-
Vesturröst styrkir Febrúarflugur
Síðasti, en ekki sísti styrktaraðilinn sem við kynnum hefur stutt við Febrúarflugur frá upphafi. Vesturröst hefur í gegnum árin stutt dyggilega við bakið á Febrúarflugum og þetta árið verður engin undantekning á. Það má segja að stuðningurinn hafi verið jafnt á borði sem í orði, því utan veglegra styrkja verslunarinnar, hafa starfsmenn verslunarinnar verið sérlega duglegir að vekja athygli á Febrúarflugum við viðskiptavini sína.Vesturröst hefur allt frá árinu 1957 verið ein helsta veiðivöruverslun landsins og þar bjóðast heimsþekktar stangaveiðivörur, svo sem; Orvis, Airflo, Royal Wulff, Shimano, Daiwa o.fl.Það er væntanlega ekki á neinn hallað þegar því er haldið fram að Vesturröst bíður upp á eitt mesta úrval hnýtingarvara hér á landi enda eru unnendur flugna og fluguhnýtinga eins og gráir kettir í versluninni um leið og fréttist af einhverju nýju og spennandi.Að þessu sinni leggur Vesturröst til gjafakort fyrir hnýtingarvörum sem viðurkenningu fyrir þátttökuna í Febrúarflugum, eitthvað sem örugglega kemur sér vel eftir að hafa lagt fram sæg af flugum í mánuðinum.Höfundur:
-
112 Febrúarflugur
Febrúarflugurnar hafa heldur betur farið vel af stað. Fyrstu átta dagana komu fram 112 flugur frá 30 hnýturum og síðustu styrktaraðilarnir voru að detta í hús með vegleg framlög til viðurkenninga til handa heppnum hnýturum átaksins. Ekki má heldur gleyma öllum þeim sem fylgjast með átakinu, en þar hefur heldur betur bæst í hópinn því þegar eru 140 einstaklingar að fylgjast með á Facebook og þeir hafa aldrei verið fleiri.Febrúarflugurnar eru ekki aðeins á Facebook, þær eru einnig færðar reglulega inn á FOS.IS, sjá hér.
Eins og hér hefur verið kynnt þá hafa 10 fyrirtæki og einstaklingar lagt að mörkum einstaklega glæsilegar viðurkenningar sem veittar verða heppnum hnýturum á lokakvöldi Febrúarflugna sem verður 28. febrúar í Árósum, félagsheimili Ármanna að Dugguvogi 13. Við þökkum öllum þessum aðilum kærlega fyrir stuðning þeirra og velvild til átaksins.

Vesturröst styrkir Febrúarflugur 
Veiðikortið styrkir Febrúarflugur 
Valdemarsson styrkir Febrúarflugur 
Sunray styrkir Febrúarflugur 
Mistur styrkir Febrúarflugur 
Langskeggur styrkir Febrúarflugur 
JOAKIM’S styrkir Febrúarflugur 
Flugubúllan styrkir Febrúarflugur 
Árvík styrkir Febrúarflugur 
Ármenn styrkja Febrúarflugur Höfundur:
-
Valdemarsson styrkir Febrúarflugur
Valdimarsson Fly Fishing styrki Febrúarflugur nú í annað sinn. Verslunin hefur um árabil boðið upp á flugustangir og hjól að ógleymdum flugum sem eigandi verslunarinnar, Eiður Valdimarsson hefur hnýtt. Síðustu misserin hefur Eiður lagt aukna áherslu á framboð vara til fluguhnýtinga; UV lím, búkefni ýmiskonar, hár, fjaðrir og margt fleira.
Valdemarsson hefur sett saman gjafakassa sem inniheldur Royal Vice, tvenn skæri, tvo spóluhaldara og fjaðratöng, auk úrvals af Perlunni í fluguboxi og allt þetta hlýtur einhver heppinn hnýtari að launum fyrir framlag sitt til Febrúarflugna þetta árið.
Höfundur:
-
Sunray styrki Febrúarflugur
Vefverslunin Sunray styrki Febrúarflugur nú í annað skiptið. Verslunin sérhæfir sig í efni til túpuhnýtinga; plaströr, málmbúka, keiluhausa, hár og króka.
Að þessu sinni ætlar Sunray.is að gefa einhverjum heppnum Magic Quills gervi fanir til hnýtinga. Strimlarnir eru með límbornu neðra byrgði þannig að það situr vel á búk flugunnar á meðan unnið er með það áður en lakkað er yfir það með hefðbundnu lakki eða UV lakki sem eykur virkni efnisins til muna. Strimlarnir koma í þremur breiddum; Small, Medium og Large. Í hverjum pakka eru 20 strimlar sem hver um sig er 10 sm. langur.Hægt er að kynnast Magic Quills nánar í þessu myndbandi:Höfundur:
-
Flugubúllan styrkir Febrúarflugur
Flugubúllan hefur styrkt Febrúarflugur undanfarin tvö ár, þ.e. alveg frá stofnun Flugubúllunnar. Upphaf fyrirtækisins má rekja til lítillar vefverslunar með flugur sem nokkrir æskufélagar stofnuðu árið 2015, en síðan hefur þessi vefverslun stækkað svo um munar. Vöruúrvalið hefur teygt sig til nær allra vara sem tengjast stangveiði og fer ekki aðeins fram á vefnum því í lok árs 2017 var opnaði Flugubúllan verslun að Hlíðarsmára 13 í Kópavogi.
Í dag er Flugubúllan umboðs- og dreifingaraðili á Íslandi fyrir mörg markaðsleiðandi vörumerki heims, s.s. Guideline, UMPQUA, Fulling Mill og Wychwood.
Einn af hornsteinum Flugubúllunnar hefur verið Flextec vörumerkið og það fer því vel á því að Flugubúllan leggur til Flextec XRD44 9 feta stöng #7/8 sem viðurkenningu til einhvers heppins þátttakanda í Febrúarflugum þetta árið.
Höfundur:
-
Mistur styður Febrúarflugur
Nýr styrktaraðili Febrúarflugna er vefverslunin Mistur. Þótt Mistur bjóði ekki upp á stangveiðivörur, þá henta vörurnar sérstaklega vel veiðimönnum sem umhugað er um náttúruna því allar eru vörurnar umhverfisvænar og koma í stað annarra óumverfisvænni vara.
Mistur sérhæfir sig í vörum til hversdagsnota á viðráðanlegu verði, umbúðum fyrir nestið í veiðiferðina, kaffimálum úr bambus og stálbrúsum fyrir kaffið eða svaladrykkinn.
Það verður einhver heppinn hnýtari sem fær Qwetch stálbrúsa, Bee‘s Wrap samlokuörk og Keep leaf samlokupoka sem viðurkenningu fyrir þátttökuna á lokakvöldi Febrúarflugna 28. febrúar.
Höfundur:





