Ætli manni sé ekki óhætt að segja veiðisumrinu 2013 formlega lokið. Komið fram í nóvember og græjurnar eru komnar í geymslu og maður farinn að huga að vetrarstarfinu. Ég hef síðustu árin sett saman smá klippu með völdum myndum úr veiðiferðum sumarsins og nú er komið að frumsýningu þessa árs.
Annars var veiðin frekar í rólegri kantinum þetta sumarið. Að vísu lagði ég 39 sinnum af stað með stöng í farteskinu, en veiðin var aðeins 25 urriðar og 25 bleikjur. Oft verið meiri og oft verið í betra veðri. Engu að síður var þessum stundum vel varið, einn eða í góðra vina hópi. Ætli þetta sumar hafi ekki verið met-sumar að því leitinu til að ég hef trúlega aldrei komið jafn oft heim með öngulinn í rassinum, alls 21 skipti. En, veiðnar ferðir voru því 18 sem gáfu mér 50 fiska sem gerir þá tvo og þrjá-fjórðu fisk þegar gaf á annað borð.
Að öllu jöfnu telst það ekki í frásögur færandi að maður kíki í bókabúð, en í þetta skiptið var það gert í mjög svo ákveðnum erindagjörðum. Ég ætlaði nefnilega að skyggnast í bækur Sölva Björns, Stangveiðar á Íslandi og Íslensk vatnabók.
Fyrirfram vissi ég að samtals næðu þessar tvær bækur ríflega 1000 blaðsíðum og hlytu því að vera nokkurt verk, en hvorki óraði mig fyrir umfanginu eða innihaldinu. Þetta er glæsilegt verk með mörgum frábærum lýsingum og frásögnum veiðimanna, framsett á skemmtilegan og auðlesin máta sem ber höfundi gott vitni um áhuga og elju við skrif.
Auðvitað greip egóið aðeins um sig og ég fletti í gegnum langar nafnaskrár beggja bókanna og fannst bara nokkuð til þess koma að eiga þar nokkur innlegg ásamt fjölda annarra veiðimanna og kvenna.
Þetta eru einstaklega eigulegar bækur sem vonandi eiga eftir að rata á náttborðið hjá mér innan tíðar.
Heyrir hann vel? Heyrir hann í mér? Spurningar um heyrn fiska eru margar og ekki alltaf auðvelt að gera sér grein fyrir því hvað, hvernig og hversu vel hann heyrir. Fiskar hafa innra og ytra eyra rétt eins og við mennirnir. Þar sem eðlisþyngd fiskjar er ekki ósvipuð vatninu sem þeir lifa í, streyma hljóðbylgjur í gegnum hold þeirra án þess að dofna neitt að ráði þar til þær skella á beinagarðinum sem tekur við hljóðinu og ber það til eyrnanna. Þeir sem eru svo óheppnir að hafa upplifað beinbrot kannast e.t.v. við þetta óhugnanlega hljóð sem nístir merg og bein og kemur að innan þegar bein brotnar. Ég hef meira að segja upplifað snöggan smell, nánast eins og byssuskot sem ég trúði varla að menn í kringum mig hefðu ekki heyrt þegar hásin hrökk í sundur í fætinum á mér á gervigrasi um árið. Ég hélt fyrst að ég hefði sprengt tuðruna þegar ég sparkaði í hana, svo mikill var hvellurinn. En, nei. Það var bara ég sem heyrði þennan hvell og enginn kannaðist við að hafa sprengt pappírspoka við eyrun á mér.
Beinagarður fiska flytur umhverfishljóð beina leið til haussins og þannig heyra þeir hljóð jafnvel betur innra með sér heldur en inn um ytri eyrun. Það er e.t.v. skýringin á því að silungurinn getur heyrt steinvölu skrapast í botni, já eða neglda vöðluskó í meira en km. fjarlægð. Nú kann einhver að segja að nú fari ég með fleipur, en ég hef þetta fyrir satt eftir að hafa lesið töluvert af greinum um heyrn fiska.
Aftur á móti heyrir fiskurinn sára lítið af þeim hljóðum sem berast ofan vatnsborðs. Okkur er því alveg óhætt að raula á meðan við veiðum, sleppum bara öllum upphrópunum og gleðilátum þegar hann tekur. Við eigum það nefnilega til að hoppa af kæti og það nemur annað skynfæri fisksins; hliðarrákin.
Er eitthvað annað útsýni af botni lækjar heldur en vatns? Nei, eiginlega ekki. Þetta snýst alltaf um það saman. Ef fiskurinn sér þig, þá líkar honum ekki útsýnið. Því miður eru miklu meiri líkur á því að fiskurinn sjái þig í grunnu vatni heldur en djúpu. Eitt vinnur þó alltaf með okkur og það er gáran á vatninu. Hvort sem gáran er vegna rigningar eða vinds er hún vinur okkar. Hún brýtur sjónsvið silungsins, truflar útsýnið og við getum falist ofan hennar.
Svo er það þetta með líkamsbeitinguna hjá okkur. Í sumra augum er fátt tignarlegra heldur en fluguveiðimaður standandi úti í miðri á (læk), örlítið bogin hné, sixpensara, sveiflandi stönginni með þessum takföstu hreyfingum með snöggum stoppum í fram- og afturkastinu. Í augum hinna sömu er fátt aulalegra en fullorðinn maður á fjórum fótum, skríðandi næstum á maganum eins og ánamaðkur fram á bakka árinnar, potandi prikinu varfærnislega fram á við án þess að það minnsta skugga beri á vatnið. Meira að segja ég hef séð spaugilegu myndina af þessu í huganum en verð eftir sem áður að viðurkenna að ánamaðkurinn á meiri séns á fiski heldur en tindátinn.
Ánamaðkar?
Annars er það ekki endilega skugginn sjálfur sem fiskurinn hræðist. Honum stendur meiri ógn af hreyfingu þess sem varpar skugga. Það er stundum talað um að skjóta rótum, eða ekki. En, það hefur komið fyrir að mér hefur tekist að skjóta svo rótum í vatni að fiskurinn er löngu hættur að forðast mig og syndir beinlínis á milli fóta mér. Ef maður aftur á móti hreyfir sig þá er spilið búið, oftast. Af þessu hef ég ráðið að takist manni ekki að leika Pétur Pan (vera án skugga) þá er næst best að leika skjaldbökuna og hreyfa sig hægt og rólega frekar en hérinn sem skýst áfram. Fyrst maður á sér skugga er eins gott að hann hreyfist hægt og rólega.
Einhver óskiljanlegasta fyrirsögn sem hægt er að hugsa sér, en það sem ég er að reyna að koma á framfæri er hljóðmyndin sem silungurinn heyrir þegar skordýrið dettur alveg óvart í vatnið, bröltir síðan aðeins um áður en það annað hvort nær sér aftur á land eða einfaldlega drukknar. Silungur verður að vísu var við hljóð með öðrum hætti en við, hann skynjar hljóðið með ‚hljóðrákinni‘ sem liggur með síðu hans. En þetta litla ‚plomp‘ getur vakið forvitni hans, viðbragð sem er ósjálfrátt og hann rennur á agnið. Það er kúnst, en ekki ómögulegt, að líkja eftir þessu ‚plompi‘. Þegar kemur að því að leggja fluguna, oftast einhverja púpu, fyrir fiskinn með þessu ‚plompi‘ er ekki verra að kunna skil á Tuck Cast, kannski eins og Carl McNeil framkvæmir það: (verður því miður að spilast á YouTube)
Það hefur legið fyrir um nokkurt skeið að RARIK hættir rekstri Laxárvatnsvirkjunar um næstu áramót. Þegar ég frétti fyrst af þessu laumaðist aftur að mér hugmynd sem fyrst hafði vaknað þegar ég renndi yfir nokkrar skýrslu Veiðimálastofnunar um Laxá á Ásum, sjá hér. Hugmyndin litaðist svolítið af þeirri vakningu sem orðið hefur á umliðnum árum um endurheimt náttúrulegra vatnsfarvega í heiminum. Og viti menn; Vötn og veiði voru fyrstir með fréttirnar eins og svo oft áður í gær Laxá á Ásum: Virkjun hætt, stíflur rifnar. Þessar stíflur, Laxárvatnsstífla og Svínavatnsstífla sem reistar voru á upphafsárum virkjunarinnar á miðjum 4 áratug síðustu aldar verða loksins rifnar og Laxá á Ásum endurheimtir óskiptan farveg sinn frá upptökum til ósa. Þetta einstaka tækifæri okkar til að færa vatnasviðið til fyrra horfs ætlar raunverulega að verða að veruleika.
Það álit fræðinga var þegar orðið ljóst árið 1987 að virkjunarsvæðið sem nú verður endurheimt „verði að telja að svæðið væri mun betra uppeldissvæði ef Laxárvatnsstíflan væri ekki til staðar“ heimild: Fiskistofa. Úr skýrslum Veiðimálastofnunar hefur mátt lesa mörg undanfarin ár að ítrekað hefur farvegur Efri-Laxár frá útfalli Svínavatns þornað og því hefur viðkoma seiða á þeim slóðum oft verið mjög léleg.
Þrátt fyrir að menn renni töluvert blint í sjóinn með niðurrif þessara stíflna og viti ógjörla hvaða áhrif þessi framkvæmd hefur til lengri tíma hvað varðar lífríkið á þessum slóðum, er þetta frábært fyrsta skref í endurheimt náttúrulegra vatnsfarvega á Íslandi. Til hamingju með áfangan.
Laxárvatnsstífla
Ummæli
22.10.2013 – Valdimar Sæmundsson:Væri ekki ráð að gera hið sama fyrir Skorradalsvatn? Víða er mjög aðgrunnt við vatnið og eru hrygningarstöðvar stöðugt eyðilagðar með því að hækka og lækka stöðugt í vatninu. Breytingin er alltaf fyrirvaralaus og mjög hröð, allt að meter innan mánaðar.
Svar: Jú, miðað við það sem maður hefur lesið um bakkarof og sveiflur í vatnshæð í Skorradalnum væri það ekki svo vitlaus hugmynd. Annars eru nokkrar stíflurnar sem manni dettur í hug sem betur hefðu aldrei verið byggðar hvort heldur vegna virkjana eða vatnsmiðlunar.