Hin árlega fræðsluganga Urriðadans verður á Þingvöllum þann 15.okt. og hefst við bílstæðin við Valhöll kl.14. Það má með sanni segja að þessar göngur eru hreinasta æfintýri fyrir alla þá sem þær sækja og hvet ég menn eindregið til að mæta á staðinn. Allar nánari upplýsingar má finna á vefnum laxfiskar.is Sjáumst á Þingvöllum á laugardaginn.
-
Urriðadans á Þingvöllum 2011
Höfundur:
-
Vefsamfélagið
Veraldarvefurinn er ótrúleg uppspretta upplýsinga og miðlunar. Í gegnum tíðina hef ég skráð mig fyrir hinum ýmsustu þjónustum og reynt að sanka að mér tenglum um ýmiss áhugamál, þar á meðal fluguveiði og fluguhnýtingar. Flestar samfélagssíður bjóða upp á að útbúa uppáhaldslista (favorits) eða áskriftir (subscriptions) sem auðvelda manni flokkun og yfirsýn. Um nokkurt skeið hef ég miðlað helstu samskiptasíðunum mínum hérna á blogginu og hvet menn endilega til að skoða það sem þar gefur að líta.
Google+ er nýjasta samfélagssíðan, ekki ósvipuð fésbókinni eins og hún var á góðri leið með að verða. Ég er í rólegheitunum að byggja mér circle, gengur hægt enda ekki mjög útbreytt samfélag enn sem komið er.
Fésbókina þekkja flestir, en færri virðast vita af þeim möguleika að stofna síðu (page) á bókinni. Hér miðla ég völdum greinum af blogginu og upplýsingum um aðrar Facebook síður sem ég fylgist með.Yudu er þjónusta sem stendur öllum opin til að miðla tímaritum og greinum á netinu. Hér safna ég saman þeim tímaritum og greinum sem ég tel að eigi sérstakt erindi til stangveiðimanna.
Issuu er enn önnur þjónusta þar sem notendum stendur til boða að setja inn og skoða tímarit um hin ýmsustu mál. Issuu hefur náð töluverðri fótfestu notenda á Íslandi og nokkuð er af íslensku efni á þessari síðu.
Vimeo er ekki ósvipuð síða og Youtube, en með aðeins öðruvísi blæ. Einhverra hluta vegna virðast atvinnumenn í ljós- og kvikmyndun sækja meira inn á Vimeo heldur aðrar síður. Mikið af góðu efni.
Formóðir allra myndmiðlunarsíðna. Ekki neinn skortur á efni, misjöfnu að gæðum en margt mjög gott á ferðinni.
Facebook síða (page) þeirra Mokveiði-bræðra. Alltaf eitthvað skemmtilegt að lesa og skoða, stiklur af þessu bloggi ásamt einni og einni klippu af Youtube síðu Gústafs Gústafssonar.Og til að fylgjast með öllu þessu og mjög mörgu öðru nota ég Google Reader og er óspar á að gerast áskrifandi að ýmsum síðum og bloggi, það er meira að segja hægt að gerast áskrifandi að fésbókarsíðum með RSS. Og ekki má gleyma að það er hægt að gerast áskrifandi að þessu bloggi hér.
Höfundur:
-
This is Fly okt.-nóv.
Það er ekki oft sem ég mæli með erlendum veiðitímaritum en október-nóvember blað This is Fly inniheldur nokkrar frábærar myndir sem Matt Harris tók við Langá og Hítará. Mæli með þessu veftímariti veiðimanna, þó ekki væri nema fyrir þessar frábæru myndir á bls.108 – 119. Kynnið ykkur málið hér.Höfundur:
-
4 tbl. Veiðislóð
Enn eitt snilldarblaðið komið út hjá Vötn og veiði sem þið getið skoðað hér. Að þessu sinni; blandað efni með aðeins meiri áherslu á skotveiði heldur en áður, enda sá árstíminn gengin í garð. Í kynningu blaðsins kemur fram að þessi tilraunaútgáfa þeirra félaga verði í 6 tölublöðum, vonandi taka veiðimenn og auglýsendur nú vel við sér og leggja sitt að mörkum til að halda lífi í þessari útgáfu umfram áætluð 6 tölublöð.Þetta tölublað, ásamt ýmsu fleiru er auðvitað komið í uppáhaldslistan minn á Issuu sem þið getið skoðað hér.
Höfundur:
-
Að veiða er að lifa
Kannski er það aðeins mín eigin upplifun eða þá að veiðimenn eru almennt farnir að slaka meira á við veiðarnar og læra að njóta þeirra. Auðvitað eru til þeir veiðimenn sem veiða aðeins aflans vegna, en ég er aðeins að færast frá magninu að lifuninni. Í sumar sem leið stóð ég sjálfan mig að því að una nokkuð sáttur við fáa fiska í hverri ferð svo fremi mér tækist að gera vel það sem ég var að dunda við; mýkri köst, nýjar flugur, nýir staðir. Nú kann einhver að segja sem svo að þetta sé allt ein stór afsökun fyrir lélegum aflabrögðum, en svo er nú ekki. Ég og veiðifélagi minn áttum margar góðar aflahrotur í sumar og gátum leyft okkur að slaka á og prófa ýmislegt eftir að mestu græðginni var svalað.Hvort um sig leyfðum við okkur að líta upp frá vatnsfletinum þótt það kostaði mögulega að missa af naumri töku bleikjunnar, virða fyrir okkur hlíðina hinum megin við vatnið, fylgjast með hvítum skýjum við sjóndeildarhringinn eða leik ljóss og skugga á vatninu. Þrátt fyrir síðbúna sumarkomu reyndist sumarið fallegt eins og endranær og veiðiferðirnar almennt í blíðu þótt sumstaðar hafi blásið meira en annars staðar. Veiðimennska á Íslandi bíður okkur veröld sem gefst ekki víða, njótum og tökum með okkur ímynd hennar að hnýtingarborðinu í vetur þannig að afraksturinn verði í samræmi við hana.
Höfundur:
-
Opið í Hlíðarvatni
Sú skemmtilega nýbreytni stendur ungum veiðimönnum til boða að reyna fyrir sér í Hlíðarvatni í Selvogi núna á sunnudaginn, 4.sept. í boði veiðirétthafa vatnsins; Stangaveiðifélag Selfoss, Stangveiðifélag Hafnarfjarðar og Ármenn. Hlíðarvatnið hefur um margra ára skeið verið eitt gjöfulasta bleikjuvatnið í nágrenni Reykjavíkur og því tilvalið fyrir unga veiðimenn að reyna sig í vatninu. Fyrir þá sem hyggjast kíkja í vatnið er auðvitað tilvalið að renna yfir prýðis góða umfjöllun Ármanna frá árinu 2009 um vatnið sem má nálgast hér eða kíkja á mun styttri útgáfu hér á blogginu. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðum veiðirétthafa hér að ofan.Höfundur:


