Skip to content
FOS
  • Febrúarflugur
  • Færslur
  • Flugur
  • Grúsk
    • FiskurinnNokkrir punktar um hegðun fisksins sem við erum að eltast við.
    • GreinaskrifGreinar og fréttir sem komið hafa fram á hinum og þessum miðlum á liðnum árum.
    • GræjurNokkrar greinar um veiðistangir, hönnun þeirra og eiginleika.
    • HnútarNokkrir góðir hnútar
    • HnýtingarÝmislegt sem tengist veiðiflugum, hnýtingu þeirra og hönnun.
    • Hnýtingarefni
    • KannanirÝmsar kannanir sem FOS.IS hefur gert meðal lesenda sinna, niðurstöður þeirra og hugleiðingar út frá þeim.
    • KasttækniAlltaf gott að rifja upp kasttæknina.
    • Lífríkið
    • Línur og taumarÝmislegt gagnlegt sem lýtur að flugulínum og taumum.
    • MaturNokkrar uppskriftir og umfjöllun um þann mat sem má gera sér úr aflanum.
    • Veiðiferðir
    • Veiðitækni
    • ÞankarÝmsir þankar og hugleiðingar
    • ÆtiðAllt sem fiskurinn leggur sér til munns.
  • Vötnin
  • Myndir
  • Töflur
    • AFTM
    • Alfræði
    • Byrjendur
    • Festingar
    • Fiskurinn
    • Flóðatafla
    • Hlutföll
    • Krókar
    • Kúlur & keilur
    • Lög og reglur
    • Taumar og flugur
    • Þráður
  • Tenglar

  • Ólýsanleg hegðun

    22. júní 2011
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Því hefur borið við að umgengni veiðimanna við vötn og ár hefur verið nokkuð ábótavant í gegnum tíðina og nú hafa borist fregnir af ólýsanlegri hegðun á Arnarvatnsheiði. Sjá frétt á Skessuhorni. Hér keyri algerlega um þverbak og hegðun sem þessi kastar rýrð á alla veiðimenn, því miður. Þessum veiðimönnum veitti ekki af smá tilsögn í mannasiðum og fiskflökun. Ef þessi aðilar skyldu slysast inn á þetta blogg mitt; vinsamlegast leitið ykkur aðstoðar sem allra fyrst. Fyrsta skrefið gæti verið að skoða neðangreint myndband á Youtube.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Veiðidagur fjölskyldunnar 26. júní

    20. júní 2011
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 26. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið. Nú er lag að fara með alla fjölskylduna í eitthvert af þeim 27 vötnum sem boðið er í, ókeypis þennan veiðidag. Allar nánari upplýsingar eru á vef Landssambands stangveiðifélaga og í bæklingi þeirra um veiðidaginn sem má nálgast hér.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Veiðifréttir SVFR

    31. maí 2011
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Enn bætist við í veftímaritin og nú eru það Veiðifréttir SVFR sem eru aðgengilegar hér. Áhugasvið manna misjafnt, sjálfum finnst mér viðtalið við Atla Bergmann áhugaverðast, enda á ferðinni áhugamaður um vatnaveiði eins og ég sjálfur.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Veiðislóð

    29. maí 2011
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Ég gaf mér tíma yfir morgunkaffinu til að lesa nýjasta veftímaritið Veiðislóð sem félagarnir í Vötn og veiði gáfu út á föstudaginn. Í stuttu máli; flott tímarit með hæfilegri blöndu af veiðigreinum fyrir alla. Til hamingju strákar með góða útkomu.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • Frí byrjandakennsla á ein- og tvíhendur

    25. maí 2011
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Langar að vekja athygli ykkar á eftirfarandi auglýsingu Mokveiði-bræðra:
    Við Mokveiði-bræður höfum ákveðið að bjóða áhugasömum veiðimönnum og -konum að koma eina kvöldstund með okkur og fleiri góðum mönnum, nánar tiltekið í dag miðvikudag (25.maí) á Klambratún (vestast á bílastæðinu) kl 19.00, í smá byrjendakennslu bæði á ein- og tvíhendu. Þetta verður sýnikastkennsla með léttri kynningu á veiðivörum frá Joakims. Á staðnum verða stangir og búnaður þeim tengdum en fólki er velkomið að koma með sínar eigin græjur ef það vill.

    Kvöldið er að sjálfsögðu án endurgjalds 🙂

    Fleiri fréttir á Facebook-síðu Mokveiði

    E.S. kl. 21:30 Frábært kvöld með Mokveiði-bræðrum, Stefáni Hjaltested og Joakim’s á Klambratúni, takk fyrir okkur.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
  • 1.árs afmæli

    21. maí 2011
    Fréttir

    Upp

    Forsíða

    Í dag, 21. maí á bloggið 1.árs afmæli. Ekki datt mér í hug að undirtektirnar yrðu eitthvað í líkingu við það sem orðið hefur, hélt satt best að segja að þetta yrði meira eins og persónuleg dagbók fyrir mig og mína um veiðiferðirnar okkar. En, þegar ég fór síðan að grúska í veiðinni, leita mér upplýsinga og spyrjast fyrir þá ákvað ég að miðla því sem ég varð vís og reyndi á sjálfum mér, ef það kæmi mögulega öðrum að einhverju gagni. Þannig hafa veiðisögurnar (skröksögurnar) vikið fyrir molunum og grúskinu þannig að úr hefur orðið einhvers konar banki upplýsinga sem ég sjálfur leita reglulega í til að rifja upp hvernig á og á ekki að gera hlutina.

    Í tilefni dagsins hef ég bætt inn nýjum valkosti á síðuna sem mér vonandi tekst að uppfæra reglulega í sumar. Undir valkostinum Flugur hér að ofan hef ég bætt inn síðu undir heitinu Hvar og hvenær þar sem ég tilgreini þær flugur sem ég hef sönnun fyrir að hafi gefið í nokkrum vötnum á ákveðnum tíma árs. Auðvitað er gestum boðið að bæta í sarpinn með því að senda mér línu og þannig gæti orðið úr þessu einhvers konar banki sem vert er að hafa í huga þegar ákveðin vötn eru heimsótt.

    Bestu þakkir fyrir öll innlitin á þessu fyrsta ári.

    Höfundur:

    Kristján Friðriksson
«Fyrri síða
1 … 74 75 76 77 78 … 81
Næsta síða»

FOS

Allur réttur áskilinn – © 2025 – Kristján Friðriksson

  • Facebook
  • Vimeo
  • Issuu
  • YouTube
  • Instagram
  • Senda skilaboð
  • Áskrift í tölvupósti
  • Gerast áskrifandi Subscribed
    FOS
    Join 180 other subscribers

    Have a WordPress.com account? Log in now.

  • FOS
    Skoða vef í lesara
    Manage subscriptionsSkrá migInnskráning
    Report this content
    Collapse this bar