Ég hélt að ólympíuleikarnir yrðu ekki settir fyrr en annað kvöld og því kom mér á óvart að hitta tvo, mjög verðuga þátttakendur í miklu keppnisskapi í kvöld. Við veiðifélagarnir skruppum um kvöldmatarleitið í vatn hér í grennd sem við fáum að heimsækja annað slagið. Það er oft fallegt í grennd og við héldum að við hefðum svo sannanlega dottið í lukkupottinn með veðrið á þeim góða stað þegar vatnið tók að spegla umhverfið og flugan að leika sé á yfirborðinu.
Sólarlagið í kvöld
Ég fékk að vísu afskaplega fallegan urriða, rétt innan við pundið á heimatilbúna flugu sem líkir eftir hornsíli. Snaggaralegur og sérstaklega öflugur fiskur sem setti stöngina í góðan boga á meðan ég átti við hann. Skömmu síðar brá birtu þannig að ég skipti yfir í afbrigði af Orange Nobbler og viti menn, það var tekið hressilega í fluguna og svipaður fiskur sýndi loftfimleika af mikilli snilld, svo mikilli snilld að flugan varð agndofa og ég steingleymdi að halda við. Fimleikastjarnan tók flikk-flakk og þar með skildi leiðir okkar.
Rétt um það bil sem vind tók að herða aftur, setti ég Dentist undir, þandi kastið út á vatnið, lét sökkva vel og lengi og þá var tekið í. Önnur fimleikastjarna, einhverjum númerum stærri sóttist greinilega líka eftir gullinu. Það mátti vart á milli sjá hvort bæri sigur úr bítum, pundarinn eða sá stærri, en eitt er víst, ég átti ekki sjéns í þessar aðfarir. Því fóru leikar svo að ég náði aðeins einu stigi í kvöld, urriðarnir tveimur og við veiðifélagarnir héldum heim á leið þegar enn bætti í vind. Kannski vorum við bara búinn að fá nóg af vindbarningi um síðustu helgi, en það kemur nú samt alltaf logn á eftir storminum og í næsta logni verðum við örugglega við eitthvert vatnið.
Síðustu ár höfum við veiðifélagarnir haft ýmislegu öðru að sinna um Verslunarmannahelgina heldur en veiði, en þetta árið varð breyting á. Það var gamalkunnur staður sem varð fyrir valinu og við ásamt Mosó-genginu komum okkur fyrir við Hlíðarvatn í Hnappadal. Annars tók ég eftir því að veiðibók vatnsins er merkt ‚Hlíðarvatn í Kolbeinsstaðahreppi‘, skemmtilegt að halda í gömlu hreppaheitin þrátt fyrir sameiningar síðustu ára.
En hvað um það, við mættum í Hraunholt á föstudagskvöldið í þessum líka hressilega strekkingi af norðaustri. Hef stundum velt því fyrir mér hvort það sé aðeins ein átt þekkt við Hlíðarvatn, því annað hvort blæs hann úr norðaustri þar eða bara ekki neitt. Þar sem vindur var heldur í meira lagi og við e.t.v. eitthvað lúin eftir vikuna, ákváðum við að setja upp vagninn, hita okkur kvöldverð og bíða þess að veiðifélagar okkar kæmu í hús, spennt að sjá afla og heyra veiðisögur. Aflinn hjá Mosó-genginu reyndist meira en glæsilegur, feitir og pattaralegir urriðar og bústnar bleikjur innanum.
Hlíðarvatn, Ljósufjöll í baksýn
Eftir nokkuð snarpa nótt og vindbarning, hélt ég af stað inn fyrir Fellsbrekku út á skerin sem nú stóðu öll landföst þar sem mikið hefur lækkað í vatninu frá síðustu veiðiferð þangað fyrir hálfum mánuði. Mér telst til að vatnborðið sé heilum metra lægra nú en þá og göngufært á ystu skerjum frá Rifi og að Neðriskúta. Heldur var nú vindurinn í meira lagi og ég viðurkenni að mér reyndist frekar erfitt að ná þokkalegum köstum með flugustönginni. Lét mig þó hafa það og streittist við þar til einn urriði lá í netinu. Síðar um daginn fór allur hópurinn inn að Álftatanga og veiddi sig til baka að Rifi. Maðkurinn sannaði sig hjá Mosó-genginu, en ég var eiginlega ekki á blaði fyrir utan einhverjar smábleikjur sem fengu líf. Það var ekki síðan fyrr en eftir kvöldmat að við hjónin töltum aftur út inn með vatninu að hún setti í nokkra væna fiska og ég í aðeins fleiri titti í rokinu sem þá náði hámarki.
Ég tók sunnudaginn snemma, svona á minn mælikvarða, og setti í nokkrar vænar bleikjur og nokkra titti sem fengu líf. Eftir hádegismat fór frúin á kostum og landaði hverjum glæsilegum urriðanum á fætur öðrum en ég varð að láta mér nægja að kynnast honum Sergei (tilvísun í Sergei Bubka, stangarstökkvara) sem tók fluguna með látum inni við Rif, en sýndi síðan listir sínar í loftinu sem urðu til þess að flugan skaust í eina áttin á meðan hann fór í hina.
Það má með sanni segja að maðkurinn hafi staðið uppúr sem veiðitæki helgarinnar, 42 fiskar á tvær stangir á móti 18 á tvær flugustangir. Þá eru ekki taldir þeir sem sleppt var.
Á vef Veiðivatna má finna frétt af aflabrögðum úr Framvötnum. Tölurnar byggja á veiði frá 24. júní til 9. júlí, en það sem vekur athygli er að aðeins er úr 16 veiðiskýrslum að moða á þessu tímabili. Það kemur engum á óvart að Frostastaðavatn trónir á toppinum með 600 bleikjur, næst kemur Ljótipollur með 28 urriða og Dómadalsvatn með 21 stk. Samtals voru því komnir 649 fiskar upp úr vötnunum þann 9. júlí, en verulega hefur bætt í þessa tölu síðan og Herbjarnarfellsvatn m.a. komið á blað með í það minnsta 4 væna urriða.
Frostastaðavatn
Í fréttinni eru veiðimenn hvattir til að skila inn veiðiskýrslum í póstkassana við Frostastaðavatn og vegamótum Landmannaleiðar og afleggjara að Landmannahelli. Eins má skila skýrslum til umsjónarmanna við Landmannahelli. Það verður spennandi að sjá hvort skýrslum fjölgi ekki eitthvað eftir þessa hvatningu, skil hafa verið mjög léleg m.v. útgefin leyfi og því verður vart trúað að menn hafi núllað á svæðinu í sumar.
Þess má geta í framhjáhlaupi að skráð heildarveiði 2014 úr Frostastaðavatni voru 624 fiskar og það hefur örugglega verið toppað núna, því inn í tölur ársins vantar m.a. 55 fiska okkar veiðifélaganna úr síðustu ferð. Því miður hafa aflatölur fyrir 2015 ekki verið birtar ennþá.
Nýverið fór undirritaður í jómfrúarferð í Langavatn á Skagaheiði. Eins og oft áður nýtti ég tækifærið og tók veiðimenn og umsjónaraðila tali og aflaði nokkurra upplýsinga fyrir vefinn.
Nú hefur þessum upplýsingum ásamt korti af vatninu verið komið fyrir á vefnum sem aðgengilegar eru hér.
Hún var kærkomin helgin eftir fyrstu viku í vinnu að loknu sumarfríi og stefnan því auðvitað tekin út af malbikinu. Stefnt var á Framvötn þar sem við veiðifélagarnir áttum stefnumót við Mosó-gengið sem við höfum áður átt margar góðar stundir með á bökkum ýmissa vatna.
Eitthvað brá okkur örlítið þegar að Landmannahelli var komið þar sem tjaldbúðir fyrir yfir 200 manns höfðu risið. En þröngt mega sáttir sitja og við gátum troðið okkur niður á bakka Helliskvíslar við hlið Mosó-gengisins. Við tókum okkur síðan til og ókum inn að Dómadal. Á leiðinni mættum við Mosó-genginu sjálfu, glaðbeittu og rennandi blautu eftir ágætan dag við Frostastaðavatn. Eins og okkur var tjá ‘hafði rignt eldi og brennisteini’ um daginn, eitthvað sem okkur hafði reyndar grunað þar sem vegurinn var einn risa-stór drullupollur. Eftir stutt spjall, héldum við síðan áfram leið okkar að Dómadalsvatni sem skartaði sínu fegursta í þokunni um kvöldið. Við urðum fljótlega vör við urriða að velta sér í einhverju óræðu æti í yfirborðinu og eftir nokkur köst setti ég í einn af höfðingjum vatnsins sem tók hressilega í orange Nobbler og gaf lítið eftir. Leikar fóru þó þannig að orange Nobble vann og 2 punda silfurgljáandi urrið lá í netinu. Skemmtileg byrjun á helginni.
Dulúð við Frostastaðavatn
Laugardagurinn rann upp með þokkalega stilltu veðri, dumbungi að vísu sem breyttist síðan í ausandi rigningu þegar leið á daginn. En eins og hitastigið var um helgina að Fjallabaki kom þessi rigning alls ekki að sök og allur hópurinn tölti inn með Frostastaðavatni og yfir Suðurnámshraunið í víkurnar þar og út á tangana. Frábær dagur með Mosó-genginu og allir fengu umbun göngutúrsins og rigningarinnar. Að vísu hefur bleikja lítið bætt á sig frá síðustu ferð og eiginlega ekkert stækkað en alltaf jafn gaman að eiga við hana. Þess má geta að Ármenn fjölmenntu við vatnið um helgina, ég taldi í það minnsta 8 og skemmtileg að hitta á svona marga félaga við vatnið.
Annars bárust okkur þær fréttir að vinur okkar Malli, húsbóndinn á Frostastöðum, hefði verið vegin á óðali sínu og lægi örendur í holu einni í hrauninu. Þegar betur var að gát, mátti sjá hvar sundurtætt hræ minnka höfðu verið skilin eftir við vatnið og þótti mér miður að banamaður eða eigandi þess hunds sem vann verkið, hafi ekki haft dug í sér til að fjarlægja hræin, heldur skilið þau svona eftir fyrir allra augum. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að mörgum stendur stuggur af mink og telja hann réttdræpan hvar sem til hans næst, en á þessum stað, Friðlandi að fjallabaki, hélt ég að hann væri engum til ama og gerði ekki nokkrum manni eða búfénaði mein. Hér á síðunni verða því ekki fluttar fleiri fréttir af þessum ferfætta vini okkar við Frostastaðavatn, eftirleiðis verður þagað þunnu hljóði um frændur hans eða afkomendur sem hafa tekið við bústjórn að Frostastöðum og þiggja eitt og eitt smælki af veiðimönnum.
Herbjarnarfellsvatn 2014
Eftir að við hjónin höfðum tekið saman á sunnudaginn, lögðum við leið okkar að því vatni sem mér stendur trúlega næst hjarta af Framvötnum, Herbjarnarfellsvatni. Frá því ég kom fyrst að þessu vatni hefur mér alltaf þótt einkennilega vænt um það. Fiskurinn þarna er einstaklega fallegur, bjartur og skemmtilegt að eiga við. Það er því engin tilviljun að mynd veiðifélaga míns af mér við vatnið prýðir kápu bókar minnar, Vatnaveiði –árið um kring sem kom út í fyrra. Í þetta skiptið töltum við inn með ströndinni sem sést á myndinni, alveg inn að og inn fyrir lækinn sem rennur í vatnið að norð-austan. Lítið urðum við vör við fisk á þessari leið okkar, þannig að við snérum við og héldum að bílastæðinu, kaffibrúsinn heillaði. Ég ákvað að leggja ekki fleiri fet undir fót, heldur smellti orange Nobbler á taum og í því ég kastaði fyrst út á vatnið, tók einn stökkið rétt utan kastfæris. Eftir tvö köst til viðbótar var tekið hressilega í fluguna, hún keyrð niður á botn og látið reyna á bremsuna í hjólinu. Það tók mig nokkra stund að landa þeim bjarta, feitur og fallegur urriði, rétt undir tveimur pundum. Skömmu síðar var aftur tekið í Nobblerinn, fóstbróðir þess fyrri og í eins góðum holdum. Þriðji lét ekkert bíða eftir sér, tók með látum og vóg slétt tvö pund en dró línuna út af hjólinu eins og fimm pundari hefði gert í Veiðivötnum. Þetta uppáhalds vatn mitt kvaddi mig síðan með enn einum tæplega tveggja pundara rétt áður en veðurguðirnir smelltu hressilegum skúr á mig í kveðjuskyni. Frábær endir á enn einni helgi í Framvötnum.