
Tilbúnir taumar sem við getum keypt í verslunum eru oftast frammjókkandi, með eða án lykkju sem maður bregður í línulykkjuna. Þessir taumar eru hannaðir fyrir Meðal-Jóninn sem notar miðlungs línuna á miðlungs stöngina sína undir algengustu kringumstæðunum. Ef þú bregður út frá einhverju þessara atriða að einhverju leiti, þá ert þú ekki lengur með besta tauminn í veiðinni. Það var u.þ.b. á miðri síðustu öld sem 60/20/20 reglan varð til. Einföld regla um skiptingu taums sem eignuð hefur verið Frakkanum Charles Ritz. Fyrsti parturinn (lesið frá vinstri) á að vera u.þ.b. 2/3 af þvermáli línunnar, næsti partur á að vera u.þ.b. tveimur X-um grennri og sá síðasti enn öðrum tveimur X-um grennri. Út frá þessu eru flestir tilbúnir taumar framleiddir og eru merktir með með sverleika síðasta partsins, þeim grennsta. Segjum sem svo að þú sért að veiða með lítilli votflugu (#14) á línu #5. Þú velur þér frammjókkandi taum sem endar í stærð 3x m.v. þumalputtaregluna: stærð flugu / 4 = 3,5 ~ 3X taumur. Í þessum útreikningi er ekkert mark tekið á því að þú ert að tengja þennan taum við línu #5 en við skulum gefa okkur að taumurinn byrji í sverleika sem er 2/3 af línunni. Einhverra hluta vegna þarft þú síðan að taka fram línu #7 en heldur þig við votflugu #14. Þá er komið upp vandamál, áttu að velja þér tilbúinn taum sem byrjar á meiri sverleika þannig að hann passi línunni eða áttu að halda þig við tauminn sem passar flugunni? Ég hefði leyst málið með því að taka fram 7 fet af sveru taumaefni sem passar línu #7, segjum 2/0X. Ég veit að ég ætla mér að hnýta síðasta partinn úr 2,5 fetum af 3X taumaefni þannig að hann passi flugunni. Valið stendur þá á milli 0X eða 1X í þessi 2,5 fet sem eiga að vera í miðjunni. Ætli ég hefði ekki valið 1X, en auðvitað fer þetta allt eftir því hvað hverjum finnst best.


Ég veit það fyrir víst að metsölulisti bókaútgefenda er ekki alveg réttur. Ein söluhæsta bókin undanfarin ár er handbók Veiðikortsins, samt er hennar aldrei getið á metsölulistunum. Pottþétt lesning yfir jólin og ekki skemmir að hún fylgir ókeypis með Veiðikortinu sem þú getur keypt 


