiga sér ákveðna forfeður sem þær líkjast á einn eða annan hátt. Þótt það komi ný fluga fram á sjónarsviðið sem byggir á þekktri formúlu, þá hættir forfaðirinn ekkert að veiða, sú fluga stendur alltaf fyrir sínu. Fyrsti afli nýrrar flugu er auðvitað veiðimaðurinn, hún krækir í mann og lætur mann ekki í friði þar til maður hefur keypt eða hnýtt hana.

    Ég er einn þeirra sem tek með mér allt of margar flugur í veiðiferðir. Það er nú betra að hafa vaðið fyrir neðan sig ef fiskurinn vill bara alls ekki þær sem eru í fluguboxinu mínu og þá er gott að geta kíkt í geymsluboxin. Trúlega er því samt þannig farið að mér væri nær að taka með mér gott safn af klassískum flugum sem hafa sannað sig síðustu áratugina, eiga þær í mismunandi stærðum, útfærslum og litbrigðum. Það er trúlega algjör óþarfi að flækja málið svona mikið.

    Auðvitað er gaman að prófa sig áfram með nýjar flugur, en þegar öllu er á botninn hvolft þá er það kannski óþarfi að eyða heilu sumri í að prófa eitthvað nýtt þegar það gamla einfaldlega virkar.

    Þessi grein var ein af mínum sjálfshjálpar greinum þessa vetrar og er ætlað að hvetja mig til að sýna gömlum flugum meiri athygli og láta þessar nýju aðeins bíða þar til einhver annar hefur prófað þær í þaula. Framundan er febrúar með sýnum Febrúarflugum, þannig að ég lofa alls ekki að fara eftir þessu.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Klekja mýflugunnar

    14. janúar 2020
    Hnýtingar

    Upp

    Forsíða

    Það er mjög misjafnt hve löngum tíma skordýr verja sem lirfur við botninn. Að öllu jöfnu eyðir stærsta rykmýstegundin á Íslandi, stundum kölluð stóra toppflugan 1 – 2 árum á botninum og gengur í gegnum fjögur lirfustig á þeim tíma. Púpustig flugunnar er töluvert skemmra, aðeins talið í sólarhringum og síðasta lífsskeið hennar sem fluga, er enn skemmra.

    Púpa stóru toppflugunnar á það til að vera nokkuð mikið á ferðinni þegar hún stefnir upp á við og því er alveg óhætt að vera nokkur duglegur á inndrættinum með pásum. Helst er að verða var við stóru toppfluguna frá því í maí og fram í júní, breytilegt þó eftir tíðarfari.

    Slæðumý, sem stundum er kölluð litla toppflugan, á sér að öllu jöfnu skemmra lífsskeið á botninum og er nokkuð síðar á ferðinni, síðla júní mánaðar og í ágúst. Púpa slæðumýs er ekki stór og lætur sig að mestu fljóta áreynslulaust upp á yfirborðið þannig að hægur inndráttur ætti að vera við hæfi.

    Hér að ofan eru myndir tveggja flugna sem hafa gefist mér vel þegar klekjur mýflugunnar eru á sveimi, en vitaskuld eru þær miklu fleiri, flugurnar sem passa undir þessum kringumstæðum. Ein fluga er í sérstöku uppáhaldi hjá mér þegar stóra toppflugan er á ferðinni og það er svört mjóna (e: buzzer) með orange eða rauðum kinnum.

    Þegar stóra toppflugan er á ferðinni og bleikjan er að úða í sig, þá er hamagangur og það er mín reynsla að það borgar sig að gleyma öllu sem ritað hefur verið um mjónur og hvernig á að veiða þær. Ég hef alveg leyft mér að smitast af hamaganginum og nota frekar hraðan inndrátt, staldra nánast ekkert við, æsi bleikjuna bara meira og meira, þangað til hún tekur með látum.

    Þeim sem ekki hugnast þessi æsingur er bent á að prófa klassíska votflugur, eins og t.d. Black Pennell og þá endilega sem soft hackel. Þessi fluga hefur verið óhemju vinsæl t.d. í Hlíðarvatni í Selvogi að vori til, einmitt þegar stóra toppflugan er að fara að klekjast út. Flotlína, 9 feta taumur og hægur inndráttur ætti að vera þokkaleg uppskrift, svo fer það bara eftir kokkinum hvernig útkoman verður.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Skera, ekki klippa

    12. janúar 2020
    Hnýtingar

    Upp

    Forsíða

    Þegar maður gengur frá þræðinum eftir að hálfbragðið (e: half hitch) eða whip hnút (afsakið að ég man ekki í svipinn hvað þessir hnútur heita á því ylhýra) þá vill stundum smá spotti verða eftir af hnýtingarþræðinum sem stendur út í loftið ef maður klippir.

    Þá getur maður notað aðra eggina á skærunum, borið hana þétt upp að hnútinn og slitið þráðinn í stað þess að klippa eða notað svona gluggasköfu- eða rakvélablað. Afraksturinn verður yfirleitt mun hreinni og enginn spotti út í loftið sem þvælist fyrir þegar hausinn er lakkaður.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 44 45 46 47 48 … 155
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar