Frá mínu sjónarhorni í vatninu virðast tökuvarar sem gerðir eru úr garni ekki fæla fiskinn eins mikið eins og þeir sem gerðir eru úr plasti eða eru gegnheilir. Mér sýndist fiskar heldur hrelldir eftir að gegnheill tökuvari lenti á vatninu. Ég veit ekki hvers vegna, kannski er það vegna smellsins sem heyrist þegar hann lendir. Vissulega litu gegnheilu tökuvararnir framandi út þegar þeir flutu framhjá á yfirborðinu. Garn-tökuvari leysir bæði vandamálin. Hann fellur hljóðlaust á vatnið og frá mínu sjónarhorni séð virtist hann samlagast vatninu betur. Hann virtist ‚náttúrulegri‘, ekki eins og ‚mannanna verk‘. Mismunandi litir virtust ekki skipta fiskinn neinu máli.
Kirk Deeter
Hér get ég samsvarað mig nokkuð vel með Kirk Deeter. Sumir tökuvarar minna meira á flotholt fyrir beituveiði heldur en tökuvara og engin furða að fiskurinn taki við sér (neikvætt) þegar sumt af þessu lendir á vatninu.
Einn þeirra sem líta reglulega við á klippusafnið mitt á Vimeo benti mér á og bauð mér inn á nokkuð skemmtilega útfærslu af samfélagsvef, Fly dreamers sem komið hefur verið á fót á netinu. Þessari síðu svipar töluvert til Facebook en stærsti munurinn er að hér eru aðeins veiðinördar á ferð að skiptast á upplýsingum og upplifunum. Ég sló til og skráði mig og eftir stutta stund dúkkaði auðvitað annar Íslendingur upp á vefnum, Einar Guðna í Veiðiheimum. Gaman væri nú ef fleiri landar létu sjá sig á þessum vef. Aðgangur er öllum opinn og það er hægt að skrá sig hérna.
Ég veiði alltaf með tvær flugur á taum í púpuveiði. Fyrri (efri) flugan er skrautfluga, sem dæmi San Juan ormurinn eða Copper John. Síðan hnýti ég 30 til 45 sm. taumenda í hana og þar á endann minni flugu, góðgæti á botninn. Svona er byrjunarsettið mitt í straumvatni, stundum einnig í stöðuvatni. Í mjög hægur og tæru vatni nota ég tvær litlar flugur.
Kenningin er að fyrri flugan grípi athygli fisksins sem athugar málið þá betur og rekur þá augun í þá síðari og hremmir hana. Hljómar svolítið langsótt, en ég varð vitni að þessu. Ég staðsetti mig á botninum um það bil 4 fet fyrir neðan og örlítið til hliðar við stóran regnboga. Mardick kastaði og ég fylgdist með fiskinum þar sem flugan greip athygli hans, hann snéri sér við og synti framhjá mér eins og til að undirstrika „Bíddu, ég kem að vörmu, þarf bara að tékka aðeins á þessu“. Hann fylgdi þeim eftir (lítilli steinflugulirfu og litlum rauðleitum Copper John) en ákvað greinilega að gefa þeim líf og snéri til baka á nákvæmlega sama stað og hann lagði upp frá. Í næsta kasti flutu flugurnar rétt framhjá mér, fiskurinn tók á rás á eftir þeim og hvarf mér sjónum. Skömmu síðar kom hann til baka á staðinn sinn. Eftir þriðja kastið setti fiskurinn aftur kúrsinn á eftir flugunum, en í þetta skiptið kom hann ekki aftur. Ég fór upp á yfirborðið og sá Mardick og Bartkowski með regnbogann í netinu. Hann hafði hremmt neðri fluguna, fangaður af forvitninni.
Kirk Deeter
Ummæli
Ónafngreindur – 15.janúar 2012
Svona af því að þú ert að fjalla um tvær flugur á sama taum þá sendi ég VoV sumarið 2010 smá sögu sem kom meðal annars inn á þetta svið:
“Ég fór um daginn tvo daga í röð og fyrri daginn var ég með Peacock á beinum öngli og Pheasant tail á bognum öngli(ég er með tvær flugur á taumnum) og tóku allir fiskarnir Peacockinn. Daginn eftir var ég með Peacock á bognum öngli en Pheasant tail á beinum, þann daginn tóku allir fiskarnir Pheasant tail púpuna. Merkilegt hvað svona smáatriði geta skipt miklum sköpum.”
Þetta var í urriðavatni og í öllum veiðiferðum mínum það sumar veiddi ég mun betur á flugur á beinum öngli heldur en grubber öngli. Skipti þá litlu máli hvort beini öngullinn væri sá efri eða neðri.
Hérna er öll fréttin: http://www.votnogveidi.is/aftheying/veidisagan/nr/3439, þarna sést reyndar hvað maður veit lítið, ég efaðist um að það væru stærri fiskar en 50 cm í ánni en núna í sumar fékk ég þónokkra milli 50 og 60 cm og missti enn fleiri! Annaðhvort hef ég skánað sem veiðimaður eða fiskurinn stækkaði rosalega hratt milli ára
Frábær síða hjá þér, ein af sárafáum veiðisíðum með einhverju lífi yfir veturinn!
Pakkinn frá Amazon kom í gær! Tvær áhugaverðar bækur með sitt hvorum áherslunum.
The Little Red Book of Fly Fishing eftir þá félaga Kirk Deeter og Charlie Meyers er einfaldlega komin á stall bestu veiðibóka sem skrifaðar hafa verið. Skemmtileg framsetning á 250 gullkornum fyrir fluguveiði, verður fastur ferðafélagi minn í veiðinni.
Fly Tying with Common Household Materials eftir Jay „Fishy“ Fullum er kannski ekki alveg eins áhugaverð, en þó. Nokkrar skemmtilegar hugmyndir að hnýtingarefni sem finnast víða, átti kannski von á aðeins meiri frumlegheitum. Góð samt.
Þegar fiskurinn einblínir á ákveðið skordýr reynir þú að finna þá flugu sem passar best við stærð þess, lit og svo framvegis. Þetta eru engin geimvísindi. En þegar tækifærissinnaður silungur er annars vegar, þá ættirðu að nota stærri flugu í hröðu vatni.
Hér er sönnun þessa sem við öfluðum í Shawnee ánni í Colorado. Efst í flúðunum var mikill hraði í vatninu þar sem það þrengdi sér í rennu, en fyrir neðan kyrrðist það verulega í breiðu.
Í hraða vatninu horfðum við á það í myndavél þegar Hyatt krækti í nokkra með #12 San Juan ormi og #14 Prince nymph. Fiskurinn kom auga á þessar flugur en hafði skemmri tíma til að gaumgæfa þær í hröðu vatninu og gerði því hvatvísari árás á þær. Fyrir neðan í ánni, þar sem vatnið var lygnara voru stóru flugurnar ekki að veiða. Við urðum að fara niður í #20 með RS2 til að fá töku (sem var ekki einu sinni sannfærandi, við vorum í vandræðum með að staðsetja myndavélina án þess að hræða silunginn). Meiri straumur leyfir þér að komast upp með stærri flugur því stundum týnast þessar litlu títlur einfaldlega í strauminum.
Kirk Deeter
Fyrir þá sem áhuga hafa á að kynnast betur greinum og umfjöllun Kirk Deeter skal bent á að netið geymir ógrynni greina eftir hann, meðal annars vefsíða Field & Stream.
Ég má til með að vekja athygli á meðfylgjandi klippu sem Snævarr Örn Georgsson setti á Vimeo þar sem hann gefur okkur nasasjón af ánni sinni og þeim bráð-skemmtilegu fiskum sem þar leynast. Sjálfur hef ég alltaf ætlað að vera duglegri að taka bæði ljós- og lifandi myndir yfir sumarið til að ylja mér yfir meðan snjór og ís leggst yfir landið, ef svona myndir verða manni ekki hvatning til þess að láta nú verða að því næsta sumar, þá er ekkert sem getur hreyft við manni.
Þeir sem vilja skyggnast nánar inn í þennan veiðiheim hans, endilega kíkið á kommentin hans hér til hliðar. Alveg stór-skemmtilegar sögur og frásagnir. Takk fyrir Snævarr Örn.