Nú er ég búinn að uppfæra flugulistann hér á síðunni með myndum af öllum flugunum. Eftir sem áður er listinn í stafrófsröð og tenglar úr honum yfir á uppskriftir og upplýsingar um allar flugurnar. Flugulistann má nálgast í valmyndinni hér að ofan eða einfaldlega með því að smella hér.
-
Myndarlegar flugur
Höfundur:
-
Elliðavatn komið á Veiðikortið

Samningur í höfn Úr fréttatilkynningu Veiðikortsins: Veiðikortið ehf. og Veiðifélag Elliðavatns hafa skrifað undir samning til þriggja ára um aðild Elliðavatns að Veiðikortinu og tekur samningurinn gildi strax á komandi veiðitímabili. Veiði hefst í vatninu Sumardaginn fyrsta 2013. Svæðið sem um ræðir er Elliðavatn, Helluvatn, Hólmsá auk Nátthagavatns.
Meira um þessi stórskemmtilegu tíðindi á veidikortid.is
Höfundur:
-
Póstleikur veida.is
Nú er að hefjast póstleikur veida.is þar sem heppnir þátttakendur geta unnið sér inn glæsilegt flugubox úr smiðju Júlla í Flugukofanum. Til að komast í pottinn þarf, eins og kemur fram á vef veida.is, aðeins að gera eitthvað eitt af eftirfarandi:- Skrá þig á póstlistann
- Deila þessari frétt meðal vina þinna
- Senda fréttabréf veida.is áfram til einhvers sem þú telur að vilji skrá sig á póstlistann
Meðal kosta póstlistans: Frítt fréttabréf – upplýsingar um ný veiðileyfi og veiðisvæði – aðgangur að tilboðum veiða.is.
Höfundur:
-
Nýr jakki, sama röddin
Nú hafa Flugur og skröksögur eignast sitt eigið lén: fos.is Gamla slóðin (https://kristjfr.wordpress.com) en enn í fullu gildi en auðvitað mun auðveldara að muna þá nýju. Eins og Bo sagði um árið; Nýr jakki, sama röddin.

Ummæli
22.10.2012 – Guðmundur: Það er allt annað að sjá þig…..
kv GuðmundurSvar: Já, segðu.
Höfundur:
-
Haust
Kannski eru flestir veiðimenn skriðnir í vetrarhýðið, en fyrir okkur sem erum ennþá vakandi er ýmislegt áhugavert að gerast þrátt fyrir að veiðitímabilinu sé að mestu lokið. Sem dæmi um frábæra haust skemmtun má nefna að urriðinn á Þingvöllum, og eflaust víðar, sýnir sínar flottustu hliðar þessa dagana þegar hann leitar upp í Öxará til hrygningar. Stórkostlegt að sjá þá í bunkum í ánni, þó þeir hafi nú verið með rólegasta móti í kuldanum í gær þegar við hjónin renndum upp eftir. Í örstuttu spjalli við Jóhannes Sturlaugsson sem var við merkingar vildi hann þó meina að krafturinn mundi færast í hann aftur um næstu helgi þegar hlýnaði.



Fyrir þá sem ekki vilja eða hafa tök á að skoða urriðann á Þingvöllum má svo alltaf ylja sér innandyra við að fletta haustútgáfum veftímaritanna sem eru einmitt að hellast yfir okkur þessa dagana. Margt fróðlegt á ferðinni þar.
Haustið við Elliðavatn Höfundur:
-
38% uppsveifla

Uppsveifla Það er einhver bölvaður púki í mér í dag. Á sama tíma og laxveiði hefur hrunið um 39% á milli ára og laxveiðileyfi hafa hækkað um (örugglega) annað eins, gefa nýjustu tölur silungsveiðinnar á mínu heimili til kynna að útlagður kostnaður vegna leyfa hafi staðið í stað á milli ára en uppsveifla í afla sé rétt um 38%.
Ef svo fer sem horfir, að maður sé búinn að leggja stönginni þetta árið, þá standa aflatölur okkar hjóna í 108 bleikjum í ár á móti 73 í fyrra. Uppsveifla um 48%. Urriðar í ár eru 65 á móti 52 í fyrra, uppsveifla um 25%. Samtals gerir þetta 173 fiska í ár á móti 125 í fyrra og það gerir 38% uppsveiflu þrátt fyrir einstaklega kalt og langdregið vor.
Ummæli
15.10.2012 – Urriði: Gaman að heyra! Átti sjálfur svipað sumar, eyðslan stóð í stað ef litið er til veiðileyfakaupa en bensínkostnaður var þó töluvert meiri!
Svar: Já, ætli maður verði ekki að viðurkenna að ‘ferðakostnaður’ hafi eitthvað aukist á milli ára. Ætli maður skoði ekki dísel útgáfu við næstu endurnýjun jepplingsins, verst hvað stofnkostnaðurinn er töluvert hærri.
Höfundur:

