Eins og dyggir lesendur hafa orðið varir við hefur orðið smá hlé á færslum hérna á síðunni frá því í byrjun febrúar. Þetta hlé orsakast ekki af neinni bilun, eingöngu af því að það er aðeins of mikið að gera á öðrum vetvangi. Hvað úr þeirri vinnu verður, ræðst vonandi á næstu dögum. Til þeirra fjölmörgu sem brugðust við beiðni minni um ljósmyndir af bleikjunum okkar um daginn; hjartans þakkir fyrir viðbrögðin. Ég verð í sambandi um leið og framvinda verkefnisins ræðs.
Hvað varðar nýjar færslur, þá er nóg til af efni og nú þarf ég aðeins að krýja út aðeins meiri tíma í sólarhringinum til að setjast niður og koma því niður á vefinn. Sjáum til hvað komandi helgi ber í skauti sér.
Ágætu veiðimenn og konur. Vegna smá verkefnis sem ég er að dunda við vantar mig nokkrar ljósmyndir og biðla því til ykkar um aðstoð. Helst vantar mig myndir af bleikjuafbrigðunum okkar fjórum; dvergbleikju, murtu, kuðunga- og sílableikju.
Myndirnar þurfa að vera í fullri upplausn, þ.e. óskornar af forritum eða vefjum og almennt í góðum gæðum. Ég get ekki lofað umbun fyrir aðstoðina, annarri en þeirri að nafn höfundar og aðrar upplýsingar sem hann kýs að verði látnar fylgja með verður getið, þ.e. komi til birtingar á vef eða prenti.
Þeim sem sjá sér fært að aðstoða mig eru beðnir um að senda mér skilaboð eða tölvupóst á kristjfr (hjá) simnet.is
Með fyrifram þökk,
Kristján Friðriksson
Lítill fengur
Ummæli
02.02.2014 – Nafnlaus: Þú veist að bleikjuafbrigði á Íslandi eru svolítið fleiri en fjögur. Í Þingvallavatni einu eru fjögur afbrigði og eru þau kölluð þetta sem þú nefnir. Hinsvegar eru fjölmörg önnur vötn (flestöll bleikjuvötn landsins) með 1-3 afbrigði. Afbrigði sem líkist til dæmis Þingvallavatnsmurtu en lifir í Svínavatni er ekkert skyldara murtu en einhverju öðru afbrigði.
Svar: Takk fyrir þarf ábendingu. Sé nú að ég hefði mátt vera nákvæmari og jafnvel mátt sleppa því að telja upp ‘Þingvalla-afbrigðin’ sem væntanlega hafa þvælst fyrir einhverjum. Að sjálfsögðu eru allar myndir einhverra þeirra tuga afbrigða sem finnast á Íslandi, vel þegnar og mér hafa nú þegar borist nokkrar frábærar myndir. Hvort sem menn luma á mynd af Gjáarlontu eða Krús úr Mývatni eða bara einhverju afbrigði öðru, þá eru allar myndir vel þegnar.
Ég óska veiðmönnum öllum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða. Árið færði síðunni rúmlega 76.000 heimsóknir á þær 195 greinar sem ég setti hér fram. Kærar þakkir fyrir öll innlitin og ummælin sem þið létuð mér og öðrum lesendum í té á árinu.
Aflatölur ársins eru aðgengilegar hér ásamt svipmyndum frá liðnu sumri á YouTube. Fyrir þá sem hafa nýtt sér Dagatalið á síðunni, þá er 2014 klárt með hefðbundnum upplýsingum.
Hvað nýtt ár færir síðunni margar heimsóknir get ég lítið sagt til um, en sem fyrr stefni ég á reglulegar uppfærslur og nýjar greinar með svipuðu sniði og verið hefur. Því til viðbótar eru nokkrar hugmyndir að efni og efnistökum að gerjast í kollinum á mér sem vonandi skýrast þegar nýtt ár hefur gengið í garð. Hver veit nema ég gerist svo djarfur að biðla til lesenda um smá þátttöku í efnisöflun á nýju ári.
Ég veit það fyrir víst að metsölulisti bókaútgefenda er ekki alveg réttur. Ein söluhæsta bókin undanfarin ár er handbók Veiðikortsins, samt er hennar aldrei getið á metsölulistunum. Pottþétt lesning yfir jólin og ekki skemmir að hún fylgir ókeypis með Veiðikortinu sem þú getur keypt hér.
Þessi bóka jól ætla að færa okkur veiðimönnunum nokkur gullkorn, í það minnsta fyrirheit um slík. Í það minnsta þrjár eigulegar bækur fyrir áhugamenn um veiði koma út núna fyrir jólin. Ég hef áður nefnt bækur Sölva Björns, Stangveiðar á Íslandi og Íslensk vatnabók. Einstaklega eigulegt verk og mikið að vöxtum sem nú nýlega var tilnefnt til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðibóka. Í þessum bókum rekur Sölvi Björn sögu stangveiða á Íslandi lengra aftur en elstu menn muna og kryddar skemmtilega með innskotum hundruða veiðimanna.
Stefán Jón Hafsten hefur síðan tálgað úr viskubrunni sínum nokkur Fluguveiðiráðog sett í samnefnda bók. Ég hef rétt aðeins gluggað í bókina og það sem ég sá lofar góðu, í það minnsta þeir kaflar sem ég renndi yfir, þ.e. um vatna- og silungsveiði. Það skal engan furða hve mörg heilræði er að finna í bók þessari þar sem Stefán hefur úr töluverðum forða að moða af vef sínum flugur.is Ekki síður eiguleg bók og á eflaust eftir að gleðja marga veiðimenn um jólin og fram að fyrstu veiðiferð næstu vertíðar.
Nýjasta bókin í flórunni fyrir þessi jól er svo frá Guðmundi Guðjónssyni ritstjóra Vötn og veiði og ber nafnið Silungur á Íslandi. Mér hefur ekki tekist að koma höndum yfir bók þessa ennþá, en ef að líkum lætur er hér ekki um neitt hálfkák að ræða enda Guðmundur þekktur fyrir ritstörf sín í gegnum tíðina. Af efnistökum bókarinnar má nefna umfjöllun um staðbundinn urriða og bleikju í stöðuvötnum og sömu stofna í straumvatni auk lýsinga af þekktum veiðistöðum þar sem landsþekktir veiðimenn eiga innlegg.