Veiðikortið 2014 er að koma út á næstu dögum, þannig að það ætti að vera klárt í jólapakka landsmanna. Tvö ný vötn bætast við og eitt dettur út. Verðið er óbreytt frá því í fyrra eða kr. 6.900, sannkölluð kjarabót á meðan allt annað hækkar.
Tvenn ný vötn verða á kortinu þetta árið; Gíslholtsvatni í Holtum og Vestmannsvatni í Suður-Þingeyjarsýslu. Eitt svæði dettur út; Þingvallavatn II fyrir landi Ölfusvatns.
Bæklingur ársins er klár á netinu og hann má nálgast hérna.
Hér áður fyrr beittu menn höglum á tauma til að sökkva flugum niður á æskilegt dýpi en þessi aðferð hefur vikið fyrir misþyngdum flugum í boxum veiðimanna hin síðari ár. Ég hef reyndar aldrei orðið þeirrar upplifunar aðnjótandi að sjá veiðimann beita höglum ‚live‘ en lesið því meira um þetta síðustu vikur og mánuði.
Það er með þetta eins og flest annað að skoðanir manna eru töluvert skipta á ágæti og aðferðum við að veiða með höglum á taumi. Veikir tauminn, segja sumir og hnýta þá flugulausan afleggjara (droppper) á tauminn þar sem þeir raða höglum á eftir því sem þeir vilja sökkva betur. Þá rísa aðrir upp og segja að það henti illa því kastið verður þá að vera svo ávalt að nákvæmnin sé fyrir bí. Nei, nei segja enn aðrir og benda á að veltikastið sé tilvalið fyrir haglaköst á afleggjara, þá sé minni hætta á flækjum.
Enn aðrir láta sig hafa það að nota sverari taum og smella höglunum beint á hann en gæta þess þá bara enn betur að hann særi ekki tauminn og þvertaka alveg fyrir að nota högl með rifflaðri rifu. Já, einmitt. Högl og högl eru ekki það sama. Sum eru með beinni skoru, önnur eru með rifflaðri og svo er það þetta með þyngdina. Fleiri og léttari eða færri og þyngri? Ég hef svo sem ekki hugmynd um hvað sé best en einhvern veginn segir fyrri reynsla mér að fjöldi hagla skiptir ekki svo rosalega miklu máli.
Ég á svona skammtara með nokkrum þyngdum í, arfur frá því ég veiddi á flot og maðk, og mér sýnist í fljótu bragði að minnstu höglin hafi orðið svolítið afgangs eftir maðkaveiðina. Kannski maður prófi þetta næsta sumar með flugu, en hvar þá helst? Andstreymis, eins vel og mér hefur nú gengið þannig? Eða einfaldlega í vatnaveiðinni þar sem maður stillir fluguna af miðað við fæðudýpið? Ef maður kemst á annað borð upp á lagið með þetta, þá skilst mér að þetta virki alls staðar.
Einn helsti kostur meðstreymisveiði er að það fyrsta sem silungurinn sér er flugan þín, hvorki taumurinn, línan né skuggi hennar. Annar kostur meðstreymis er að þú hefur miklu meira vald á hraða flugunnar heldur en andstreymis.
Ókostir? Já, margir og þar á meðal að til þess að forðast að fiskurinn sjái þig verður þú að standa töluvert langt ofan hans og því ert þú með nokkuð langa línu á milli þín og fisksins. Ef hann skildi nú glepjast af flugunni og þú þarft að bregðast við, geta viðbrögðin orðið heldur silalegri því straumurinn tekur nokkuð vel í línuna og hægir á öllum viðbrögðum þínum.
Svo er nú ekki auðvelt að stjórna því hvert flugan/línan fer þegar straumurinn hefur náð taki á henni, en þar kemur á móti að straumurinn ber nú yfirleitt eitthvað annað með sér heldur en flugulínu, nefnilega ætið sem fiskurinn er á eftir. Og til þess að flugan þín skeri sig eitthvað úr öllu öðru sem flýtur niður ánna getur verið gott að eiga nokkur trikk uppi í erminni. T.d. að hreyfa stangarendann til sitt hvorrar hliðar við strauminn. Vitandi það að fluga fylgir hreyfingum stangarinnar, ekki bara í lofti, þá færir flugan sig til sömu áttar og þú færir stangarendann og þannig fer flugan þín að skera sig aðeins úr öllu öðru sem flýtur þarna niður. Að vísu á þetta mest við um straum- og þurrflugur, síður um púpur og þyngdar flugur þar sem straumurinn hefur mikil áhrif á tauminn.
Ef þú ert síðan komin með fluguna vel niður eftir strauminum, e.t.v. alveg niður í lygnu eða á breiðu þá getur verið ráð að draga aðeins inn, færa stöngina til gagnstæðrar áttar og gefa aftur laust. Flugan færir sig þannig á aðeins til á breiðunni. Umfram allt, leyfðu flugunni að fara lygnuna alveg á enda, fiskurinn leynist oft þar sem hún endar undan straumi, hann hefur þá allan þann tíma í heiminum sem þarf til að koma auga á ætið áður en hann lætur til skarar skríða. Svo má ekki gleyma því að urriðinn heldur sig oft í grennd við stóra steina á botninum og við gætum þurft að leggja fluguna beggja vegna við hann áður en fiskurinn tekur.
Lesendum þessarar síðu þarf ekkert að koma það á óvart þegar ég játa að ég hef undanfarin ár haldið tryggð við Joakim’s flugustangir í mínum meðförum. Stangirnar og sú þjónusta sem ég notið hjá Joakim’s hafa hreint og beint verið framúrskarandi og ég þori því alveg að lauma smá auglýsingu hér inn frá Joakim’s sem ætti að gleðja veiðimenn allt til loka janúar 2014:
Við eigum talsverðan lager og höfum áhuga á að minnka hann og rýma til fyrir nýjum vörum.
Nú hafa JOAKIM´S flugustangir verið á markaðnum í tæp 11 ár og hafa mjög margir góða reynslu af þeim. Enda þótt við séum ekki með svokallaða lífstíðarábyrgð heldur venjulega vöruábyrgð eins og skylda er þá er það mál manna að okkar ábyrgð og þjónusta sé engu síðri en annarra söluaðila. JOAKIM´S ehf býður einnig upp á margt annað í fluguveiði svo sem hjól, línur, króka til hnýtinga, kúlur, keilur, þverhausa og flashabou. Einnig flugubox, háfa, veiðivesti, hjólatöskur og öndunarvöðlur. Í meðfylgjandi lista er að finna allar okkar vörur og nú á verði sem er lægra en nokkru sinni fyrr og gildir hann á meðan birgðir endast eða til 31.janúar 2014. Við höfum aldrei haft eiginlega útsölu á vörum okkar en alltaf boðið hagstætt verð. Ástæðan fyrir því að við getum boðið svo lágt verð er að það er engin yfirbygging og engir fastráðnir starfsmenn. Við vinnum þetta utan hefðbundins vinnutíma og bjóðum fría heimsendingu um allt land ef verslað er fyrir kr. 15.000,- eða meira. Einnig er hægt að koma til okkar til að skoða eða sækja vörur. Vörulisti lagersölunnar má opna hér ásamt pakkatilboðum hér. Vörurnar má flestar sjá á heimasíðu Joakim’s, joakims.is
Síðunni barst í dag bréf sem mér er skylt og einstaklega ljúft að koma á framfæri og bið hnýtara að gæta vel að:
Sælt veri fólkið.
Var að skoða vef ykkar og sá Heimasætuna mína illa til hafða og rangfærða á annars góðum og áhugaverðum vef (ætti að skoða hann oftar). Virðingarfyllst þætti mér, að misskilningur sem hefur gengið lengi um að Heimasætan ætti að vera gyllt í vöfum er ekki rétt, hún var og er silver og hefur alltaf verið, eins er með væng þá er hann Magenta að lit. Þætti vænt um að uppskrift að Heimasætuni verði leiðrétt á vef ykkar.
Virðingarfyllst, með kveðju Óskar Björgvinsson höfundur Heimasætunar.
Heimasætan
Hér hefur undirritaður fallið í þá gildru að styðjast við uppskriftir úr annars ágætri íslenski bók um veiðiflugur og af öðrum veiðisíðum án þess að gæta að áræðanleika þeirra uppskrifta. Þykir mér þetta miður og hef vitaskuld leiðrétt uppskriftina sem um ræðir og sjá má hér. Eins og ég hef áður sagt, þá verður þessi vefur minn aldrei betri en svo að ekki sé hægt að bæta um betur. Þar koma ábendingar sem þessar að góðum notum og kann ég Óskari kærar þakkir fyrir.
Það er engin vafi á því að fiskur skynjar titring og þrýstingsbreytingar miklu betur en við. Í roði fisksins á hliðum hans er rák sem hann notar til að skynja hreyfingu í vatninu og þrýstingsbreytingar. Svo næm er þessi hliðarrák fisksins að hún nemur hreyfingar annarra fiska og lífvera í allt að 100 m fjarlægð. Jamm, duglegustu kastarar eiga ekki einu sinni séns að felast ef þeir vaða ógætilega. Og svo megum við ekki vanmeta hvað bakkarnir geta borið mikinn titring með sér út í vatnið. Þótt okkur takist að felast á bak við stein svo hann sjái okkur nú örugglega ekki þá þurfum við ekki nema missa vatnsflöskuna í grjótið til að hann verði var við okkur. Ég tala nú ekki um ef menn fara í tiltekt á bakkanum eða hlaða vörður til að merkja góða veiðistaðinn.
En hvað með bátaumferð? Verður fiskurinn ekki var við bölvaðan hávaðan í utanborðsmótornum? Nei, í raun ekki, en hann verður örugglega var við lélegar legur, brotin skrúfublöð og allan annan titring sem utanborðsmótorinn getur haft í för með sér. Rafmagns utanborðsmótorar voru ekki fundnir upp vegna orkusparnaðar eða umhverfisverndar, þeir eru einfaldlega hljóðlátari heldur en bensínbullurnar.